Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Blaðsíða 12
72 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Útrásin í
góðum gír
Aðalhluthafinn í Sjælsö
Gruppen í Danmörku hefiir
selt Björgólfsfeðgum og
Straumi-Burðarási 25% hlut
sinn í félaginu. Sjælsö
Gruppen er
umfangsmikið í
fasteignavið-
skiptum í Dan-
mörku en hlut-
hafinn sem hér
um ræðir er
Brdr. Rönje.
Hafa Brdr.
Rönje og Samson Partners-
Properties, eignarhaldsfélag
þeirra Björgólfsfeðga, stofti-
að sérstakt eignarhaidsfélag
um fyrrgreindan hlut. Um
leið og fféttist af þessum
viðskiptum stigu hlutabréf
Sjælsö í dönsku kauphöll-
inni um 10%.
Laun hækka í
Skagafirði
Sveitarstjóm sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar hefur
samþykkt að nýta til fulls
heimÚd launanefndar sveit-
arfélaga til að hækka í
launmþá
starfsmenn sem
lægst hafa laun-
in. „Erhérum
að ræða tíma-
bundnar launa-
viðbætur,‘‘ segir
á skagafjord-
ur.is. „Kostnað-
arauki sveitarfélagsins árið
2006 er áætlaður 36,4 millj-
ónir króna. Launahækkan-
irnar fela í sér bæði ein-
greiðslur og launaflokkatil-
færslur hjá leikskólakennur-
um, starfsmönnum sem em
í Starfsmannafélagi Skaga-
fjarðar og Öldunni - stétta-
félagi."
Á160 kfló-
metra hraða
Lögreglan í Hafnarfirði
stoppaði mann á sunnu-
dagsmorgun sem ók Hafn-
arfjarðarveginn á 160 kíló-
metra hraða á klukkustund.
Hámarks leyfilegur hraði þar
sem bíllinn var stoppaður er
80 km/klst. ökumaður bíls-
ins rétt slapp við að vera
sviptur ökuréttindum á
staðnum
en hann
ókbíl
af teg-
und-
inni Saal
„rao er veirurin i sKoium og
mikið affólki að renna sérá
skíðum
Landsíminn
og
snjó-
brettum, “ segir Guðmundur
Karl Jónsson, forstöðumaður
skíðasvæðisins I Hliðarfjalli á
Akureyri.„Veðrið er búið aö
vera mjög gott síðan fyrir
helgi og veturinn er að koma
aftur með norðlægum kulda-
áttum. Veðurfræðingarnir lofa
okkur meiri snjó á næstu dög-
um og vikum þannig að það
erallt gott að frétta. *
Fyrsta skóflustungan var tekin að hæsta húsi íslands í síðustu viku. Húsið verður einar
20 hæðir með veitingahúsi á toppnum og verslunum neðst. Þar á milli verður heilmikið
flæmi leigt út til fyrirtækja og stofnana. Fermetraverðið er ekki ákveðið enn, enda fer
það eftir samningum. Eigendurnir ætla þó ekki að teygja sig mikið upp fyrir 2.000 krón-
ur á fermetrann á mánuði. Sérfræðingar á markaði telja það nokkuð vel sloppið.
Jákup N. Purkhús
Hefur efnast vel á
sölu rúmfata og út-
leigu húsnæðis.
Odýrir fermetrar |il
leigu í hæsta húsi Islands
Framkvæmdir eru að hefjast við þetta hæsta hús landsins, við
Smáratorg 3 í Kópavogi. New York, Kuala Lumpur, Los Angeles
og fleiri borgir eiga sína skýjakljúfa og nú bætist Kópavogur í
hóp heimsborganna með sinn glerturn. Það er stofnandi og eig-
andi Rúmfatalagersins á íslandi - Jákup Purkhús - Færeyingur-
inn frækni sem reisir og ætlar ekki að leigja út á háu verði.
„Af þeim 14.600 fermetrum sem
húsið er, höfum við þegar ráðstafað
helmingnum," segir Agnes Geirs-
dóttir, framkvæmdastjóri Smára-
torgs. Hún segir áætíanir gera ráð
fyrir að húsið verði tilbúið á seinni
hluta næsta árs og þegar er búið að
ganga frá samningum um jarð-
vinnslu. Frekari framkvæmdir verða
boðnar út í næsta mánuði.
Agnes segir aðspurð að ekki
standi til að leigja húsnæðið út á
óheyrilegu verði. Hún segir leiguna
ekki fara upp fyrir tvö þúsund krón-
ur á fermetra. Það þykir mörgum vel
sloppið.
Ótrúlegur gangur
„ísland er tvímælalaust land
tækifæranna," segir hugmynda-
smiðurinn Jákup Purkhús sem hefur
tekið ástfóstri við land og þjóð. Ekki
er hægt að segja annað en að ís-
lenska þjóðin hafi einnig tekið hon-
um og hans framkvæmdum vel.
Sjálfúr ætíar Jákup sér að halda eftir
einni hæð í húsinu undir skrifstofur
fjárfestingarfélagsins sem hann rek-
ur nú frá Sundaborg, þar sem útsýn-
ið yfir sundin og Esjuna blasir við.
Útsýnið frá efstu hæðum skýja-
kljúfsins verður sfst lakara.
Fjárfestingar og fasteignarekstur
eru það sem sem Jákup leggur
áherslu á núna, en það hefði honum
ekld dottið í hug fyi-ir tuttugu árum,
þegar hann var stýrimaður á skipi
við þorskveiðar.
„Mér hefði ekld dottið það í hug
fyrir einu ári," segir Jákup. „Hraðinn
upp á við hefur verið rosalegur
hérna. Annars hafa margir boðið
mér pláss á skipi ef allt skyldi fara
illa hjá mér, þannig að ég er kominn
með fast pláss ef svo fer."
Stingur í stúf Gnæfír yfír
önnurhús I nágrenninu.
Skýjakljúfurinn í Kópavogi feródýrtí
leigu, enda ekki annars að veenta af Júkup.
Ódýrt og flott
„Ég tel að þetta sé mjög
leiguvænt verð fyrir leigj-
endur," segir Ólafur Blön-
dal, eigandi Fasteign.is.
Fyrirtækið er meðal
þeirra sem sjá um út-
leigu á húsnæði turnsins.
„Við erum að tala um
hæsta hús á íslandi og
þessu verður skilað tilbúið til
innréttínga og jafhvel lengra
komið, en það fer allt eftir sam-
komulagi. Það em nokkur þekkt
fyrirtæki sem em á leiðinni þang-
að inn og við búumst við mikilli
eftirspurn. Nú þegar em margar
fyrirspumir í gangi svo við erum
bara nokkuð bjartsýnir á þennan
fyrsta skýjakljúf landsins, enda er
gott að búa í Kópavogi."
haraldur@dv.is
''MSrn...
P
S'-
Formaöur menningar- og ferðamálaráðs hefur ekkert sést á nýju ári
Dagur mætir ekki á fundi
Dagur B. Eggertsson hefur ekki
mætt á einn einasta fund hjá menn-
ingar- og ferðamálaráði eftir áramót.
Dagur er formaður ráðsins. Þá hefur
hann heldur ekki mætt á tvo borgar-
ráðsundi, farið nokkrum sinnum
snemma og mætt nokkmm sinnum of
seint. Þeir sem til þekkja segja annríki
Dags vegna nýlegs prófkjörs um að
kenna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er
helsti keppinautur Dags í borginni en
hans prófkjör er löngu afstaðið.
5 lí
j Ráðhús Reykjavíkur
j Von erú harðir barúttu um
j borgarstjórasætið ívor.
„Ég tek mætingu í vinnuna mjög
alvarlega," segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins, sem mætt hefur nokkuð vel á
fundi borgarráðs og borgarstjómar
fyrir utan tvo.
„Það er meginregla að menn ræki
sín störf," segir Vilhjálmur um ágæta
ástundun sína en borgarfulltrúar em á
fullum launum við að sitja í tveimur
nefndum að minnsta kosti. Vilhjálm-
ur segist reyna að rækja sínar skyldur
vel en að sjálfsögðu komi upp tilfelli
þar sem menn komast ekki á fundi, þá
sé varamaður kallaður til en til þess
em þeir eins og Vilhjálmur orðar það.
„Ég hef ekki orðið veikur síðan í
ágúst 1982,“ segir Vilhjálmurhreykinn
af heilsu sinni. Vilhjálmur segir að
ástæðumar fyrir því að hann hafi ekki
mætt á tvo borgarráðsfundi hafi ann-
ars vegar verið þá að hann festist í
Hollandi þegar starfsmenn SAS lögðu
niður störf í síðasta mánuði, hin
ástæðan sé sú að hann fór á fót-
boltaleik með Chelsea og
Barcelona. Vilhjálmur segir að
hann hafi boðað varamenn í
bæði skiptin.
Ekki náðist í Dag B. Eggerts-
son vegna málsins þrátt fyrri ít-
rekaðar tilraunir.
Dagur B. Eggertsson
Hefur ekki gefið skýring-
ar ú fjarveru sinni frú