Freyr - 15.03.1957, Side 12
92
FREYR
Mykjudreifari
Athugun nr. 93.
Vorið 1956 var prófaður að
Hvanneyri mykjudreifari, sem
Vélsmiðjan Sindri i Reykjavik
framleiðir.
Dreifarinn er á tveim hjólum og er dreg-
inn af traktor. Hann er í aðalatriðum þann-
ig byggður: Á hjólöxulinn er fest grind úr
skúffujárni, en á hana er festur mykju-
kassinn og í honum dreifiútbúnaður. (Sam-
kvæmt upplýsingum frá framleiðanda mun
einnig vera hægt að fá þvagtunnu og flutn-
ingskassa, sem hægt er að festa á grind-
ina). Mykjukassinn er opinn að neðan, en
hægt er að loka honum með renniloku,
sem tengd er vogarstöng fremst á dreifar-
anum. Undir lokunni er öxull, sem tengdur
er öðru öxulhjólinu með keðjudrifi. Engin
tengsli (kopling) eru í drifinu. Á öxlinum
eru fjórar raðir að endilöngu af 6 cm. löng-
um göddum með 6.5 cm. millibili. Aðrir
gaddar, festir aftan við öxulinn, grípa inn
á milli öxulgaddanna og hafa það hlutverk
að hreinsa úr þeim mykjuna, hey eða ann-
að, um leið og öxullinn snýst.
Helztu mál á mylcjudreifara:
Þyngd ......................um 370 kg.
Rúmtak ........................ 1.25 m3
heldur en Kjarninn, enda grófari áburður.
Hin nothæfa vinnslubreidd er 7—8 m. Hlið-
arvindur hefur minni áhrif en við dreif-
ingu Kjarna.
Vinnslubreidd ................. 120 cm.
Hæð frá jörð upp á brún dreifara 125 cm.
Hæð undir gaddaöxul ........... 25 cm.
Hjólastærð .................... 600x16”
Vorið 1956 var prófaður að Hvanneyri
mykjudreifari, sem Vélsmiðjan Sindri í
Reykjavík framleiðir.
Með mykjudreifaranum er hægt að dreifa
haughúsmykju. Mykju, sem staðið hefur I
haug úti, er ekki hægt að dreifa, þar sem
hún er það þykk, að hún sígur ekki niður
úr dreifaranum.
Við dreifingu haugmykju reyndist dreif-
ingin allmisjöfn og fór eftir því, hve þykk
hún (mykjan) var og einnig eftir því, hve
mikið magn var í dreifaranum. Við sama
hraða traktors dreifðist meira á hverja
flatareiningu eftir því sem meira var í
dreifaranum, sem kemur til af því, að
þrýstingurinn er þá meiri á botn dreifar-
ans. Dreifimagnið við ákveðna stillingu
renniloku og sama hraða, en mismunandi
áburðarmagn í dreifara, mældist hlutfalls-
lega þetta:
Áburðarmagn í Dreifimagn,
dreifara hlutfallstala
1/1 100
1/2 45
1/4 35