Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 Fréttir DV Heildartapið í 26 milljarða deCODE, móðurfélag ís- lenskrar erfðagreiningar, tapaði í fyrra 62,8 milljón- um bandaríkjadala, eða tæpum 4,2 milljörðum króna. Tap fyrirtækisins á síðasta ári er heldur meira en árið 2004. Árið 2004 nam tapið 57,3 milljónum eða 3,81 milljarði íslenskra króna. Heildartap fyrirtæk- isins frá byrjun nemur um 387,5 milljónum Banda- ríkjadala eða tæpum 26 milljörðum íslenskra króna. Skiptalok í Nanoq-máli Gengið hefur verið frá skiptalokum íslenskrar útivistar hf. sem rak verslunina Nanoq í Kringlunni. Verslunin var ein stærsta íþrótta- og útivistarverslun á land- inu og sérhæfði sig í sölu á útivistarvörum og fatn- aði. Kröfur í búið námu alls 563 milljónum króna. Fyrir eignir félagsins fengust 339 milljónir króna sem gengu upp í veð- og forgangskröfur. Fasteignafélagið Þyrping, sem seinna var sameinað fasteignafélaginu Stoð- um, tók yfir rekstur ís- lenskrar útivistar um mitt ár 2002 og rak fram að gjaldþrotaskiptum. „Það sem liggur á núna er að fara í tónleikaferð með Diktu og Ampop f kringum landið," segir Sveinbjörn Thoraren- sen.betur þekktur sem Hermigervill.„Við leggjum af Hvað liggur á? dag- inn og spilum um helgina. Þetta verður þéttur pakki út alla næstu viku og svo klár- um við hringinn með því að spila á NASA á föstudag." Glæsilegt úrval af handsmíðuðum íslenskum skartgrípum (LÁRAÁ SKÓLAVÖRÐUSTIG 10 sími 561 1300 Jónas Garðarsson er ákærður fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa siglt skemmti- bátnum Hörpu á sker í Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að maður og kona fórust í september í fyrra. Jónas er sagður hafa vanrækt að bjarga farþegum eftir slysið með því að óska ekki eftir aðstoð og reyna síðan að sigla aðra leið af slysstaðnum en stystu leið í land. Hann á sex ára fangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Af slysstað Jónasi er gefið að sök að hafa verið drukk- inn þegar hann stýrði bátn- um sem sökk í Viðeyjarsundi. Sex ára fangelsi? Aðstandendur hinna látnu voru í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar mái Jónasar var þingfest í gær. Erfiðlega gekk að finna tíma fyrir málsmeð- ferð sökum anna verjanda Jónasar en aðalmeðferð málsins fer ekki fram fyrr en 5. maí. Aðstandandi fórnarlambs hafði orð á því inni í réttarsal að málið væri orðið brandari þegar lögmað- ur og saksóknari reyndu að sam- ræma tíma sinn svo hægt væri að finna hentugan stund fyrir aðal- meðferð málsins. Ef Jónas verður fundinn sekur fyrir brot sín gæti hann átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. valur@dv.is 'mmm Ætlaði ekki stystu leið í land Ákæruvaldið gefur Jónasi að sök að hafa ekki gert ráðstafanir til þess að bjarga farþegum í kjölfar slyssins eftir að stórlega laskaður báturinn losnaði af skerinu. Segir í ákæru að ‘RAUTADSa Jónas Garöarsson Mætti á hækjum ÍHér- aðsdóm Reykjavíkur. Arvydas Maciulski enn í gæsluvarðhaldi vegna meintrar aðildar að dópsmygli Leynd yfir rannsókn á Litháamafíunni Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald Litháans Arvydas Maciulski til 17. mars. Arvydas kærði úrskurð Héraðs- dóms til Hæstaréttar varðandi framlengingu gæsluvarðhalds síns og hefur hann áður kært til Hæsta- réttar vegna gæsluvarðhalds síns en án árangurs. Virðist Lögreglan í Reykjavík sem rannsakar meinta aðild Arvydas að smygli á amfetamíni í vökvaformi gæta fyllstu varúðar vegna rannsóknar málsins. Sam- kvæmt heimildum frá Hæstarétti hefur Lögreglan í Reykjavík beðið um að dómsúrskurðir sem orðnir eru fjórir varðandi gæsluvarðhald Litháans verði ekki birtir á heima- síðu Hæstaréttar til að verja sína rannsóknarhagsmuni. Amfetamín Arvydas er talinn tengjast smygli á einum og hálfum litra afam- fetamíni í vökvaformi. Eftir handtöku Litháans Saulíus Prúsinskas á Keflavíkurflugvelli snemma í febrúar þar sem hann Hæstiréttur Dómsúrskurðir varðandi gæsluvarðhald Arvydas má ekki birta á vefsiðu Hæsta- réttar. var tekinn með einn og hálfan lítra af amfetamíni í vökvaformi kom fram við yfirheyrslur á honum að Arvydas Maciulski tengdist smygl- inu á amfetamíninu. Heimildarmenn DV hafa stað- fest að lögreglan sé að rannsaka hugsanleg tengsl Arvydas og Saulí- us og innflutnings á amfetamíni við starfsmannaleigu Litháa á ís- landi. Hugsanlegt er að um sé að ræða litháíska mafíu sem sé að hasla sér völl á eiturlyfjamarkaðin- um á fslandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.