Freyr - 15.03.1957, Side 25
FRE YR
105
iiiMiiiitiimiiiiiiiiitiiiiiitiiiiiiiimiiiiiiimiiiHiiiiiiiimiiiiiiiiHimmHMHmnmi
|
Húsmæðraþáttur
PLASTIÐ OG HEISVIILI^
Á fáum árum hafa plastefnin valdið eins-
konar nýrri iðnbyltingu. Plastefnin hafa
unnið sér sess á svo mörgum sviðum í máln-
ingar-, byggingar-, bifreiða- og flugvéla-
iðnaðinum o. s. frv., að erfitt væri að telja
það allt upp.
Ef við lítum t. d. á þróunina í málningar-
iðnaðinum, þá komumst við að raun um, að
þar hafa orðið vægast sagt merkilegir
hlutir.
Hver sem er getur nú unnið einfalda
málningarvinnu innan heimilisins; það
læra menn tiltölulega auðveldlega með því
að lesa notkunarreglurnar á plastmálning-
ardósinni.
Með hinum nýju plastlitum má mála
veggi, loft, gólf, húsmuni o. fl., og þegar
því er lokið, geta menn, ef þeir hafa áhuga
og ráð á og tima til þess, haldið áfram við
að prýða heimilið með plastveggfóðri, plast-
dúkum, hilluræmum úr plasti o. s. frv.
Formælandi eins leiðandi gólfdúka-
framleiðslufyrirtækis í Bandaríkjunum
sagði nýlega, að linoleum víki stöðugt fyrir
plasti og að eftir 5—6 ár muni plastið ein-
göngu verða notað til gólfdúka. Hið nýja,
s. n. vinylplast, er talið svo endingargott,
að það taki fram öllum öðrum gólfdúka-
efnum.
Hér á íslandi er 4—-5 ára reynsla af plast-
gólfum.
Nú er farið að nota ljósarör í heimilunum,
einkum í eldhúsum og baðherbergjum og
sem efni í og umgjörð um ljósarörin er not-
að mikið af ýmiskonar plasti. í þeirri grein
ljósatækninnar, sem reist er á luminicens-
ljósi, eru gagnsæ plastefni notuð til að
dreifa birtunni eða þá til endurspeglunar
á henni.
Plöst af þessari tegund — það er hægt að
lita þau og mynstra á ótal vegu — eru enn-
fremur notuð í margskonar aðra búshluti,
t d. matarskrínur, smápoka, bauka, skrín
o. fl.
í hrærivélar o. fl. eru notaðar gúmbland-
aðar plasttegundir, sem eru fádæma seigar
og þola vel högg og titring. Vegna síðast-
nefnda eiginleika efnisins binda menn mjög
miklar vonir við það.
Framleiðsla á flöskum úr plasti fer stöð-
ugt vaxandi og leysa þær glerflöskurnar af
hólmi. Enn má nefna framleiðslu á vaska-
fötum úr plasti, þvottabölum, vatnsfötum
og mörgum fleiri nytjaílátum.
Ein af athyglisverðustu nýjungunum í
plastefnaiðnaðinum er aðferð, sem notuð er
við að búa til filt til ýmissa nota. Filtið er
gert af samhangandi trefjum úr bráðnu
plasti. Hægt er að nota plasttrefjar þessar
í sameiningu við asbest, glertrefjar, orlon,
vinyon o. fl., og er því hægt að nota það til
framleiðslu á ódýrum efnum, gervileðri,
mottum og ótal öðrum efnum, sem heppi-
leg eru til innbúnaðar og í fatnað.
Húsgagnaiðnaðurinn notar einnig plast
í æ ríkara mæli og þess verður varla langt
að bíða, að hægt verði að fá svefnherbergis-
og borðstofuhúsgögn úr plasti.
Að lokum nokkur orð um leikföngin.
Hér má nota plast í ríkum mæli. Ódýrt
plast hefur leyst blikk og tré af hólmi meir
en menn gerðu sér í hugarlund að yrði, og
auk þess eru plastlökk nú nær eingöngu
notuð til að mála leikföng.
Því miður hafa þó umskiptin orðið nokk-
uð á kostnað endingarinnar. Leikföng úr
ódýru plasti verpast gjarna og springa og
fá á sig ljóta bletti o. s. frv
Gömlu og góðu tréleikföngin eru ennþá
sem komið er endingarbezt, en nýi tíminn
hefur einnig sett mark sitt á þau, því oft-
ast eru þau úðuð með plastlitum.
Það er sagt, að við lifum á kjarnöld,
pappírsöld, vélaöld o. s. frv. En það er gott,
ef ekki má fara að taka upp heitið plastöld
líka.
Og þó erum við þarna aðeins á byrjun-
arskeiði. Framfarirnar í plastiðnaðinum
eru slíkar, að vænta má þar hluta innan
langs tíma, sem við nú gerum okkur vart
grein fyrir. (Þýtt)