Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Heilsugæsla í
vandræðum
Hverfisráð Vesturbæjar
hefur skorað á borgaryfir-
völd að grípa til aðgerða í
því skyni að leysa húsnæð-
isvandræði heilsugæslu-
stöðvar Miðbæjar sem er á
Vesturgötu 7. „Stöðin sinnir
brýnni þjónustu í þágu
íbúa Vesturbæjar, Miðbæj-
ar og Austurbæjar en mikil
húsnæðisþrengsli há starfs-
semi hennar verulega,"
segir Birna Kristín Jóns-
dóttir og Kjartan Magnús-
son í bókun sinni á síðasta
fundi ráðsins.
Stóra Eurovison-málinu er langt í frá lokið. Kristján Hreinsson undirbýr kæru sem
hann ætlar að leggja fram til menntamálaráðherra. Fjöldi manna hefur haft sam-
band við Kristján og lýst yfir stuðningi við hann. Auk þess að hafa borist nafnlaus
óhróður hlaut Kristján mikla yfirhalningu hjá Jakobi Frímanni Magnússyni Stuð-
manni sem segist öldungis ósammála Skerjafjarðarskáldinu.
Skerjafjarðarskáldi
lofað íe í málskostnað
Silvía Nótt Stóra
Eurovison-mdlinu
er langt í frá lokið.
Skipulögð
glœpastarfsemi
á íslandi?
Davíð Þorláksson,
starfsmaður hjd Viðskiptaráði
fslands
„Veltur á þvl hvernig menn
skilgreina oröiö. Ég leyfi mér
að efast um að þessir menn
séu skipulagðir. Sennilega er
hópur manna sem stunda
ólöglega starfsemi á Islandi en
held að það sé frekar minna
en maður heldur. Ég held að
það sé óþarfi að hafa áhyggj-
urafþróun mála.“
Hann segir / Hún segir
„Það er erfitt að segja til en
gæti vel trúað að það væri
skipulögð glæpastarfsemi á Is-
landi og mjög líklegt. Við erum
því miðurfarin að Ukjaststór-
veldunum meira að þessu leyti
og oftar en ekki snýst svona
starfsemi um flkniefni. Ég á
allavega erfitt með að trúa þvi
að mikið afþessum glæpum á
Islandi séu bara tilviljanir."
„í mig hringdi kona sem talaði fyrir hönd stórs hóps, og var mér
heitið því að greiddur yrði fyrir mig málskostnaðurinn/' segir
Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld. En hann átti sem kunn-
ugt er þrjá texta við lög á lokakvöldi í forkeppni Sjónvarpsins í
Eurovision.
Stóra Eurovision-málinu er langt
í frá lokið. Skerjafjarðarskáldið er nú
að láta lögmenn sína fara yfir málið
en hann vill ekki una því að Silvía
Nótt fékk að taka þátt þrátt fyrir að
lag hennar hefði gengið um á netinu
áður en til flutnings kom. Kristján
segir menntamálaráðherra mega
búast við, jafnvel í þessari viku, kæru
á hendur Sjónvarpinu.
Nýtur stuðnings flestra
keppenda
Kristján segir málið snúið en
hann muni ekki sætta sig við að út-
varpsráð taki sér það alræðisvald að
kveða uppúr um að hann megi
hvorki kæra útvarpsstjóra né út-
varpsstjóra til ráðsins. En Kristján
lagði fram kæru á hendur útvarps-
stjóra Páli Magnússyni sama kvöld
og keppnin fór fram. Útvarpsráð vís-
aði þeirri kæru frá.
Kristján segist njóta stuðnings
obbans af þeim sem tóku þátt í for-
keppninni. Og segist ekki skilja af
hverju svo lítið heyrist í þeim hópi
og raun ber vitni.
„Ég kann engar skýringar á því.
En ég tók að mér að standa í þessu.
Til stóð að allir myndu hætta
keppni. Af því varð ekki. Og ég lofaði
í staðinn að ég myndi leita lögform-
legra leiða í þessu réttlætismáli."
Mannleysa og aumingi
Kristjáni hafa borist stuðnings-
yfirlýsingar eins og áður sagði en
einnig SMS-skeyti sem hann segir
frá nafiilausum lyddum sem kalla
hann aumingja. „Kúk- ogpissbrand-
arar eins og þeir gerast verstir á leik-
skólum."
En ekki eru það bara nafnlausar
ákúrur sem Kristján sætir. í síðustu
viku fékk hann yfirhalningu á fundi
þar sem rædd voru málefni laga- og
textahöfunda.
„Já, það var frá manni sem hing-
að til hefur talist einn helsti talsmað-
ur höfunda. Sá heitir Jakob Frímann
Magnússon. Hann kallaði mig ítrek-
að mannleysu og aumingja sem
hefði orðið sjálfum mér til háðungar
um ókomna tíð."
„Sá heitir Jakob
Frímann Magnús-
i. Hann kallaði
ikað mann-
u og aumingja
sem hefði orðið
sjálfum mér til
háðungarum
ókomna tíð."
Jakob styður útvarpsstjóra
„Ég ber fulla virðingu fyrir sjón-
armiðum Kristjáns þó að ég sé alger-
lega ósammála honum," segir Jakob
Frímann þegar málið er borið undir
hann. Jakob segir einu leiðina til að
skilgreina opinberan flutning þann
að miða við það sem innheimt er
fyrir af STEFi. „Utan sviðs STEFs
liggur enn sem komið er sá virki og
illskilgreinanlegi akur sem netið er.
En þangað ratar hvað sem er sama
hvað menn rembast við að verja
hugverk sín og eignarrétt. Bendi ég
þar á síðustu kvikmynd Stuðmanna
og allar nýjustu kvikmyndir og
hljómplötur heims."
Jakob segist styðja ákvörðun út-
varpsstjóra og útvarpsráðs hundrað
prósent. Og telur hægt um vik að
drepa keppnina í fæðingu með því
að senda öll lög, sem eru í höndum
tuga einstaklinga, inn á netið. Jakob
Frímann fór einmitt mikinn fyrir ári
og gagnrýndi Sjónvarpið harðlega
fyrir að gangast ekki fyrir forkeppni
Eurovison.
jakob@dv.is
Jakob Frímann Tók
Skerjafjarðarskáldið í
mikla yfirhalningu að
hætti hússins.
Kristján Hreinsson
Segir að sér hafi verið lof
aður fjárhagsstuðningur
íkomandi málaferlum.