Freyr - 15.03.1957, Blaðsíða 23
FREYR
103
cio vulgaris). Flestir bændur, sem hættu
kartöflurækt á jarðhitasvæSinu á Bakka,
fengu sér útsæði frá Gróðrarstöðinni á
Akureyri og gerðu sér nýja garða heima.
En á stöku stað munu menn hafa notað
útsæði frá sýkta Bakkasvæðinu — og þá
sennilega flutt hnúðormana með því í
garða sína. Ber að leggja þá garða niður
aftur og hætta kartöflurækt á sýktu svæð-
unum á Bakka og í Ærlækjarseli. — Hætt
er við að hnúðormurinn sé orðinn út-
breiddur í Námaskarðsgörðunum, en þar
er jarðylur. Mun rannsókn fara þar fram í
sumar. Ættu menn að varast að nota
útsæði þaðan. Sýkta garða þarf hvarvetna
að leggja niður. Mun vera í ráði að setja
sérstaka löggjöf um þau málefni. — Hnúð-
ormarnir þykja hin versta kartöflupest
víða um lönd og eiga margar þjóðir í bar-
áttu við þá.
Kortið sýnir útbreiðslu kartöfluhnúð-
ormsins (samkvæmt skýrslum Búnaðar-
deildar Atvinnudeildar Háskólans). Á kort-
ið vantar Ærlækjarsel, en það er skammt
frá Bakka. Sést að sýkingin er langmest
um suðvestanvert landið Margir sýktu
garðarnir hafa verið lagðir niður. Þarf
nauðsynlega að breyta öllum sýktu görð-
unum i graslendi og loka þeim þannig.
Ingólfur Davíðsson.
Smitandi júgurbólga
(Mastitis).
Smitandi júgurbólgu er auðvelt fyrir
hvern einasta bónda að koma í veg fyrir.
Smitandi júgurbólga er oftast afleiðing
af áverkum á innri hluta júgursins og
spena. Þess vegna er hægt að stemma stigu
við sjúkdómnum og í mörgum tilfellum
hægt að komast hjá honum, ef eftirfarandi
atriði eru tekin til greina:
1. Gætið þess, að mjaltavélin vinni ekki
við hærri þrýsting en 38 cm. Þrýsti-
mælir kerfisins getur verið í ólagi. Lát-
ið þess vegna athuga hann að minnsta
kosti einu sinni á ári.
2. Mjólkið aldrei mjólk í básana. Notið
heldur mjaltabolla (kontrolmál)
3. Takið mjaltavélina af kúnni um leið
og kýrin er fullmjólkuð. Ef vélin er of