Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Helgin PV Helga Braga Jónsdóttir, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir og Sigríður Klingenberg bjóða upp á skemmtilega og spennandi kvennaferð til Boston í desember. Helga Braga ætlar að skemmta konunum, Sigríður að spá fyrir öllum á hverju götuhorni og Eva Dögg ætlar að fræða um tísku. Stefnt er á að koma hrukkulausar heim aftur því stöllurnar þrjár lofa frábærri skemmtun og hlátursköstum, djammi og jólainnkaupum. KONUR ERU KONUM BESTAR „Ég vil endilega fá þær kon- ur með sem eru einar og hafa ein- hverra hluta vegna engan ferðafé- laga,“ segir Sigríður Klingenberg spákona en hún ásamt þeim Evu Dögg Sigurgeirsdóttur og Helgu Brögu Jónsdóttur leikkonu býður upp á kvennaferð til Boston með Icelandair 14. til 17. desember næstkomandi. „Um leið og við komum út á ilugvöll mun léttast á okkur brún- in og við munum örugglega koma hrukkulausar heim eftir allan hlát- urinn," segir Sigríður og bætir við að í svona ferðum myndist oft frá- bær vinskapur milli kvennanna. Skemmtiferð á andlegum nótum Helga Braga og Eva Dögg taka undir og segja að mæðgur, systur og vinkonur séu duglegar að bóka sig saman en að þær sem hafi eng- an ferðafélaga séu einnig velkomn- ar. „Við verðum í hóp og það er svo gaman að kynnast nýju fólki og eignast nýjar vinkonur að það er tilvalið í svona ferð,“ segir Helga Braga. „Þær sem rnæta einar eru líka oft að skemmta sér langbest því þá þurfa þær ekki að hugsa um neinar aðrar en sjálfar sig og að hafa gaman," segir Eva Dögg og bætir við að þótt um skemmtiferð sé að ræða verði einnig hugað að and- legu hliðinni. Sigríður sé snillingur í að hafa gam- an um leið og hún kenni konum að láta sér líða betur. „Við munum tengja okkur saman og án þess að ferðin breytist í AA-fund þá mun- um við allar ræða um okkur, hvað við um börnin okkar. Og ef einhverj- um líður illa verður unnið úr þeim málum svo við verðum á andleg- um nótum á milli þess að versla, dansa, djamma og drekka rauðvín," segir Sigríður. Planið er að fara ekki í of stór- um hópi, best væri að þær væru á milli 20 til 30 talsins. „Við viljum geta haldið utan um allan hópinn svo við getum kynnst vel og deilt reynslu okkar, vonum og gleði." Enginn drepist úr skít ennþá Stöllurnar þrjár hafa áður farið saman í svona ferðir og konurnar sem farið hafa með þeim hafa verið á öllum aldri, eða alveg frá 16 ára upp í 86 ára. „Þær elstu eru yfirleitt hrikalega hressar og hættar að hafa áhyggjur af öllu eins og er að drepa þjóðfélagið. Sjálf legg ég til að fólk þrífi ekk- ert fyrir jólin heldur kveiki bara á kertum og þrífi svo í vor. Hingað til hefur enginn drepist úr skít og því er algjör óþarfi að vera að stressa sig yfir svona lagi hrútakonurnar eru gjarnar á," segir Sigríður og mælir sérstaklega með því að hrútakonurnar mæti í ferðina og sleppi þessu þrifæði sínu. Spáspilin notuð á karlana Eva Dögg segir Boston hafa kom- ið sér skemmtilega á'óvart. Borgin sé bianda af evrópskri og amerískri borg og alveg ótrúlega falleg. „Boston er uppáhaldsborgin mín í Ameríku," segir Helga Braga og bætir við að hún geti ekki beð- ið eftir ferðinni. „Ég hef farið þarna nokkrum sinnum fýrir jólin og borgin er alveg rosalega sjarme- randi. Þaðan koma margir grínistar en borgin er þekkt fyrir húmor, góð- an mat og létt og skemmtilegt and- rúmsloft. Svo er dollarinn á hraðri niðurleið sem skemmir ekki fyrir og það verður þægilegt að rumpa jólagjöfunum af fyrir nánast eng- an pening," segir hún og bætir við að þær sem ekki verða þegar kom- ar í jólaskap munu pottþétt komast í rétta skapið í ferðinni. Sigríður segir að veðrið sé yfir- leitt mjög gott í Boston í desember og djammið í borginni sé alveg frá- bært. Þegar þær Eva Dögg hafi farið þangað í kynnisferð hafi þær lent á séns á hverju götuhorni, með mis- aðlaðandi karlmönnum þó. „Það er svo frábært að vera með Siggu og Helgu í útlöndum. Sigga er með spáspilin á ensku á lofti allan tím- ann og notar þau sem pikköpplín- ur fyrir okkur sem erum á lausu," segir Eva hlæjandi. „Hún er alveg ótrúleg og ég lofa að það kemur engin í fýlu heim aft- ur,“ segir Eva og bætir við að það myndist alltaf spes stemming í svona ferðum. „Það að konur séu konum verstar er bara bull því kon- ur eru svo sannarlega konum best- ar í svona ferðalögum." „Sigga er með spáspil- in á ensku á lofti allan tímann og notarþau sem pikköpplínur fyr- ir okkur sem erum á lausu" Nauðsynlegt að kúpla sig út úr daglegu amstri „Við astlum að hlæja út í eitt sem er alveg rosalega mikilvægt í skammdeginu," segir Helga og bæt- ir við að hún, Sigga og Eva Dögg muni örugglega skemmta sér jafn vel og hinar. „Eg væri ekki að þessu ef þetta væri ekki svona rosalega skemmtilegt. Ég hlakka alveg ofsa- lega til og er búin að bíða eftir þess- ari ferð lengi, nú er draumurinn loksins að verða að veruleika. Við munum taka frí frá öllu amstrinu heima fyrir og í raun og veru hlaða batteríin fyrir jólin. Við íslend- ingar erum þekktir fyrir að vinna eins og vitleysingar og það er nauð- synlegt að komast aðeins í burtu og kúpla sig út úr öllu og gera eitt- hvað fyrir sjálfan sig og hafa gam- an," segir Helga að lokum. Nánari upp- lýsingar fást á vefnum ice- landair.is/serfer- dir en einnig er hægt að hringja beint í Sigríði BClingenberg í síma 899 0889. indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.