Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 6. MAÍ2006
Fréttir DV
•Rekstrartap Rík-
isútvarpsins á síð-
asta ári var 196,1
milljón. f tilkynn-
ingu til Kauphall-
ar íslands í gær
kom fram að ein
af meginástæðum
þess að tap var á
rekstri Ríkisútvarpsins var að ekki
fékkst nægileg hækkun á afnota-
gjöldum til að auka tekjur umfram
kostnaðarþróun. Eigið fé Ríkis-
útvarpsins er neikvætt um rúmar
186 milljónir og segir í tilkynning-
unni að ekki gangi til framtíðar að
reka stofnunina með neikvæðu
eigin fé. Það er skarplega athugað
enda eru öll venjuleg fyrirtæki far-
in á hausinn þegar eigið fé er orðið
neikvætt. Nema RÚV, undir stjórn
Páls Magnússonar, sem er borgað
út af ríkissjóði á hverju ári...
• Og meiraafút-
varpsstjóran-
um Páli Magn-
ússyni. Hann
virðist lesa leið-
ara Fréttablaðs-
ins af athygli.
Eftir að Þor-
steinn Pálsson,
ritstjóri Fréttablaðsins, kallaði Pál
„þulu ríkisstjórnarinnar" í leiðara
um daginn hefur hann ekki sést á
skjánum. Páll hefur lesið fréttirn-
ar í sjónvarpinu frítt af miklum
myndarbrag í allan vetur en virðst
vera hættur. Þökk sé Þorsteini...
•Nýja Fréttastöð-
in NFS átti mis-
jöfnu gengi að
fagna í Gallup-
könnun sem birt-
ist í síðustu viku.
Ljóst er að Ró-
bert Marshall,
yfirmaður stöðv-
arinnar, á mikið verk fyrir hönd-
um ef mið er tekið af þeim aldurs-
hópi sem mest horfir á stöðina.
Langstærstur hluti áhorfendahóps
NFS er kominn yfir sextugt sem
þarf ekki að vera slæmt nema að
því leyti að þessi hópur flokkast
varla undir stærsta neysluhópinn
og höfðar því varla til auglýsenda
nema að afar takmörkuðu leyti...
•Nú um helg-
ina lýkur sýningu
listamannsins
heimsfræga Ól-
afs Elíassonar í
Berlín. Ólafur er
þekktur fyrir að
fara óhefðbundn-
ar leiðir í listsköp-
un sinni og bauð að þessu sinni
upp á þúsund ára gamlan ísklump
inni í sýningarsal. Mikill áhugi var
á sýningunni en í blöðum í Berlín
hefur hann verið kallaður „blekk-
ingameistarinn". Enda kannski ekki
á allra færi að sýna ísklump inni í
húsi án þess að hann bráðni...
•Athafnamaðurinn Árni Johnsen
hefur reist mikinn
skála í Herjólfsdal
í óþökk margra
Eyjamanna sem
þykir Árni frekur
til plássins. Það
er altalað í Vest-
mannaeyjum og
á Suðurlandi að
Árni sé að undirbúa framboð að
ári liðnu og þykir víst að verði próf-
kjör mun Árni vinna það. Slíkt væri
eitur í beinum flokksforystu Sjálf-
stæðisflokksins enda erÁrni með
laskað mannorð svo ekki sé fastar
að orði kveðið...
Landeigandinn Birgir Sörensen á Ottarsstöðum vill að yfirvöld geri litboltamenn í
Paintball ehf. brottræka úr Straumsvík vegna slæmrar umgengni og átroðnings. Hilm-
anMagnússon
segir ásakanir á blendur fyriiftækiniíi óréttmætar
Athafnasvæði Paintbali LögmaðurPaintball
ehf. segir fyrirtaekið fylgja öllum reglum og visar
gagnrýni á bug. DV-mynd: GVA. Samsett mynd
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis glímir nú
við deilu landeigenda á Óttarsstöðum við litboltafyrirtæki í ná-
grannalandinu Litlabæ.
„Viðskiptamenn, gestir og starfs-
menn Paintball ehf. hafa gengið öma
sinna við bifreiðar, nærliggjandi hús
og hvar sem hentar hverju sinni," seg-
ir lögmaður Birgis Sörensen, landeig-
anda á Óttarsstöðum.
Hilmar Magnússon hæstaréttar-
lögmaður mótmælir fyrir hönd Paint-
ball ehf. öllum fullyrðingum og kröf-
um Birgis á Óttarsstöðum. Paintball
er með aðstöðu við Litlabæ sem er
í grennd við menningarmiðstöðina
Straum sunnan álversins í Straums-
vík.
Ummerki um mikla drykkju
Lögmaður Birgis, Ármann Fr. Ár-
mannsson, segir ennfremur í bréfi til
Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis að öll önnur um-
gengni á athafnasvæði litboltamann-
anna sé óásættanleg. Ármann, sem
starfar fyrir lögmannsstofur Ragnars
Aðalsteinssonar, krefst þess að starfs-
leyfi Paintball ehf. verði afturkallað:
„Fylgir starfsemi Paintball ehf.
mikil neysla áfengis viðskiptavina og
gesta. Bjórflöskur, bjórdósir og ann-
að rusl hefur legið eins og hráviði
meðfram veginum að Óttarsstöðum,"
segir lögmaðurinn sem einnig nefn-
ir óþrif af sýrutönkum, sandpokum,
netadræsum, bíldekkjum og fleiru
sem litboltamenn hafi flutt á stað-
inn til að gegna hlutverki í skodeikj-
um þeirra. Ljóst sé að skilyrði starfs-
leyfis séu brotin enda sé um að ræða
mengaðan úrgang.
Stórhætta fyrir vegfarendur
Þá segir lögmaður Birgis að mik-
il hætta stafi af skotmönnunum fyrir
útivistarfólk á svæðinu. „Er bersýni-
legt að fjarlægðar- og öryggismörk
frá leiksvæði að umferðagötu og úti-
vistarsvæði eru langt frá því að ná
150 metrum eins og áskilið er og ekki
eru öryggisnet til staðar á þann veg
að leikur trufli ekki umferð," segir í
bréfi Ármanns þar sem einnig er
fullyrt að litboltamenn nýti sér
í skjóli starfsleyfis frá yfir-
völdum annarra manna /
land án leyfis eig- ^ |
andans sem
hafi orðið fyr-
ir margvísleg-
óþægindum vegna þessa.
Kemst ekki á eigin land
„Til að mynda hefur umbjóð-
andi minn (Birgir) átt í stökustu
vandræðum með að komast
að eignum sínum, og stund-
reynst það ómögulegt
vegna óhemju mikils ágangs
á land þeirra af hálfu bifreiða
og annarra ökutækja við-
skiptavina og gesta Paintball
ehf." skrifar Ármann.
„Fylgir starfsemi Paint-
ballehf. mikilneysla
áfengis viðskiptavina
og gesta"
Kúka ekki við bíla og hús
„Umbjóðandi minn (Paintball
ehf.) hafnar einnig fullyrðingum er
fram koma í nefndu bréfi um að við-
skiptamenn og starfsmenn umbjóð-
anda míns hafi gengið örna sinna við
bifreiðar og nærliggjandi hús.“
Leikmunir en ekki úrgangur
Einnig segir Hilmar að þeir mun-
ir sem Ármann nefni í bréfi sínu sé
hluti eðlilegs umbúnaðar fýrir starfs-
semi Paintball ehf. „Verða leikmunir
á þessu svæði á engan hátt taldir úr-
gangur í skilningi reglugerðar,"
skrifar Hilmar.
Þá hafnar Hilmar því að
áfengi sé haft um hönd á
starfssvæði Paintball
enda sé slíkt bannað
k samkvæmt reglu-
\ gerðumlitbolta:
' V • „Kannast um-
, bjóðandi minn
Æjý (Paintball ehf.) ekki
við að á svæðinu liggi
bjórdósir og annað rusl
eins og hráviði meðfram
veginum frá Óttarsstöðum,
nema að það hafi fokið frá
aðliggjandi lóðum vegna
þess óveðurs sem nýlega
gekkyfir."
Eyþór Guöjónsson
Eigandi Paintball segir
fyrirtækið hafa orðið á
milli i áratuga-
löngum deilum
tveggja landeigenda.
Óttarsstaða hafi skoðað aðstæður í
vetur hafi öryggisnet, skilti og fleira
verið tekið niður og sett í geymslu
þar sem starfsemin hafi legið niðri:
„Með því að setja upp öryggisnet
og skilti til ábendingar fyrir útivistar-
fólk hefur umbjóðandi minn gengið
lengra en lagaskyldan býður," fullyrð-
irHilmar.
Vottorð frá lögreglunni
Að endingu segist Hilmar hafna
því að starfsemi Paintball hafi skað-
leg áhrif og að hún hafi valdið eig-
anda Óttarsstaða óþægindum. Þvert
á móti hafi mikil tiltekt verið gerð
á svæðinu þegar Paintball hóf þar
starfsemi. „Eigendur þess svæðis
sem við erum á í dag og þeir sem eru
að leggja fram þessa ótrúlegu kæru
hafa staðið í erjum í um 30 ár og
því miður erum við að lenda á milli
á þeirra," segir Eyþór Guðjónsson,
eigandi Paintball ehf. við DV. „Heil-
brigðiseftírlitið hafði fýrir þessa kæru
gert úttekt á starfseminni og vottað
að hér væri allt með felldu. Og eft-
ir að kæran barst hafa bæði rfldslög-
reglustjóri og lögreglustjórinn í Hafn-
arfirði lýst því yfir að engin ástæða sé
til að afturkalla starfsleyfið."
Birgir Sörensen Seg-
ist ekki vilja tjá sig
um málið umfram
það sem fram kem-
ur í greinargerð
lögmanns hans.
gar@dv.is
Gert meira en nóg
Lögmaður Paintball
segir það ekki rétt að
hætta stafi af litboltaleikj-
um Paintball ehf. Þegar eigandi
Ragnar Aðalsteinsson Lögmanns-
stofa Ragnars segir Birgi Sörensen
landeiganda á Óttarsstöðum verða
fyrir miklum óþægindum vegna
umsvifa litboltamanna við Litlabæ.
Hrafnaþing veldur usla korter í kosningar
Ingvi Hrafn sakaður um að misnota aðstöðu sína
Ingvi Hrafn Lætur enga kosningastjóra stjórna þvihvað er á dagskrá hjá sér. Og litur á ÓlafF.
sem umhverfisslys.
„Hrafhaþing er undir frétta-
stjóm Ingva Hrafns Jónssonar
og ég byggi þáttinn á því að
tala við þá sem mig langar til
að tala við, þegar mig langar
til að tala við þá um það sem
mig langar til að tala um við
þá. Þetta er heimspekin á bak
við þáttínn," segir Ingvi Hrafn,
fréttahaukurinn mikli og meist-
ari lj ósvakans að margra matí.
En sannarlega ekki allra.
Þáttur Ingva Hrafiis á
NFS var nýverið færðm til
og er nú á „prime tirne" strax
á efdr kvöldfréttum. Efnistök
hans hafa þegar valdið verulegri
óánægju meðal þeirra sem reka
kosningabaráttu.
„Mér finnst það furðuleg ráðstöfun
hjá NFS að setja Ingva Hrafn á besta út-
sendingartíma, rétt eftír fréttír, nú korter
í kosningar. Hann er einarður sjálfstæð-
ismaður og þátturinn ber þess merki,"
segir Magnús Orri Schram, kosninga-
stjóri Samfýikingarinnar.
Ingvi Hrafn hefur svör á reiðum
höndum: „Kosningastjóri Samfýlk-
ingarinnar verður að horfa á
Hrafhaþing og drekka af vör-
um Stefáns Jóns Hafstein,
langhæfasta foringja þeirra,
þegar hann talar máli
flokksins. Hann er hjá mér
hálfsmánaðarlega og ekki
hægt að gæta meira jaihræðis.
Þvílíkt jafnræði að leitun er að
öðru eins," segir Ingvi.
Umdeilanleg ummæli.
Magnús Orri bendir á að
í þættinum séu meira og
minna sjálfstæðismenn
og í fjarveru Ingva Hrafns
var kosningastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, Jón Kristinn Snæ-
hólm, látinn stýra þættinum. „Ég
furða mig á þessum vinnubrögð-
um. Ég vildi gjaman hafa hliðstætt slott
þar sem ég gætí komið mínum áróðri á
framfæri. Ég hef reynslu af því að starfa
við sjónvarp," segjr Magnús Orri.
Sveinn Aðalsteinsson, kosninga-
stjóri Frjálslynda flokksins, tekur í
sama streng og telur þetta alls ekki
sæmilegt.
„Hann hefúr blessaður aldrei gætt
jafiiræðis. Og með ólfldndum hvem-
ig hann lætur og hvemig hann kemst
upp með að láta. Eins og eitthvað
prinsipp að hann sé ósnertanlegur
hvað sem hann bullar. Þetta er vísastí
vegurinn til að gera fólk afhuga fjöl-
miðlum," segir Sveinn.
Ekld stendur á svörum hjá Ingva
Hrafni fremur en fýrri daginn: „Ég tek
ekkert mark á Frjálslyndum. Lít svo á
að þeir séu ekld tfl. Og algert umhverf-
isslys að Ólafur F. Magnússon skyldi
hafa komist inn í borgarstjóm."
jakob@dv.is
Sveinn
Aðalsteinsson
Magnús Orri
Schram