Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Side 58
78 FÚSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
Slðast en ekki slst DV
DÓMSTÓLL
götunnar
IðrastÁmi Johnsen
gjörðasinna?
„Nei, það finnst mér ekki. Mér finnst
r skömm að þvl að hann fari á þing og slæm
skilaboð til unga fólksins"
Gréta Ingimarsson, ellilífeyrisþegi
„Já, mér finnst hann hafa iðrast nóg og ég
styðhannáþing."
Þórir Erlingsson, verkamaður
„Já, hann hefur gert það og er búinn að
taka útsina refsingu. Ég heffundið fyrir
fordómum I minn garð þrátt fyrir að ég sé
búinn að taka útmína refsingu. Árni á
fullan rétt á sér og ég veiti honum minn
stuðning.“
Sævar Ciesielski
„Getur maður vitað það?Annars fannst
■"* mér kjánalegt afhonum að segjast hafa
gert tæknileg mistök.“
Berta Guðmundsdóttir, ellilífeyrisþegi
„Ég vil ekkifáhanná þing. Vissulega á fólk
að fá fyrirgefningu en ekki I hans starfi.“
Hólmfríður Petersen, þjónustustjóri
Kringlunnar
„Nei, llklega ekki en ég ersamtekki á móti
þvl að hann fari á þing.“
Anna María Þorkelsdóttir, nemi
„Já, ég heldþað.“
Már Mortensen
„Já, og mér finnst leiðinlegt hvernig ástsæll
tónlistamaður getur gert lltið úrÁrna.
' • Hann er búinn að taka út slna refsingu."
Kristinn Haukdal Styrmisson
, „Ég er bæði með og á móti Árna en mér
fannst hann hrapa mikið I áliti þegar hann
talaði um aö hafa gert tæknileg mistök."
Magnús Agústsson, fyrrverandi
flugmaður
Sykurmolarnir spila í Laugardalshöll í kvöld
Múm og Rass hita upp
Hljómsveitin Sykurmolarnir ætl-
ar að koma saman að nýju eftir 14
ára hlé með stórtónleikum. Tón-
leikarnir verða í kvöld í Laugardals-
höli og verður ekkert til sparað. Það
verða hljómsveitimar Múm og Rass
með Óttari Proppé sem hita upp fyr-
ir Sykurmolana.
Búið er að selja um þúsund miða
til erlendra aðdáenda hljómsveit-
arinnar og hefúr verið töluverður
áhugi hér á landi.
„Þettá er svona eins og að hjóla
mikið að þetta var til í hausnum,"
segir Björk Guðmundsdóttir um
hvernig það hafi verið að byrja að
æfa gömlu Sykurmolalögin aftur
fyrir tónleikana sem verða í kvöld í
Laugardalshöll.
Björk og Rass Það var mikið fjör á
blaðamannfundi sem Sykurmolarnir héldu á
barnum Sirkus.
„Það eru kannski svona tækni-
atriði eins og textarnir sem ég var
aðeins búin að gleyma," segir Björk
og bætir við að þau hafi hlustað að-
eins á plöturnar til að rifja upp sum
lögin.
„Sum lög verða sungin á íslensku
og önnur á ensku. Ég held að það séu
aðeins fleiri á íslensku," segir Björk
en Sykurmolarnir sungu yfirleitt lög-
in sín á íslensku þegar hljómsveitin
spilaði hér á landi.
Þegar Björk er spurð um hvort það
hafi ekki verið erfitt að velja þau 17
lög sem þau ætla að spila á tónleikun-
um þá segir hún að hljómsveitin hafi
kosið hvaða lög yrðu spiiuð í Höllinni
í kvöld.
„Það vom 14 lög sem allir voru
sammála um og þau lög sem fengu
minna en 4 atkvæði fengu ekki að
vera með," segir Björk og bætir við
að hún sé orðin spennt fyrir tónleik-
ana.
Jóhannes í Bónus litríkur í
sjónvarpinu Keypti snobb-
trefil í Magasin du Nord
Fyrir heimsborgara Klawsklp#
ameriskur still rned evrópskurrml
bhe, wgir á heima^iöu Gant urrm
fötin '■em þeir framleida.
Stórkaupmaðurinn Jóhannes
Jónsson í Bónus sást skarta ansi
skrautiegum trefli í sjónvarpinu í
vikunni. í fréttum sást Jóhannes
mæta ásamt lögmanni sínum í yf-
irheyrslu til starfsmanna embættis
ríkislögreglustjóra vegna rannsókn-
ar á meintum skattalagabrotum er
tengjast starfsemi Fjárfestingafé-
lagsins Gaums og mátti þá sjá hann
bera trefilinn góða.
„Já, hann er fallegur þessi trefill.
Hann er líflegur. Þegar menn eru líf-
legir þá geta þeir skreytt sig líflega,"
segir Jóhannes og hlær. „Þetta er bara
Gant-tíefill sem var keyptur í Maga-
sin du Nord í Kaupmannahöfn."
Ef skoðuð er heimasíða Gant,
segjast þeir framleiða vörur f
klassískum, amerískum
stíl með evr-
ópskum blæ. Sem sagt vörur fyrir
sanna heimsborgara.
„Já, þetta er voðalega fi'nt merki,
annars væri ég ekki í því. Ég er svo
snobbaður," segir Jóhannes og skelli-
hlær.
„Ég keypti hann í vor. En mig
minnir reyndar að konan hafi keypt
hann, ég hef ekki svona mikil völd,"
segir Jóhannes og bætir við að hann
sé mikill treflamaður og líði vel með
trefil um hálsinn.
„Þetta er líka til að flikka upp á
útlitið," segir Jóhannes
?■ sem greinilega tekur
sjálfan sig ekki of al-
varlega.
myrdal@dv.is
Magasin du Nord Baugur erstærsti eigandiþessa þekkta, danska vöruhúss sem
Jóhannes keypti trefilinn góða I.
Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð er nú við tökur á Islandi
Gerir samninga við sjónvarpsstöðvar víða í Evrópu
Helgi Fetixson Við tökur á mynd sinni um Skaftfelling VE30 fyrr Isumar. Skaftfellingur þykir
merkisskip og hvllir nú lúin bein á safni I Vík I Mýrdal. Skipverjar á Skaftfellingi björguðu meðal
annars þýskri kafbátaáhöfn I seinni heimsstyrjöldinni en ýmsum áður óþekktum viðburðum
eru gerð skil i myndinni.
Nýlega var haldin kvikmynda-
kynning í Árósum í Danmörku þar
sem Felixfilm, fyrirtæki Helga Felix-
sonar, náði samningum um heim-
ildarmynd sína The Antagonist of
Dreaming, sem fjallar um listakon-
una Marianne Greenwood. Norski
kvikmyndasjóðurinn ákvað að styrkja
myndina og sjónvarpsstöðvar á öll-
um Norðurlöndum hafa ákveðið að
taka hana til sýningar auk þess sem
samningar standa yfir við ZDF-Arte
í Þýskalandi um kaup á myndinni.
Helgi er nú staddur hér á landi við
framhaldstökur á mynd sinni um
Skaftfelling VE 30, sem sinnti flutn-
ingum fyrir Skaftfellinga á árum áður.
„Myndin hefur verið að vaxa í
hlutfalli við það efni sem ég er að
ná í. Þetta er stór saga þar sem þrír
meginþræðir fléttast saman og verð-
ur að lokum mynd upp á eina og
hálfa klukkustund. Ég er búinn að
forklippa einhverjar 50 mínútur og
kom heim núna til að skjóta nokkra
ramma sem mig vantaði inn í og
semja við Sjónvarpið sem ætíar að
Marianne Greenwood og Picasso
Listakonan tók myndir afflestum stærstu
listamönnum Evrópu á slnum tíma en mynd
Helga og konu hans Titti Johansson segirfrá
ótrúlegri og viðburðaríkri ævi hennar.
vera með í þessu. Kvikmyndasjóð-
ur styrkti þessa mynd í upphafi og
kom mér af stað með hana. Þá eru
alltaf einhverjir fundir um alls kyns
mál því það er nauðsynlegt að vera
með mörg járn í eldinum. Við erum
að vinna að þó nokkrum verkefnum
í hjá Felixfilm bæði í framleiðslu og
hvað varðar dreifingu," sagði Helgi í
stuttu spjalli við DV.
Helgi hefur starfað við kvikmynda-
gerð í Svíþjóð í tuttugu ár með höfuð-
áherslu á heimildarmyndir en vinnu-
svæðið nær til nánast allra heimsálfa.
„í dag eru það fyrst og fremst þess-
ar tvær myndir sem við einbeitum
okkur að auk myndar sem við erum
að gera um kjamorkutilraunir Frakka
í Suðurhöfum, sem Evrópusjóðurinn
styrkir. Myndin um Skaftfelling verð-
ur tæplega tilbúin fyrr en eftir rúmt ár
því þetta er það stórt verkefni," sagði
Helgi