Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 6. MAf2006
Fréttir DV
DV spyr...
Eigahesthás
aðveraí
íbúðabyggð?
„Já, ég er
algjörlega
sammála því en
það þarfað gera
ráðfyrirþvíí
skipulagi.
Reiðstígar verða
að vera hannaðir
þannig að þeir
lendi ekki I
umferðinni. Ég er búin að eiga
hesthús í Kópavogi í 35 ár og
var hrædd um að á endanum
myndi þrengja að okkur. Núna
er varla hægt að ríða út frá
hesthúsinu því hávaðinn er svo
mikillaföllum framkvæmdun-
um á svæðinu að hestarnir
fælast."
Kristjana Samper myndlistamaður.
„Mér finnst
fáránlegtað vera
með hesthús í
íbúðabyggð. Ég
heldaðþað
skapi alltaf
óþægindi fyrir
fólk og
sérstaklega
hestana. Það
getur varla verið spennandi að
ríða útinnan um bíla. Hesthús
Gusts í Kópavogi eiga að víkja
því húsnæði fyrir fólk á að
ganga fyrir og það er gert ráð
fyrirþví í deiliskipulagi."
Valgeir Skagfjörð leikari.
„Ég hefenga
skoðun á því. Það
skiptir mig engu
og menn geta
gertþað sem
þeim sýnist. Ég á
ekki hesta og bý
ekkiíhverfi
nálægt
hesthúsum
þannig að þetta mál varðar
mig ekki neitt."
Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur.
„Það hlýturað
faraeftirþví
hvernig byggðin
erogþaðmáekki
þrengja ofmikið
að hestum og
hestamönnum.
Þetta er
útivistaríþrótt og
hestamenn þurfa
pláss til að geta stundað hana,
annars hættir að vera gaman.
Ég er fylgjandi því að hafa gott
aðgengi og stutt i gott og
náttúrulegt umhverfi."
Katrín Júliusdóttir alþingismaður.
„Það er ekki einfalt að svara
þessu. Hesthús
mega vera í
námunda við
byggð. Það þarf
samt að átta sig
á því að
hestamenn þurfa
aðrar ieiðir en
gangandi
umferð,
reiðhjólamenn og vélhjóla-
menn. Svo er það smekksatriði
hvort hestamenn kjósa að vera
með hesta sína í byggð en
sjálfur kýs égað vera með
mína hesta eins fjarri bílum og
umferð og ég get."
Jónas R. Jónsson hestamaður.
„Ég bý í Kópavogi
en blessaðir
hestarnir þar eru
svo langt í burtu
frámérað þeir
angra mig lítið. Ef
náiægðin væri
meiri þá væri ég
nokkuð viss um
að við ættum
ekki skap saman."
Arnar Björnsson, Iþróttafréttamaður á Sýn.
Kópavogsbær hefur ákveðið að kaupa upp hesthús Hestamannafélagsins Gusts við Glað-
heima. í staðinn fær félagið lóð og aðstöðu á Kjóavöllum. Minnihluti bæjarstjórnar gerir
ýmsar athugasemdir við framgang málsins. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar, segir verið að verðlauna lóðabraskara með fé úr bæjarsjóði. Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri segir niðurstöðuna til hagsbóta fyrir bæði hestamenn og bæjarfélag. Hlutur
Engilberts Runólfssonar metinn á 1,1 milljarð króna. Heildarverð eignanna sennilega
rúmir 2,5 milljarðar króna.
vegar
með
I máls-
É Ver'
f launa
gerðu
sumar
i með
Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Hestamanna-
félagið Gust og eigendur hesthúsanna við Glaðheima um að kaupa af
þeim allar eignimar þar. Verður það gert á grundvelli fyrirliggjandi
kaupsamnings upp á 1,1 milljarð króna fyrir eignimar. Þar er um að
ræða tæplega 40% eignarhlut Engilberts Runólfssonar athafnamanns.
Miðað við það má áætla að í heild muni eignimar kosta bæjarsjóð um
2,5 milljarða kr. Á móti verður hestamönnum sköpuð aðstaða við
Kjóavelli. Viljayfirlýsing um málið var samþykkt samhljóða í bæjar-
ráðiáfimmtudag.
Töluvert hefur verið rætt um þetta á
fundum bæjarráðs í þessari og liðinni
viku. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarmnar, sem skipti um skoðun í
málinu á milii tveggja bæjarráðsfunda,
segir að þótt flokkurinn sé sammála því
að gengið verði til samninga gagnrýni
hann harðlega málsmeðferðina. „Það
er enginn ágreiningur um að taka upp
viðræður við Hestamannafélagið Gust,
ég er á móti því að verðlauna lóða-
braskara með fé úr sjóðum bæjarbúa,"
segir Flosi í bókun um málið.
Gunnar ánægður
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að hann sé ánægður
með að mál þetta sé í höfa og að það
hafi verið samþykkt einróma í bæjar-
ráði. Hann reiknar með að málið verði
svo afgreitt á bæjarstjómarfúndi á
þriðjudaginn kemur. „Við munum svo
byrja að úthluta lóðum þama seinni
part ársins undir atvinnu- og verslunar-
húsnæði þannig að bæjarsjóður kemur
vel út úr þessu dæmi" segir Gunnar.
Hvað varðar ummæli Flosa um hagnað
lóðabraskara af þess-
um kaupum seg-
Gunnar að þess-
ar eignir séu eins
og verðbréf og
þetta sé verðið í
dag fyrir þær. Þeir
hafi hvergi komið
nærri uppkaupum
verktaka á
hest-
hús-
heldur hafi þeir nú verið að koma mál-
efnum Gusts í viðundandi horf fyrir
bæði hestamennina og bæjarfélagið.
Engilbert sáttur
Engilbert Runólfsson, athafnamað-
ur og eigandi tæplega 40% af hesthús-
unum, hafði hug á að kaupa öll húsin og
ætlaði að þróa þar íbúðabyggð: „Þetta
er ekki óskaniðurstaða fyrir mig en
ásættanleg," segir Engilbert. Uppkaup
Engilberts komust í hámæli í febrú-
ar á þessu ári er fyrrverandi formaður
Gusts, Þóra Ásgeirsdóttir ásamt fjöl-
skyldu seldi hesthús sitt fyrir 50 milljón-
ir kr. og lét jafiiframt af störfúm sem for-
maður. 1 frétt sem DV skrifaði um málið
þá kom meðal annars fram að félags-
menn teldu Þóru hafa svikið sig.
Gagnrýna málsmeðferð
„Samfylkingin og fufltrúar hennar
hafa ávallt stutt það að ganga tíl samn-
inga og samstarfs við Hestamannafélag-
ið Gust og einstaka eigendur hesthúsa á
svæði félagsins í Glaðheimum um upp-
byggingu og aðstöðu fyrir hestamenn
í Kópavogi. Ég gagnrýndi
það hins
harðlega að
þessari
meðferð er
ið að verð-
aðila sem
árás í fyrra-
á íþróttafélag
upp-
í samvinnu við Gust
Meirihluti bæjarráðs bókaði á
móti: „Þegar er hafinn undirbúning-
ur að skipulagi á Kjóavöllum og hefur
sú vinna verið unnin í samvinnu við
Hestamannafélagið Gust. Núverandi
svæði Gusts sem er í eigu Kópavogs-
bæjar verður væntanlega nýtt á annan
hátt í náinni framtíð og því ekki óeðli-
legt að bæjaryfirvöld í Kópavogi kanni
möguleika á kaupum á eignum hesta-
manna á svæðinu..."
Fjölmennur fundur
Skömmu eftír að niðurstaða bæj-
arráðs lá fyrir á fimmtudag komu eig-
endur að um 90% húsanna saman til
fundar og lýstu yfir gleði sinni með nið-
urstöðu málsins. Bjamleifur Bjamleifs-
son, formaður Gusts, segir að efnt verði
til almenns félagsfundar á næstunni og
þar lagðar línur fyrir komandi samn-
ingaviðræður. „Það á eftir að samþykkja
þetta í bæjarstjóm en síðan reikna ég
með að við munum hefja samningavið-
ræður við bæjaryfirvöld," segir Bjam-
leiftir.
kaupum á hesthúsum og nemur gróði
þeirra hundmðum milljóna," seg-
ir Flosi í bókun á bæjarráðsfundinum
síðastliðinn fimmtudag. „Það er vond
niðurstaða. í ljósi skipulags í kringum
Glaðheima og þeirrar þröngu stöðu
sem málið allt er í samþykki ég viljayf-
irlýsingu en ítreka óánægju mína með
aðkomu og útkomu harðsvíraðra fjár-
málamanna."
Lóðabrask
Hins vegar lét Flosi Eiríksson bóka
á fundi bæjarráðs fyrir rúmlega viku
síðan: „Ég samþykki hins vegar ekki að
ganga til samninga á grundvelli kaup-
samnings sem gerður hefur verið á
milli „uppkaupsmanna" og forsvars-
manna Gusts um að kaupa af þeim
hesthús á rúmlega 1,1 milljarð króna.
Með því er verið að tryggja þeim aðil-
um er gerðu árás á íþróttafélag í bæn-
um hundruð milljóna króna í gróða...
Það er algjörlega ljóst að atburðarásin í
þessu máli er alls ekki öll komin upp á
yfirborðið og margt sem þarf að skoða
betur. Hestamenn, íþróttafélag þeirra
og svæði, á ekki að dragast inn í lóða-
brask og fjármálagjöminga."
1. Flosi Eiríksson Segir lóðabraskara hagnast um hundruð milljóna króna á áformum
bæjaryfirvalda um að kaupa hesthúsin.
2. Bjarnleifur Bjarnleifsson Niðurstaðan erbáðum aðilum tilhagsbóta.
3. Engilbert Runólfsson Ekki óskaniðurstaða en ásættanlegt.
4. Gunnar I. Birgisson Munum úthluta lóðum á svæðinu seinni part ársins.