Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Síða 32
52 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Helgin PV Margir telja aö moonistar heyri sögunni til. Þessi trúarhópur hafi verið upp á sitt besta á áttunda áratugnum en síðan lognast út af. Svo er ekki og moonistar hafa verið starfandi á íslandi í þrjátíu ár. Boðskapur samtak- anna er umdeildur og með tilkomu Schengensáttmálans var sr. Moon settur á svartan lista. Aðeins Moon getur frelsað heiminn Fyrir nokkrum vikum kom inn á ritstjórnarskrifstofur DV maður sem óskaði eftir viðtali og bauð okkur í framhaldinu að sækja kynningarfund hjá samtökum sínum. Þegar boðið var afþakkað mætti hann aftur, annar fundur var í bígerð. Hann var frá Unificat- ion Church, trúfélagi moonista. Forvitni okkar var vakin og leituð- um við því til sérfræðings um málið. „Hugmyndafræði sameiningar- kirlqunnar gengur út á sameiningu allra manna, hópa og trúarbragða þeg- ar til lengri tíma er litið," segir Bjami Randver Sigurvinsson, sem vinnur nú að doktorsritgerð sinni um trúarhreyf- ingar á íslandi. „Þekktastir eru þó með- limimir um allan heim sem moonist- ar enda íylgismenn trúarleiðtogans sr. Sun Myung Moons. Hér á landi notuðu samtökin þó lengst af heitið Samtök heimsfriðar og sameiningar, en á síðari árum hafa þau frekar nefnt sig Heims- ffiðarsamband fjölskyldna. í raun er til aragrúi alls kyns félaga um afinörkuð málefni sem tengjast þessum samtök- um og þekkjast þau oftar en ekki á því að orðin heimsfriður og sameining er að finna í heitum þeirra. Samtökin hafa verið starfandi hér á landi frá miðj- um áttunda áratugnum en þau hafa alla tíð verið frekar fámenn og er stór hluti meðlimanna innflytjendur sem fluttust hingað gagngert í þágu mál- staðarins eða gengu í hjónaband með íslendingum. Heimsfriðarsamband fjölskyldna var nýverið viðurkennt op- inberlega sem trúfélag hér á landi og er skráð sem slíkt hjá Hagstofúnni. Það er hins vegar ekki fjölmennt og eru virkir meðlimir með bömum aðeins á ann- an tuginn." Umdeilt hvort félagið sé kristið Er þetta kristið félag? „Það er umdeilt hvort það geti talist kristið. Orðfærið og hugmyndafræð- ina sækja þeir klárlega mikið til í krist- indóminn en um leið að nokkru leyti einnig til annarra trúarbragða og þá ekki síst til þjóðtrúar og sjamanisma í Kóreu þaðan sem trúfélagið er runnið. Margir moonistar líta á sjálfa sig sem kristna en þó ekki allir og fer það aðal- lega eftir trúarlegum bakgrunni hvers og eins. Raunar hefúr sr. Moon mark- visst dregið úr starfsemi Sameiningar- kirkjunnar sem trúarstofiiunar á liðn- um fimmtán árum og hvatt fylgismenn sína í staðinn til að sækja aftur til sinna gömlu trúfélaga eða trúarbragða í von um að það megi verða til að draga úr félagslegri einangrun trúarhópsins og auka að sama skapi áhrif boðskapar- ins innan sem flestra annarra trúfé- Stcingrímur Hermannsson fór fyrir nokkrum árum á ráð- stcfnu sem moonistar héldu. „Ég fór á friðarráðstefnu sem þeir héldu en annars þeldd ég h't- ið til samtakanna. Samtöldn sem héidu þcnnan fúnd cru stofnuð af Smi Myung Moon sem er stofnandi Moon-safn- aðarins. Þarna voru menn eins og Gorbatsjov og fleiri þjóð- höfðingjar," segir Stein- grímur sem scgir svo frá stuttum kynnum súium af Sun Myung Moon: „Ég hitti Moon sjálf- an og tók í hönd- ina á honum cn talaði ekki neitt við hann. Hann laga, ekki síst í siðferðilegum efhum. Þannig hefur sr. Moon í raun verið að reyna að brjótast úr viðjum sértrúar- safiiaðarformsins í von um meiri áhrif. Kenningar moonista ganga út á að finna sameiginlegan kjama allra trú- arbragða og leita leiða til að sameina þau þannig að heimsfriður komist á og heimurinn verði raunverulegt guðs- ríki, nokkuð sem syndafaflið kom í veg fyrir á sínum tíma." Viðvörun biskupa og vígslubiskupa Bjami Randver segir að frœðimenn og kirkjudeildir líti fremur á samtökin sem nýtrúarhreyfingu en kristna. „Þeir sem ganga lengst í gagnrýn- inni á trúarlegum forsendum kalla trú- félagið hreinlega villutrú og hafa ófá- ir varað við því, meðal annars ýmsir biskupar og vígslubiskupar þjóðkirkj- unnar á liðnum áratugum. Þrátt fyr- ir að kenningar moonista þyki mjög á skjön við þann postullega kristindóm sem helstu kirkjudeildir kristindóms- ins eru sameinaðar um hefur það samt ekki komið í veg fyrir jákvæð samskipti þeirra við marga kristna trúarleiðtoga, einkum í Bandaríkjunum, en slík sam- skipti eru þó yfirleitt grundvölluð á sameiginlegum baráttumálum í sið- ferðilegum efnum." Syndafallið kynferðislegt „Moonistar Ííta svo á að hjónaband- ið og þar með fjölskyldan sé grundvall- arstofriun samfélagsins og beri að hlúa að henni og virða helgi hennar. Synda- fallið er túlkað sem kynferðislegt en þar hafi forfeður mannsins, Adam og Eva, haft mök áður en þau höfðu verið gef- in saman og er syndafallssagan heim- færð upp á aðstæður mannsins í dag. Moonistar segja að krossdauði Jesús hafi ekki verið vilji Guðs heldur hafi hann útvalið hann til að ganga í heilagt hjónaband og eignast böm án erfða- syndar en þar sem hálfbróðir hans, Jó- hannes skírari, sveik hann hafi ráða- menn gyðinga ekki getað tekið hann trúarlega sem raunverulegan messías og því krossfest hann. Fyrir vildð hafi boðskapur Jesú aðeins náð að veita þeim andlegt frelsi sem við honum hclt síðan ræðu á þcssari ráðstefiiu. Hann Moon kom mjög vel fyrir, reyndar mjög ákveðinn á sínum skoðunum. Þessi samtök hafa verið mjög gagnleg ég hitti þarna fullt af fólki af mörgum trú- arhópum og maður heyrði mörg fróðleg sjónarmið. En annars þá þekki ég litið tll ^ þessara moonista. Ég fór á tvær svona ráðstefnur og þær voru mjög góðar. Steingrfmur Hermannsson Hitti leiðtoga moonista á ráðstefnu fyrir nokkrum árum. „Samtökin hafa ver- ið starfandi hér á landi frá miðjum áttunda áratugnum en þau hafa alla tíð verið frek- ar fámenn og er stór hluti meðlimanna inn- flytjendur sem flutt- ist hingað gagngert í þágu málstaðarins eða gengu í hjónaband með íslendingum. Það er hins vegar ekki fjöl- mennt og eru virkir meðlimirmeð börnum aðeins á annan tuginn." tóku en allt mannkynið hafi áfram ver- ið í viðjum erfðasyndar og búi því enn við veraldlegt böl. Þar sem Jesú var orð- ið ljóst undir lokin að frelsunarhlutverk hans myndi mistakast hvað þetta varð- ar, segja moonistar að hann hafi spáð fyrir um endurkomu annars messíasar tæpum tvö þúsund árum síðar í Norð- ur-Kóreu." Það sem Jesú mistókst... „Sr. Sun Myung Moon er því álit- inn messías, „drottinn endurkomunn- ar" eins og það er oft orðað, sem send- ur hafi verið af Guði til að gera það sem Jesú mistókst; að frelsa mannkynið líkamlega og koma á sönnu guðsríki á jörð eða að minnsta kosti forsend- um þess. Frelsunarhlutverk sr. Moons er meðal annars fólgið í því að stofna fyrirmyndarfjölskyldu, helgaða Guði, eignast böm án erfðasyndar og vígja fylgismenn sína og í raun alla sem það vilja í slíkt hjónaband þannig að þeir og afkomendur þeirra nái að breiða guðs- ríki smám saman út um alla jörð. Þá tala moonistar sömuleiðis um þá sem messíasa yfir sínu fólki sem fengið hafa slíka vígslu hjá sr. Moon. Eitt af því sem sr. Moon er hvað frægastur fýrir em einmitt fjöldabrúðkaupin en fregnir af hverju meti hans á fætur öðm í þeim efnum hafa ratað á forsíður dagblað- anna. Sr. Moon kemur aðeins nálægt makavali afkomenda gamalla fylgis- manna sinna núna en yfirleitt er þetta í höndum leiðtoga staðbundinna safn- aða og er enginn sagður neyddur til neins. Ekki em einu sinni gerðar kröf- ur um að hjónaefnin séu moonistar en þó er jafiian talað um mikilvægi sterkr- ar siðgæðisvitundar. Dæmi em um ís- lendinga sem gengið hafa í hjónaband með þessum hætti og hafa birst fregn- ir um slíkt og jafnvel viðtöl í íslenskum fjökniðlum." Lagði djöfulinn að velli „Sr. Moon er einnig sagður athafiia- samur í andaheiminum þar sem hann hefur lagt sjálfan djöfulinn að velli og fer þar mikið boðunarstarf fram und- ir handleiðslu hans og forystu með- al annars tveggja framliðinna sona hans," bætir Bjami við. „Ótölulegur fyöldi hjóna er sömuleiðis sagður hafa fengið vígslu frá sr. Moon fyrir handan og hafa moonistar gefið út fjölda bóka með vitnisburðum þekktra framlið- inna manna sem gengið hafa til liðs við hann þar, svo sem kommúnistaleiðtog- amir Marx, Lenín og Stalín, guðfræð- ingamir Lúther, Bonhoeffer og Tillich og trúarleiðtogamir Jesús, Búddha og Múhammeð. Moonistar em því ekki síður áhugasamir um andaheiminn og spíritisma en siðferði, hjónaband og heimsfrið." Er margt ólíkt með kenningum moonista og þjóðkirkjunnar? „Ef kenningar moonista væm bom- ar saman við kenningar kirkjudeilda á borð við þjóðldrkjuna væri hægt að til- greina harla margt sem væri þar ólíkt en mikilvægustu atriðin varða þó skiln- ing þeirra á Jesú, krossinum og hlut- verld messíasar. Það verður að teljast harla alvarlegt út frá sjónarhóli post- ullegs kristindómsins þegar fram kem- ur trúarleiðtogi sem heldur því fram að hann sé messías enda litið svo á að Jesús sé hinn eini sanni messías, Krist- ur eins og orðið er jafiian þýtt." Jesús opinberaðist Moon Hver er saga Moons? „Sr. Moon er fæddur í Norður-Kór- eu árið 1920 og vom foreldrar hans kristnir. Trúarlegur bakgrunnur hans virðist vera sambland af kalvínisma, hvítasunnuboðskap og spíritískri þjóð- trú. Hann segir að Jesús hafi opinber- ast sér þegar hann var 16 ára og feng- ið sig tQ að verða messías og þar með frelsara heimsins en við hafi tekið níu ára löng barátta hans í andaheiminum þar sem hann lagði djöfulinn að lok- um að velli. Hann stofnaði Sameining- arkirkjuna árið 1954 en þremur árum síðar kom aðalritning hennar út, Hið guðdómlega lögmál. Fyrri eiginkona sr. Moons hafði skálið við hann eftir til- tölulega stutt hjónaband en árið 1960 gekk hann að eiga Hak Ja Han sem er núverandi eiginkona hans og em þau jafnan kölluð „hinir sönnu foreldrar" af moonistum." Heilaþvottur? „Trúboð moonista var framan af að mestu bundið við Suður-Kór- eu og Japan en í kringum byrjun átt- unda áratugarins efldist trúboð þeirra á Vesturlöndum til muna, svo mjög að ættingjar og vinir ungs fólks sem geng- ið hafði til liðs við samtöldn stofriuðu sérstök baráttusamtök til höfúðs þeim á þeirri forsendu að þama væri um stórhættulegan trúarhóp að ræða sem heilaþvoði fómarlömb sín gegn vilja þeirra. Jafnframt komu fram sjálfskip- aðir sérfræðingar sem foreldrar og aðr- ir ættingjar ungra en sjálfráða moon- ista réðu til að ræna þeim og „afforrita" þá á afviknum stöðum þar tilþeir sam- þykktu að trúarhópurinn væri raun- verulega hættulegur og þeir væm til- búnir til að taka upp fyrri lífshætti á ný. Eins og gefúr að skilja var hér um gróf mannréttindabrot að ræða gagn- vart þeim sem gengið höfðu til liðs við trúarhreyfinguna enda rötuðu íjöl- mörg slík mál fyrir dómstóla sem jafn- an tóku málstað moonista. Ásakanir um heilaþvott vom þó lengi tíðar og vom moonistar einn þeirra trúarhópa sem vom hvað mest bendlaðir við slfld, ekki síst í fjölmiðlum en einnig í kvik- myndum og skrifum ýmissa verald- legra baráttusamtaka gegn meintum valdboðskenndum strangtrúarhóp- um. Trúarlífsfélagsfræðingar fengu því snemma áhuga á moonistum og hafa fjölmargar rannsóknir verið gerðar á þeim, ekki síst hvað varðar trúskipti og félagslega stöðu trúarhópsins og meðlima hans. Þekktustu rannsóknina gerði Eileen Barker prófessor við Lond- on School of Economics snemma á ní- unda áratugnum en hún leiddi í ljós að ásakanimar á hendur moonistum um heilaþvott stæðust ekki þar sem þorri þeirra sem tengdist trúarhópnum til lengri eða skemmri tíma yfirgæfi hann af fúsum og frjálsum vilja." Tengdadóttir í felum „Sennilega var versta áfallið fyr- ir trúarhreyfingu sr. Moons þegar tengdadóttir hans, Nansook Hong skildi við eiginmann sinn og fór í felur með böm þeirra en nokkxu síðar sendi hún frá sér bók um vem sína í innsta hring fjölskyldunnar og dró þar upp afar neikvæða mynd af henni. Trúar- bragðafræðingar tala um bókina sem kom út árið 1998 sem trúverðuga og hefúr sr. Moon sjálfur gengist við því að hann hafi vanrækt eigin fjölskyldu meðan trúarhreyfingin átti hug hans allan. Bókin varð þó til þess að ýmsir meðlimir trúarhreyfingarinnar sögðu skilið við hana, meðal annars hér á ís- landi." Framámenn mæta á ráðstefnur Moons „Með falli kommúnismans dró sr. Moon verulega úr beinum stjómmála- afskiptum og hefur þess í stað varið mestri orku samtakanna í ráðstefhu- hald með trúarleiðtogum, stjómmála- leiðtogum og ýmsum öðrum framá- mönnum frá sem flestum löndum til að efla almenna siðferðisvitund og styrkja Steingrímur Hermannsson Moon kom vel fyrír

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.