Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Side 14
14 LAUGARDAGUR 6. MAl2006
Fréttir DV
Súludansá
borgarkorti
Mike Smith, borgarstjóri
í New Lenox í Chicago, er í
djúpum skít þessa dagana
eftir að í ljós kom að hann
borgaði með opinberu krít-
arkorti sínu fyrir þjónustu
á VlP-súlustaðnum í borg-
inni. Um var að ræða reikn-
ing upp á 50.000 kr. eftir að
Mike og félagar hans héldu
steggjapartí á staðnum.
Mike segir að um slæma
dómgreind hafi
verið að ræða af
sinni hálfu. Hann
hafi verið sá eini í
hópnum sem gat
borgað reikning-
inn og jafiiframt
segir hann að
borgarsjóður hafi
fengið upphæð-
ina endurgreidda.
Cleese með
fótboltalag
John Cleese úr Monty
Python-hópnum og stjarna
Fawlty Towers-þáttanna hef-
ur samið fótboltalaag fyrir
HM í sumar. Þar koma við
sögu línur á borð við „Ekki
minnast á stríðið" „Þeir
gætu hafa sprengt skyndi-
bitastaðina okkar" og „í
stað þess að bjarga Póllandi
erum við að skora mörk".
Sjálfur segir Cleese að lagið
sé meir til gamans gert en
línan „Ekki minnast á
stríðið" er beint úr ein-
um Fawlty-þáttanna
þar sem Þjóð-
verjar koma í
heimsókn á
hið óborgan-
lega hótel.
Ráðgjafinn
tók konuna
Scott Buetow, 35 ára frá
McHenry County í Illinois,
hefur höfðað mál á hendur
fyrrverandi hjónabands-
ráðgjafa sínum eftir að í
ljós kom að ráðgjafinn átti
í ástarsambandi við eig-
inkonu Scotts. Þau hjón-
in höfðu leitað til ráðgjaf-
ans til að koma skikki á tíu
ára hjónaband sitt. í stað
ráðgjafar hóf Dan Blair ást-
arsamband við
frú Buetow með
þeim afleiðing-
um að hjónin eru
nú skilin að borði
og sæng. Krefst
Scott rúmlega 7
milljóna króna
skaðabóta frá
ráðgjafanum.
Henrikborðar
hunda
Henrikprins, eiginmaður
Margrétar Danadrottning-
ar, hefur komið dýravemd-
unarsinnum í töluvert upp-
nám með því að segjast
elska hunda, þunnskoma
og léttsteikta. Prinsinn
sagði tímaritinu Ud & Se að
hundakjöt bragðaðist svip-
að og kanínukjöt. Þessi ást á
hundakjöti er tilkomin sök-
um þess að Henrik ólst upp í
Víetnam þar sem hundakjöt
þykir sælkeramatur. „Ég hef
ekkert á móti hundakjöti,"
segir prinsinn. „Þessir hund-
ar eru ræktaðir
til manneld-
is, svipað og
kjúklingar."
Það fylgir sög-
unni að prins-
innerheiðurs-
forseti danska
Dachshund-
klúbbsins.
f
Bernardo Provenzano situr nú í einangrun í fangelsi á Ítalíu og bíður þess að réttar-
höldin yfir sér hefjist í næstu viku. Provenzano hefur verið höfuð mafíunnar, Capo di
tutti capi, á Sikiley undanfarin 13 ár en hann hefur eytt síðustu Qórum áratugum í felum
og á flótta undan lögreglunni. Lögreglan fann hann í grennd við Corleone, smábæ á
Sikiley sem löngu er heimsfrægur vegna nafns síns.
í brekku aðeins nokkra kílómetra frá hjarta mafíunnar í smábæn-
um Corleone eru fjórir menn að yrkja jörðina í kringum unga
vínviðarsprota. Þeir vinna fyrir samyrkjubú sem heitir Libera
Terra, eða Frjálst land. Landið hafa þeir fengið að gjöf frá stjórn-
völdum á Sikiley eftir að það var gert upptækt úr höndum mafí-
unnar. Þar sem ein af afurðum búsins er pasta hefur það slagorð-
ið „Berjumst við mafíuna með makkaróni" Þetta er engin
ofurbrandari en fólk á þessum slóðum brosir að honum.
Eitthvað á þessa leið hefst úttekt
BBC á undanfaranum að handtöku
Bemardos Provenzano sem var höf-
uð mafíunnar á Sikiley síðastliðin 13 ár
og hefiir verið í felum og á flótta undan
lögreglunni síðustu íjóra áratugi. Aug-
ljóst er að Provenzano hefur ekld tek-
ist að halda sig í felum og frá handtöku
nema með aðstoð háttsettra stjóm-
mála- og embættismanna á Sikiley.
Enda var hann fluttur í rammgert fang-
elsi í Umbria á meginlandinu aðeins
klukkustund eftir að hann var ákærð-
ur af dómstól í Palermo í síðasta mán-
uði. Provenzano hefur auknefnið U
Tratturi, eða Traktorinn, vegna þeirrar
áráttu sinnar að drepa fómarlömb sín
með því að aka yfir þau á dráttarvél.
Ýmsar sögur á kreiki
Lögreglan á Sikiley getur baðað sig í
sviðsljósinu um stund eftir að hafa haft
hendur í hári Provenzanos en það em
ýmsar sögur í gangi hvemig þetta bar
að. Og stærri spuming í hugum margra
Sikileyinga er hvemig Provenzano
tókst að halda sér utan arma löggæsl-
unnar þrátt fyrir að vera margdæmdur
fyrir morð og aðra glæpi, nákvæmlega
hvemig honum tókst að vera í felum og
jafnframt stjóma stórum alþjóðlegum
samtökum frá lítilli eyju í svo langan
tíma. Fólk ræðir um omerta, eða lög-
mál þagnarinnar, en flestir em á því að
Provenzano hafi fengið hjálp frá valda-
miklum einstaklingum. Maurizio de
Lucia, einn af stjómendum lögreglu-
deildarinnar sem berst gegn mafíunni,
segir að áhrifamiklir stjómmálamenn
og meðlimir yfirstéttarinnar á Sikiley
hafi stuðlað að frelsi Provenzanos öll
þessi ár.
Veit mikið af leyndarmálum
Annar sérfræðingur í málefnum
Provenzanos er blaðamaðurinn Salvo
Palazzolo sem hefur skrifað mikið
um Provenzano. Salvo segir í samtali
við BBC að Provenzano hafi tekist að
vera á flótta allan þennan tíma „...ekki
vegna þess hve klókur hann sé heldur
vegna allra leyndarmálanna sem hann
veit. Það á enn eftir að aflijúpa þessi
leyndarmál." Og sagan segir að þegar
lögreglumenn bmtust inn á bænda-
býlið þar sem Provenzano hélt til þá
stundina hafi hann sagt við þá: „Þið vit-
ið ekkert hvað þið emð að gera." Þetta
er túlkað þannig að Provenzano hafi
verið sannfærður um að bandamenn
hans í háum stöðum á Ítalíu myndu
koma honum til aðstoðar. Það gerðist
ekki núna.
Tók við stöðunni af Riina
Talið er að Provenzano hafi tekið
við stöðunni sem Capo di tutti capi,
eða yfirforingi mafíunnar á Sikiley, af
Salvatore „Toto" Riina árið 1993 þegar
sá síðamefndi var handtekinn og sett-
ur bak við lás og slá fyrir lífstíð. Lengst
af hefur Provenzano haldið sig í ná-
grenni Corleone á ýmsum bændabýl-
um og hefur hann skipt um íverustað
með tveggja til þiggja daga millibili. öll
samskipti hans við umheimirm hafa
farið fram með bréfaskiptum þar sem
menn sem nutu skilyrðislauss trausts
hans hafa verið í hlutverki bréfbera.
Bærinn Corleone hefur verið heims-
þekktur síðan Mario Puzo notaði bæj-
amafiiið sem fjölskyldunafn í bók sinni
The Godfather sem síðar varð að vin-
sælum kvikmyndum. Bærinn er talinn
vagga mafíunnar á Sikiley um þessar
mundir.
Stríðið heldur áfram
Þótt lögreglan á Italíu hafi unnið
stóran og mikilvægan sigur í baráttu
sinni gegn mafíunni með handtöku
Provenzanos er löngu stríði hennar við
þessi glæpasamtök hvergi nærri lok-
ið. „Við höfum náð fánanum en hvar
er herinn?" segir saksóknarinn Lor-
enzo Matasa. „Það er stór her að baki
honum." Nú óttast menn að eftirmað-
ur Provenzanos í stöðu Capo di tutti
capi verði einhver sem telji að blóð-
ugri og sýnilegri aðferðir séu það besta
í stríðinu við lögregluna. Valdabaráttan
meðal annarra mafíuforingja um stöð-
una er þegar hafin og framundan em
óttablandnir tímar fyrir íbúa Corleone
og annarra bæja á Sikiley því valdabar-
átta sem þessi getur auðveldlega kost-
að fleiri en eitt og fleiri en tvö mannslíf.
Hann er skepna
„Hann er skepna," segir Anton-
io Castro, einn fjórmenninganna sem
yrlga jörðina í brekkunni við Corleone
í samtali við BBC. „Hann heftrr drepið
mikið af fólki bæði beint og óbeint Svo
að sjálfsögðu er hann skepna." Castro
segir að þeir fjórir vilji ekki ræða nánar
um þetta mál. Þeir em allir frá sveitinni
í kringum Corleone og þeir óttíst fram-
ö'ðina. Valdabaráttan um eftírmann
Provenzanos sé hafin og nú sé ekki réttí
tíminn til að opna á sér munninn um
þessi mál.