Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Page 36
56 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
Hildur er bókaútgefandi og sem slíkur hefur hún gefið út þó-
nokkrar matreiðslubækur. Hún les mikið af uppskriftum og er
óhrædd við að prófa sig áfram í eldhúsinu en leggur þó mikla
áherslu á að ferskleiki hráefnisins fái að njóta sín.
„Mikilvægasta máltíð dagsins er
morgunmaturinn, ég kemst ekki í
gang fyrr en ég hef borðað morg-
unmat," segir Hildur sem vaknar
snemma alla morgna enda fylgir því
mikil ábyrgð að reka fyrirtæki. „Ég
byrja alltaf á því að fá mér lýsi. Svo
fæ ég mér ab mjólk og músli og ef ég
er í miklu hollustustuði þá fæ ég mér
safaríkan djús úr djúsvélinni minni."
En hin geysivinsæla djúsbók, Enda-
laus orka! kom einmitt út hjá Sölku í
byrjun ársins.
Börnin taka þátt í
eldamennskunni
Hildur er ekki sú eina á sínu
heimili sem hefur gaman af því að
töfra fram rétti heldur skiptist öll
fjölskyldan á og hefur alltaf gert.
„Bömin þrjú hafa öll byrjað að elda
um 10 ára aldur. Fyrst með aðstoð
okkar hjóna en svo þegar þau hafa
náð tökum á þessu hafa þau eldað
einu sinni í viku. Þetta fyrirkomulag
hefur komið sér vel fyrir mig sem hef
alltaf unnið mikið. Svo er þetta auð-
vitað uppbyggjandi þáttur í uppeld-
inu," segir Hildur kát. „Kvöldmatar-
tíminn er líka sá tími dagsins sem öll
fjölskyldan sest niður yfir hugguleg-
um mat og spjallar saman."
Rjúpa á jólunum og skata...
aldrei
Þar sem Hildur ólst upp fyr-
„Mér finnst mikilvæg-
ast í allrí matargerð að
leyfa hráefninu að njóta
sín og ég passa alltaf
upp á að drepa ekki
ferskleikann með alltof
sterkum kryddum."
ir norðan er ekki úr vegi að spyrja
hana hvort það séu einhverjar mat-
arhefðir þaðan sem hún haldi enn
í. „Eins mikið og ég er fyrir að prófa
mig áfram í eldhúsinu þá er allt-
af sami jólamaturinn. Rjúpa og svo
bláber með rjóma í desert. Ég held
mikið upp á bláber og fer í berjamó
á hverju ári. Annars er ég mjög hrif-
in af íslenskum mat, súrmat, slátri,
sviðum og öllu þessu. Kæst skata er
það eina sem mér dettur í hug af mat
sem ég læt ekki inn fyrir mínar var-
ir," segir Hildur og ldígjan leynir sér
ekki. „Það er líka hefð úr móðurhús-
um að hafa hollustu og fjölbreytni í
fyrirrúmi."
Ekki drepa ferskleikann með
kryddbragði
Þegar Hildur fer út að borða finnst
henni gaman að fara á Sjávarrétta-
kjallarann eða til Sigga Hall á Óð-
Hildur Hermóðsdóttir, eigandi Bókaút-
gáfunnar Sölku, er matgæðingur mikill.
Fiskur er í miklu uppáhaldi hjá Hildi en
hún borðar þó helst ekki kæsta skötu.
Hildur býður DV og lesendum upp á lax
eftir sænskri uppskrift.
insvéum. „Mér þykir gaman að fara
út að borða öðru hvoru en þegar ég
er önnum kafinn þykir mér best að
koma heim og slappa af. Það er líka
mjög gaman að halda matarboð, þótt
ég hafi ekki gert mikið af því upp á
síðkastið. Þá legg ég mig alla fram og
prófa ný hráefni eða ný krydd. Mér
finnst mikilvægast í alíri matargerð
að leyfa hráefninu að njóta sín og ég
passa alltaf upp á að drepa ekki fersk-
leikann með alltof sterku kryddi,"
segir Hildur sem notar líka salt í hófi
og lætur fólk frekar bæta á það.
Umvafin girnilegum
uppskriftum
Til þess að nýjar hugmyndir fæð-
ist í matargerð er mjög gott að lesa
sér til. „Við hjá Sölku gáfum nýver-
ið út bókina Delicious Iceland en í
henni má finna uppskriftir eftir hinn
vinsæla kokk Völund Snæ Völund-
arson. Þar má finna gimilegar upp-
skriftir þar sem rík áhersla er lögð
á íslenskt hráefni. Svo erum við að
fara að gefa út tvær til viðbótar eft-
ir Guðrúnu Jóhannsdóttur. Önnur
heitir Hollt og fljótlegt en hin heitir
Hollt og ódýrt. Þetta em svona lidar
og ódýrar bækur í stíl við innihaldið,"
segir matgæðingurinn Hildur sem er
greinilega umvafin gimilegum upp-
skriftum í starfi sínu.
berglind@dv.is
2 msk. óllfuolia.
Rifinn börkur afeinni sítrónu.
1/2 smátt saxaður chili-pipar.
Sjávarsalt og sltrónupipar.
Laxinn erskorinn I hæfilegt stykki,
þræddur upp á grillspjót og
penslaður með olíu og kryddi.
Steiktur 1170°C heitum ofni í 7-8
mínútur.
Quinoa-salat
2 dl quinoa korn.
4 dl vatn.
1 tsk. sjávarsalt.
1-2 dl þurrkaðar apríkósur.
1/2 dl valhnetur.
1/2 dl hesilhnetur.
1/2 dl graskersfræ.
1/2 púrrulaukur.
Salatsósa
7 msk. eplaedik.
1/2 dl óllfuolía.
Smávegis sjávarsalt og svartur pipar.
Melónudýrð í eftirrétt
Hálf hunangsmelóna.
2perur.
2 sm búturafengifer.
Allt sett I safapressu. Þessi safi er
mildurí maga og þvíjafn góður
kvölds og morgna.