Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 21
DV Fréttir Það er verið að rassskella útlendingana „Mér finnst hræðilegt að flokkur sem vill takmarka innflutning út- lendinga til landsins fái meira fýlgi. Þetta eru ekkert annað en fordóm- ar í garð útlendinga og flokkurinn gerir þetta til að fá fleiri atkvæði. Mér finnst þetta ótrúlega ómerkilegt af þeim. Umræðan um útlendinga á fslandi er góð en ég tek þessari umræðu undanfarið sem höfnun fs- lendinga á útlendingum. Mér finnst verið að rassskella útlendingana á íslandi og sýna þeim hvað þeir eru óvelkomnir. ísland þarf á údending- um að halda því það vantar vinnuafl og þessi velmegun á fslandi hefði ekki átt sér stað ef útlendingar hefðu ekki komið til landsins að vinna. Mér finnst yndislegt að búa hér og bömin mín fæddust hér en umræð- an um útlendinga hefur verið einhliða og neikvæð og það er ekki hægt að setja alla útlendinga undir sama hatt. Það er ekki sanngjarnt." Angelica Cantú frá Mexikó, búsett á íslandi í 16 ár og er verkefna- stjóri i túlkunar- ogþýðingarþjónustu. íslendingar eiga ekki ísland „íslendingar eiga ekki ísland, þeir hafa bara búsetu á því og varð- veita það. Mér finnst ekki hægt að stoppa fleiri frá þvi að njóta þess sem það hefitr upp á að bjóða. f Svíþjóð þekki ég þessi mál vel því þar er mikill ijöldi útlendinga og þeir eru stór partur af þjóðfélaginu. Mér finnst sjálfsagt að ræða þessi mál en það þarf að setja betri regl- ur um það hvemig eigi að taka á móti þeim og undirbúa landið betur til þess. Hugsanlega þarf að takmarka straum útlendinga til landsins en þá þarf fyrst að skoða hvert við viljum stefna og hversu marga út- lendinga við viljum fá til landsins. fslendingar verða ríkari þjóð með þvíað umgangast fólk frá öðrum löndum og kynnast þeirra menningu og allir koma með eitthvað með sér sem aðrir geta nýtt sér. Það sem skiptir mestu máli er að auðvelda útlendingum að læra íslenskuna því það er lykilatriði til að geta aðlagast þjóðfélaginu." Matilda Gregersdóttir, búsett á Islandi í 9 ár ogformaður Seenska félagsins á íslandi. Tek ekki þátt í kynþáttahatrí „Mér finnst Frjálslyndi flokkurinn endurspegla kynþáttamisrétti í garð mús- lima þegar þeir segja að aðalhættan stafi af múslimum. Stjómmálamenn verða að passa hvað þeir segja til að fiska atkvæði. Það má ekki mismuna fólki eftir trú- arbrögðum og efnahagur landsins þarf á útlendingum að halda og þess vegna eru útlendingar ekki vandamál heldur hvaða efnahagsstefhu stjórnvöld taka. Efna- hagsleg þörf landsins á að segja til um hversu mörgum útlendingum við getum tekið á móti og grunnurinn að því hversu gott við höfum það í dag er útlendingum að þakka. Ég vii ekki taka þátt í því aö kynþáttahatur grasseri því öll neikvæð um- ræða um útlendinga snertir mig. Ef það er bara talað um það að útlendingar taki vinnu frá íslendingum og stuðli að lækkun launa þá vill enginn fá útlendingana til landsins en ef fólk hugsar um það hvað þeir gefa okkur mikið og stuðla að auk- inni velmegun í landinu þá snýr málið öðruvísi við. Ég er ánægður hér og ísland er mitt land í dag en það þarf líka að endurskoða það hver er fslendingur í dag, við erum öll íslensk." Salmann Tamimifrá Palestinu, búsettur á íslandi í 35 ár ogformaður Félags múslima á íslandi. il h Verðum að blandast „Mér finnst umræðan um útlendinga hér vera bæði jákvæð og neikvæð. Það eru kynþáttafordómar í öllum löndum og h'ka hér en við verðum að passa að ýta ekki undir fordómana því ísland er lítið land og við búum í einu sam- félagi og höfum gott af því að blandast. Það sem þarf að gera er að hlúa betur að fólkinu sem kemur til landsins og vera betur undirbúin tii að veita þeim þjónustu, upplýsingar um rétt sinn og möguleika á að læra málið. Hvað með okkur íslendinga? Við förum út um allan heim og setjumst að í öðrum lönd- um og finnst það sjálfsagður hlutur. Ég hef tekið eftir því að undanfarin tíu ár eru meiri fordómar í garð útlendinga og sérstaklega Asíubúa. Stundum þegar ég fór út að skemmta mér þá komu íslenskir karlmenn til mín og spurðu mig hvað ég tæki mikið fyrir blíðu mína. Mér finnst ekki spuming um það hvort eigi að takmarka komu útlendinga til landsins heldur hvemig við tökum á móti þeim." Maja Jill Einarsdóttir, búsett á fslandifrá tveggja ára aldri ogfélagi ílnd- verska félaginu á tslandi. | Ú Vel ísland umfram önnurlönd „Mér finnst umræða um þessi mál nauð- synleg en hún má ekki vera neikvæð. Til að fólk geti verið upplýstara þarf að ræða mál- in. Ég hef búið í sjö löndum og ég vel ísland. Ég er mjög sáttur og hef ekki undan neinu að kvarta. fslendingar em það opnir að þeir vita að þeir tapa ekki á því að að fá brot af öðrum menningarheimum til landsins. Það má held- ur ekki gleyma því að þessir útlendingar eru mæður, feður, makar og vinir íslendinga og em hluti af íslenskum íjölskyldum og þetta á fyrst og fremst að vera eitt þjóðfélag sem liflr í sátt. Mér finnst ekki rétt að takmarka innflutn- ing útlendinga til landsins. Það er þáttur í þróun mannkynsins að flytja á milli landa og heimutinn er alþjóðlegur þannig að takmarkanir eiga ekki heima á tímum hnattvæðingar. Þó að til sé fólk sem er sammála Frjálslynda flokkn- um þá endurspeglar það ekki hugsunarhátt fslendinga." Milton Femando Gonzalez Rodriguez, hálfur Spánverji oghálfur Kólumbíumaður og búsettur á íslandi í nokkur ár. Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is kRNIR KOMNIR Ótrúlegt verð Glervaskur og gosbrunna krani Uppl. í síma 8938006 Pálmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.