Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006
Lífsstíll DV
Brauð með áleggi og
Elísabet Thorlacius
fyrirsæta
„Ég fæ méryfirleittskyr.is-drykk
eða óskajógurt í morgunmat,"
svarar Elisabet brosmild og létt
I lund þegar hún er spurð hvað
hún fái séryfirleitt I morgun-
mat.
En þegar þú kýst að dekra við
þig í hádeginu?
„Þá fæ ég mér brauð með
áleggi og svo kannski eitthvað
sætteftirá."
Morgunstund
Auðvelt & gómsætt
„Það var fjölmenni. Fullt hús,“
svarar Sigrún Magnúsdóttir ánægð
með Safnanóttina sem hún ásamt
samstarfsfólki hélt á föstudaginn í
tilefni Vetrarhátíðar sem bar yfir-
skriftina Sædýraskinn og sjórekin
lík. „Borgarstjóri ákvað að hafa loka-
athöfn Food and Fun áður en Safna-
nóttin hófst. Allt var unnið úr ís-
lensku hráefni," segir hún og útskýr-
ir á einstaklega gómsætan máta að
þar var boðið upp á krækling,
lunda, krabba og ýmislegt annað
sjávargóðgæti.
Auðveldar crépes
Um I7til22crépes:
1 bolli hveiti
3/4 bolli mjólk
1/2 bolli vatn
3 msk. bráðið smjör
2 stóregg
smjör tii steikingar
Aðferð:
Setjiðalltinni-
haldið i skál og
blandið velsam-
an.Setjið deigið
siðan I ísskáp 11
klst. Með því
sjatna loftbólurn-
arideiginu sem
gerirþað aðverkum
að það er minni hætta á að crépes-kök-
urnar rifni við steikinguna. Hægt erað
geyma deigið I allt að 48 klst.
Hitið smjör á pönnu. Ausið smá deigi á
miðju pönnunnar og hallið henni til og
frá svo deigið dreifist jafnt. Steikið í 30
sek. og snúið crépes-kökunni svo við og
steikið á hinni hliðinni 110 sek. Setjið
svo tilbúna crépes-kökuna til hliðar, al-
veg flata svo hún nái að kólna. Haldið
áfram þar til allt deigið er búið. Eftir að
allar crépes-kökurnar eru orðnar kaldar
er hægt að stafla þeim saman og
geyma í lokuðum þlastþoka (“ziþ-lock"
poka) í Isskáp I nokkra daga. Annars
berið fram með meðlæti að eigin vali.
Til tilbreytingar:
Bætið 1/4 tsk. afsalti og 1/4 bolla af
söxuðum ferskum kryddjurtum, spinati
eða sólþurrkuðum tómötum útl deigið.
Fyrir sælkera:
Bætið við 2 1/2 msk. afsykri, 1 tsk. af
vanilludropum og 2 msk. afuppáhalds-
llkjörnum út I deigið. Skoðið Cointreau
Crépes með vanilluls.
1
- I
NJOTTU LIFSINS
með HÚLBRIPÐUM
LIFSSTIL
Fjölmenni var á
Sjóminjasafni ís-
lands og margt for-
vitnilegt til sýnis á
föstudaginn síð-
asta. Lífsstíll
ræddi við Sigrúnu
Magnúsdóttur,
forstöðumann Sjó-
minjasafnsins og
þjóðfræðing, sem
var að vonum
ánægð með tísku-
sýninguna sem
vakti athygli gesta.
Gríðarlega flottar yfirhafnir
„Tískusýningin samanstóð af al-
veg gríðarlega flottum yfirhöfnum
og það sem er sérstaða Eggerts feld-
skéri er að hann notar tvenns konar
skinn. Hann notar selinn og bryddar
með karfa og laxaroð notar hann
einnig með þykkari skinnum. Þykir
mikil list að gera flíkurnar þannig,"
bætir hún við en myndirnar segja
allt ef vel er skoðað.
„Síðan var opið hús á Safnanótt-
inni og þá voru haldnar fleiri tísku-
sýningar. Gestirnir voru mjög
ánægðir," segir hún stolt og bætir
við: „Stórskemmtilegur dagur á alla
lund," bætir hún við og hvetur ís-
lendinga tO að heimsækja Sjóminja-
safnið sem er í stöðugri framþróun.
elly@dv.is
Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumai
Sjominjasafnsins og þjóðfræðingu
„Þetta er laxaroð, svona eins og litlir bál
Kirsuberjatrénu eftir Arndisi Jóhannsdói
■v
Listaverk úr laxaroði
„Meistarakokkar og blaðamenn
sem fylgdu þeim hvaðanæva að úr
heiminum mættu ásamt fleira fólki
en tískusýningin vakti óhemjumikla
athygli þar sem mjög margir fallegir
munir voru sýndir. Þarna var ekki
eingöngu fatnaður heldur einnig
listaverk til sýnis," segir hún og sýn-
ir Lífsstíl faflegt listaverk gert úr
laxaroði. „Þessi er geysilega falleg,"
segir hún þegar ljósmyndari okkar
bað hana um að stilla sér upp fyrir
myndatöku og heldur áfram: „Hér
voru til sýnis stór listaverk og öll úr
roði. Þetta verk ætti að eiga heima
hérna hjá okkur á Sjóminjasafninu,"
segir hún og brosir og heldur áfram:
„Þetta er laxaroð, svona eins og litlir
bátar úr Kirsuberjatrénu eftir Arn-
dísi Jóhannsdóttur."
Stefán Jón er formaður
stjórnar safnsins Stefón og
Tina Vik, kokkur frá Noregi og
dómari I Food and Fun.