Freyr - 15.03.1957, Qupperneq 9
GUNNAR GUÐMUNDSSON:
ÝTA Á
JEPPABÍL
í sambandi viS grein Jóns Gunnarssonar
frá Þverá, sem birtist í Frey, 5. hefti, 1956,
með mynd af heyvagni, sem gott er að ýta
heyi upp á, datt mér i hug að senda Frey
línu um tilraun, sem ég hef gert með hey-
ýtu, sem fest er á jeppa, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd, ef verða mætti að
einhver gæti notið góðs af því við heyskap-
inn síðar meir.
Heyýtu þessa fann ég upp vorið 1955 og
hef nú notað hana með góðum árangri í
tvö síðastliðin sumur. Ég held að flestir
geti vel áttað sig á hvernig þessi heyýta
er búin til, en ef einhver vildi fá frekari
upplýsingar um gerð hennar vil ég veita
þær með ánægju.
Ýtan er gerð úr eintómum rörum, skrúf-
uð saman eða rafsoðin eftir því er hentar
betur í samsetningum og útliti. Lengd að
ofan er 100 cm. Lengd að neðan 125 cm án
tinda, hæð 60 cm og breidd 150 cm, tindar
15 cm uppbognir og þola því ávalar, litlar
mishæðir án þess að rekast í. Þyngd ýt-
unnar er um 32 kg. Festing er þannig: U-
járni er komið fyrir á stuðaranum beggja
vegna fyrir ofan fjaðrahengslin, og á þau
soðinn rörbútur 1”, og viðfestingin ekki
önnur en sú, að hálftommu röri með múffu
á öðrum enda er rennt í gegn og svo splitt-
að fyrir með splitti, sem fljótlegt er að
taka aftur. Er því aðeins einnar mínútu
verk að setja heyýtuna við, eða taka hana
frá. Ýtunni er lyft með smá talíu með
tveim einskornum blokkum, og er létt ann-
arrar handar átak að lyfta þegar þess ger-
ist þörf. Þó hef ég hugsað mér annan út-
búnað, sem er dálítið margbrotnari og
því dýrari, en verður sennilega hentugri
þar sem ekki er hægt að opna glugga að
framan. Verð hennar held ég varla að
verði meira en 7—900 (sjö til níu hundruð
krónur), þó þetta yrði unnið á verkstæði,
nema allt hækki því meir. Ég tel sennilegt
að nota megi þessa gerð af heyýtum lítið
breytta á Ferguson og fleiri vélar. Kostir
heyýtunnar eru helzt þessir:
Það tekur lítinn tíma að koma henni fyr-
ir. Það er hægt að ýta saman nýslegnu
heyi, ef ýtt er í sömu átt og slegið er, og
tekur hún þá sláttuvélamúginn hreint upp,
ef ekki er tekið of breitt fyrir og sæmilega
slétt er undir, og er þá hægt að ýta saman
í allt að 500 kg hlass í einni ferð. En ef ýta
skal upp á heyvagnspall, verður að hafa
minni hlöss svo allt gangi greiðlega. Ég hef
venjulega þá aðferð við nýslegið hey, að
ýta saman í hring eins og sláttuvélin hef-
ur gengið, svo ekki fari aukatími í að keyra
aftur á bak, nema aðeins frá hlassi. Geng-
ur þetta mun fljótar en með múgavél. En
við hálf- eða alþurrt hey hef ég múgavél
aftan í jeppanum og keyri svo 2—3 hringi
í kringum flekkinn, (sem er einn hektari
eða minni eftir atvikum) læt svo ýtuna
falla, og ýti saman í stóra hauga, 4—-5
hestburði, en læt múgavélina halda áfram
að vinna meðan ég ýti, ek aðeins aftur á
bak meðan ég losa mig við hlassið, keyri
svo framhjá því og áfram. Er þetta mjög
fljótleg aðferð við samantekningu, hvort
sem hirt er eða sætt. Úr svona hlössum er
fljótlegt að moka heyinu með góðum hey-