Freyr - 15.03.1957, Blaðsíða 11
3 2 i © I 2 3 «9 5
Linurit I.
Dreifing á Kjarna í logni.
ingu til annarrar, þó a3 við sömu stillingu
og sömu aðstæður væri. Nam sá munur allt
að 24%.
Stilling 10 reyndist samsvara um 250 kg.
á ha., stilling 12 um 350 kg. á ha. (ekið í 3.
gír).
Við dreifingu Þrífosfats reyndist ákveðin
stilling gefa ákveðnari áburðarskammt en
við dreifingu Kjarnans. Stilling 10 sam-
svaraði um 290 kg. á ha.
Meðfylgjandi línurit eiga að sýna hlut-
fallslega, hve jafnt áburðurinn hefur
dreifzt. O-punkturinn merkir stöðu sjálfs
dreifarans í línuritunum, en síðan mælt í
metrum til beggja hliða út frá honum.
Línurit 1 sýnir dreifingu á Kj arna í logni.
Stilling 10. Dreifimagnið er misjafnt, mest
aftan við traktorinn, en fer síðan minnk-
andi til beggja hliða. Deila má um það,
hver hin nothæfa vinnslubreidd er, en vart
mun hún meiri en 3.5—4.0 m.
Línurit II sýnir dreifingu Kjarna í hlið-
arvindi. Vindur blæs frá hægri hlið 5.5
m/sek eða um 4 vindstig (kaldi). Stilling
10. Línuritið ber með sér, að vindurinn
hefur veruleg áhrif á dreifinguna. Áburð-
urinn flyzt í heild undan vindinum og
dreifingin er mjög ójöfn. Við dreifinguna
er erfitt að gera sér grein fyrir, hve áburð-
t 3 2 1 O 1 Z *n
Linurit II.
Dreifing á Kjarna i hliöarvindi.
urinn raunverulega fellur og hve mikið á
að dreifa inn á síðustu umferð. Kjarni rýk-
ur mikið, jafnvel undan mjög hægum vindi
og er það til óþæginda fyrir þann, sem
dreifir, auk þess sem um áburðartap er að
ræða.
Línurit III sýnir þverskurðarmynd af dreif-
ingu þrífosfats. Ekið undan hægum vindi
(2 vindstig). Stilling 10. Línuritið ber með
sér, að þrífosfatið dreifist á breiðara svæði