Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 38
58 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
Helgin DV
Guðjón Arnar Kristjánsson fann ástina í Póllandi. Hjónaband hans og Maríönnu
Barböru hefur verið hamingjuríkt enda segir hann Pólverja hið besta fólk. Hjónin eru mjög
ósátt við þann rasistastimpil sem meðlimir Frjálslynda flokksins hafa fengið fyrir það sem þau telja
opinskáa umræðu um málefni innflytjenda.
„Mve/fn
hmþeti
ástwðfyr
*
bítandi frostinu kemur stór og
mikill maður gangandi frá Al-
þingishúsinu, honum við hlið
er Ijóshærð kona nokkru yngri.
Konunni er augljóslega kalt enda
frostið mikið. Hún réttir hendur
sínar til mannsins og hann yljar
henni með ástúðlegum svip. Þetta
eru þau Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda flokks-
ins, og eiginkona hans Maríanna
Barbara Kristjánsson, starfsmað-
ur á leikskóla í Mosfellsbæ.
Ástin í Póllandi
Ástin á milli þeirra kviknaði í
Póllandi árið 1987. Guðjón var þá
skipstjóri og hafði siglt togaran-
um Páli Pálssyni frá Japan til Is-
lands 1973 og til Póllands í endur-
byggingu 1987. I hafnarborginni
Gdynia dvaldi hann í um það bil
eitt ár. Sú dvöl skilaði honum ekki
bara endurbyggðu skipi heldur
nýrri konu.
„Ég veit nú ekki alveg hvort
þetta hafi verið ást við fyrstu
sýn,“ segir Guðjón og lítur kank-
vfslega á konu sína. „Ég var nú
orðinn rúmlega fertugur og átti
fimm börn, þannig að þetta var
ekki mjög ungæðisleg ást, held-
ur meira eins og gengur og gerist
hjá fólki," segir Guðjón en tvö ár
voru liðin á þessum tíma frá því
að hann og fyrrverandi eiginkona
hans Björg Hauksdóttir skildu en
fyrir það hjónaband hafði hann
eignast tvö börn.
Barbara var einnig fráskilin og
átti tvö börn með pólskum manni.
Það var því barnmargt á heim-
ili þeirra strax frá upphafi en það
segja þau bæði að hafi ekki spillt
fyrir, þvert á móti.