Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Síða 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 73 Tískumeðvit- aður þjófur Tilkynnt var um innbrot í verslunina Blend á Hafn- argötu í Keflavík um helg- ina. Þjófurinn hafði spennt upp glugga og farið þannig inn. Hann stal fartölvu í tösku, ferða-DVD spilara og turn af borðtölvu. Einnig virðist þjófinn hafa vantað eitthvað af fötum því hann tók búnt af gallabuxum, eða um 15 stykki. Þjófurinn fór líka í peningakassann og tók þar ófrjálsri hendi rúmlega ellefu þúsund krónur. Óká Ijósastaur Mikil hálka var í Reykja- vík á þriðjudagsmorgun og lenti einn ökumaður í því að aka á Ijósastaur á Reykjanesbrautinni til móts við verslunarmiðstöðina Smáralind. Maðurinn slas- aðist nokkuð og var fluttur með sjúkrabíl á spítala. Sam- kvæmt lögregl- unni í Reykja- vík átti óhapp- ið sér stað snemma á þriðjudagsmorgun og virð- ist ökumaðurinn hafa misst stjórn á bifreið sinni vegna mikillar hálku. Bíllinn er mikið skemmdur. Þakplötur fukuá Akranesi Mikið rok hefur verið á Suður- og Vesturlandi und- anfarna sólarhringa og hef- ur vindhraði mælst um 15-20 metrar á sekúndu. Á Akranesi fuku þakplötur af nýja fótboltahúsinu sem er í byggingu. Ekki urðu frek- ari skemmdir eða slys á fólki vegna þess en sam- kvæmt lögreglunni á Akra- nesi má þakka snöggum viðbrögðum þeirra sem vinna við bygginguna að ekki fór verr. Rúður brotn- ar í ráðuneyti Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík voru þrjár rúður brotnar á húsi utanríkis- ráðuneytisins á Rauðarár- stíg aðfaranótt þriðjudags- ins. Um er að ræða skemmdarverk sem einhver eða einhverjir virðast hafa framið þegar gengið var framhjá húsinu. Skemmd- arverkamennirnir hentu grjóti í þrjár rúður og hlupu síðan á brott. Lög- reglunni í Reykja- vík hefur ekki tek- ist að hafa uppi á þeim einstaklingi eða einstaklingum sem að skemmd- arverkinu stóðu. Hlynur Skúli Auðunsson lögfræðingur hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir vörslu á rúmlega íjörutíu þúsund klámmyndum og um tvöhundruð mynd- skeiðum. Hlynur hefur leitað sér aðstoðar hjá Óttari Guðmundssyni geðlækni vegna klámfíknar sinnar. Hlynur þjálfar unglingspilta í körfubolta hjá Fjölni og þjálfaði einnig yngri landslið kvenna. Barnaklámsmaður þjálfar unglinga val- ur@dv.is Hlynur Skúli Auðunsson, fyrrverandi lögfræðingur Siglinga- stofnunar Islands, hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni rúmlega fjörutíu þúsund barnaklámsmyndir og um tvöhundruð hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Hlynur var ung- lingaþjálfari yngri landsliðs kvenna í körfubolta til 2005 og er núna þjálfari nokkurra körfuboltaflokka drengja í Fjölni. Hlynur Skúli Auðunsson, sem er 39 ára gamall, vistaði barnaklámið af netinu á löngu árabili, eða frá 1998 til 2004. Á heimili Hlyns fundust 38.101 ljósmynd og 192 hreyfimyndir á tveimur hörðum diskum í turn- tölvu og fjórum geisladiskum. Einnig fundust á vinnustað Hlyns, sem vann þá Siglingastofnun, 391 ljósmynd á hörðum diski í tölvu og 818 ljósmyndir á USB-minnislykli. Hlynur hætti störfum hjá stofnun- inni í kjölfar klámmyndafundar- ins. Grófar nauðganir Hlynur játaði afdráttarlaust að efnið væri hans. Sumar myndir þykja sérlega grófar. Eitt mynd- skeiðið sem Hlynur hafði undir höndum sýnir tvo karlmenn nauðga unglingsstúlku. Einnig sýna fjöldamörg myndskeið gróft samræði drengja og karlmanna og unga drengi neydda til munn- maka. Þjálfar unglinga Hlynur, sem er lögfræðingur frá Háskóla fslands, þjálfar unglinga í körfubolta í Reykjavík. Meðal annars þjálfaði hann yngri landslið kvenna í körfubolta árið 2005 með sæmilegum Myndskeið sem Hlyn- ur hafði undir hönd- um sýnir tvo karl- menn nauðga ung- lingsstúlku. árángri. Hann þjálfar einnig níunda til ell- efta flokk drengja í körfubolta hjá Fjölni. Það eru drengir frá 14 til 17 Hlynur mun aldrei hafa orðið uppvís að afbrotum fyrr. Fær aðstoð við klámfíkn í dómnum segir að Hlynur hafi leitað sér aðstoðar við klámfíkn hjá Óttari Guð- mundssyni geð- lækni og hefur sótt fundi hjá sjálfshjálp- arsamtökunum SLA sem að- stoða klámfíkla á borð við Hlyn. Telur dómurinn þetta honum til tekna. í dóms- , orði segir ' að ekki mögulegt að líta framhjá alvar- leika brotsins og því sé Hlynur dæmdur í tólf mánaða fangelsi. Níu mánuðir af fangelsis- dómnum eru þó skilorðs- bundnir. „ ara Hlynur Skúli Auð- unsson Er dæmdur fyr- ir meðal annars vörslu á Hörutíu þúsund barna- klámsmyndum. Óttar Guð- mundsson Að- stoðar Hlyn með klámflknina Engar áhyggjur af ógöngum Malaysian Airlines Samstarfsaðili Atlanta í vandræðum „Við erum í heilmiklum viðskipt- um við Malaysian Cargo sem er partur af Malaysian Airlines-sam- steypunni," segir Magnús Stephen- sen, framkvæmdastjóri viðskipta- þróunarsviðs hjá Avion Group. Nýr forstjóri Malaysian Airlines, Idris Jala, segir að það leiki enginn vafi á því að flugfélagið sé í vand- ræðum. Skortur á lausafé og of lítill hagnaður orsaki að mestu leyti þann vanda. Ef ekki verði gerðar róttækar breytingar á stefnu félagsins muni það sigla í strand. Þetta kemur fram á vefmiðlinum flightglobal.com. Sex af átta fragtvélum Malaysian er leigðar frá Air Atlanta. „Ef þetta iyrirtæki lendir í erfið- leikum munum við bara færa okkar vélar í önnur verkefni, okkar verk- efnastaða er það góð að við getum Tap Malaysian hljóðar upp á 160 ráð fyrir að rekstrinum verði snúið fært vélarnar okkar tiltölulega auð- milljónir dollara á síðasta fjórðungi við á uppgjörstímabilinu 2007 til veldlega á milli,“ segir Magnús. ársins 2005. Áætlanir félagsins gera 2008. Kína skákar Bandaríkjunum Efnahagur Kína verður stærri en sá bandaríski árið 2050. Þetta er mat markaðsfyrirtækisins PriceWaterHouse sem byggir spá sína á vexti hagkerfisins á grundvelli kaupmáttar en ekki stærð efnahagsins. Efnahagur Japans og Þýskalands, sem eru í öðru og þriðja sæti listans í dag, þurfa að eiga sætaskipti við Ind- land og Brasilíu fyrir árið 2050. Efnahagur Mexíkó mun einnig stækka verulega að mati PriceWaterHouse.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.