Freyr - 15.03.1957, Qupperneq 18
98
FREYR
Hrefna 220, eign Guðfinnu Stef-
ánsdóttur, Vogum i Mývatnssveit,
er ein af glæsilegustu kúm lands-
ins (sjá lesmál). Myndin tekin sum-
arið 1956, þegar Hrefna var 13 v.
snemma athygli á sér sem glæsileg mjólkur-
kýr með jafna og háa mjólkurfitu. Hafði
hún oftast nær mjólkað frá 16 þús. til 18
þús. fe á ári, unz hún árið 1955 mjólkaði yf-
ir 22 þús. fe, þá að 13. kálfi. Ein dóttir henn-
ar, Litla-Skrauta 35, mjólkaði yfir 20 þús.
fe á sama ári.
Næsta kýrin við Skrautu 26 á listanum,
væri raðað eftir heildarafurðamagni, er
Hrefna 220 í Vogum í Skútustaðahreppi,
sem á 10.4 árum hefur mjólkað 46.744 kg
með 4.15% mjólkurfitu þau ár, sem fitu-
mælingar hafa verið gerðar. Hrefna er dótt-
ir Suðra frá Kluftum, sonar Huppu 12, og
eru því þessar tvær kýr, Skrauta og Hrefna,
skyldar, þótt sín sé í hvorum landshluta.
Þær eru báðar í eign kvenna.
Aðrar kýr á skránni, sem mjólkað hafa
yfir 40 þús. kg mjólk á ævinni, eru þessar:
Rós 45 í Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi,
en hún drapst á árinu, þá tæplega 14 ára
og hafði mjólkað á 12.4 árum 42.460 kg
mjólk, sem svaraði til 1590 kg mjólkurfitu,
Hosa 39 á Efri-Brúnavöllum á Skeiðum,
Hrefna 32 á Arnarhóli í Gaulverjabæjar-
hreppi og Tungla 5 í Ásatúni í Hruna-
mannahreppi.
Eins og sést í athugasemdum við skrána,
hafa 9 af kúnum fallið á árinu. Meðalald-
ur þeirra reyndist vera 9.3 ár, og bendir
hann til þess, að afurðamiklu kýrnar end-
ist að jafnaði ekki skemur en aðrar kýr. Þó
ber að líta á þessar niðurstöður með varúð,
þar sem meðaltölin eru reiknuð af svo fá-
um kúm. Aldur þessara kúa við 1. burð var
að jafnaði 794 dagar eða 26 mánuðir. Þær
mjólka að meðaltali í 7.3 ár, og eru ársaf-
urðir þeirra að meðaltali 3645 kg með
3.89% mjólkurfitu eða 14.179 fe. Að meðal-
tali hafa þær mjólkað um ævina 27.337 kg
mjólk, og nemur það 1064 kg mjólkurfitu.
Þær áttu að jafnaði 6.6 kálfa og hafa yfir-
leitt verið tímasælar nema yngsta kýrin,
sem tvisvar lét kálfi og hefur sennilega
verið felld af þeim sökum. Eftir nokkur ár
verða fengnar heimildir um ævir svo
margra kúa á spjaldskránni, að þær ættu
að gefa rétta mynd af heildarafurðamagni
afurðamestu kúnna, aldri þeirra, frjósemi
og öðru, sem drepið hefur verið á hér að
framan.
i iii iii niim 1111111111 m n iiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiuiiiiiiniin,
Hvað mjólkar gyltan mikið?
Eftir amerlskum rannsóknum fer nyt hennar eftir
svínakynjun (ras).A tilraunastöð voru gylturnar vigtaðar
áður en og eftir að grísirnir sugu þær. Vitneskja fékkst
um það, að á hinu sex vikna langa mjaltatímabili hafði
gylta af amerískum stofni mjólkað 138 kg mjólkur.
Hæst var nytin í fimmtu vikunni og þyngstu grísamir
komu unðan beztu mjólkurgyltunum. Önnur kyn voru
með allt að y3 lægri nyt, er náði hámarki nokkru fyrr
á mjaltatímabilinu.