Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Blaðsíða 8

Freyr - 15.04.1960, Blaðsíða 8
112 FREYR 3. Þá er ný grein, 9. gr., sem er þannig: Oheimilt er að bæta upp söluverð land- búnaðarvara á erlenilum markaði, með }>ví að liækka söluverð þeirra innanlands. Tryggja skal greiðslu á þeim haila. sem bændur kunna að verða fyrir af útflutn- ingi landbúnaðarvara, en þó skal greiðsl- an vegna þessarar tryggingar ekki vera hærri en svarar 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár, miðað við það vcrð, sem framleiðendur fá greitt fyrir afurðir sín- ar. Hagstofa íslands reiknar fjárhæð þá, er ber að greiða framleiðendum vegna á- kvæðis annarrar málsgreinar þessarar greinar. 4. Þá er sú breyting gerð á kosningu í sex- mannanefnd, að af hálfu framleiðenda á stjórn Stéttarsambandsins að kjósa tvo fulltrúa, en Framleiðsluráð einn fulltrúa. Þá fékk stjórn Stéttarsambandsins bréf undirritað af forsætisráðherra þess efnis, að ríkisstjórnin mundi greiða bændum þá hækk- un á afurðaverði, sem samkomulag yrði um í sexmannanefndinni, frá 1. sept. s.l, að telja. Stjórn Stéttarsambandsins kaus í sex- mannanefndina þá Sverri Gíslason og Einar Olafsson, og Framleiðsluráð kaus í nefndina Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Fram- leiðsluráðs. Steingrímur Steinþórsson hefur átt sæti í sexmannanefndinni alla tíð, fyrst 1943 og svo síðar frá 1947 að framleiðsluráðs- lögin voru sett. Steingrímur hefur verið hinn sterki hlekkur sexmannanefndarinnar. sem og annarsstaðar í málefnum bændastéttarinnar og unnið bændastéttinni ómetanlegt gagn með vitsmunum sínum, þekkingu og mannkostum. Þakka ég hér með Steingrími og Sigurjóni Sig- urðssyni, sem einnig hefur átt sæti í sexmanna- nefndinni frá byrjun, ljúfa og góða samvinnu á mörgum undanförnum ái-um. Þá hefur og Þórður Gíslason látið af störfum í sexmanna- nefndinni, þar sein hann hefur átt sæti fyrir Alþýðusamband Islands urn allmörg ár. Þórð- ur er prúður og geðþekkur maður og færi ég honum mínar beztu þakkir fyrir samstarfið. I stað Þórðar Gíslasonar var kosinn, fyrir Alþýðusamband Islands, Eðvarð Sigurðsson, alþm. Starf hinnar nýkjörnu sexmannanefndar hófst snemma í janúarmánuði s.l. Frá bæjar- dyrum okkar fulltrúa framleiðenda blasti við fortíðin: 1. Málaferlin vegna 85 auranna, sem staðið var svo mannslega að, þar sem fulltrúar neytenda höfðuðu mál á hendur Fram- leiðsluráði, án þess að gera minnstu til- raun til að ræða við Framleiðsluráðið eða Stéttarsambandið um það, hvort ekki væri hægt að semja um annað frambúðar fyr- irkomulag þessara mála, sein nú hefur þó komið í ljós, að stjórn Stéttarsambands- ins og Framleiðsluráðið var fúst til. 2. Baráttan fyrir því að fá vinnulið verð- lagsgrundvallarins leiðréttan, um ára- mótin 1959, til jafns við þá kauphækkun, sem Dagsbrúnarverkamaðurinn fékk í sept. 1958, eftir það að búið var að ganga frá samningum um verðlagsgrundvöllinn, áður en 5.4% kauplækkunin væri lögfest. 3. Sagt var af ríkisstjórninni og talsmönn- um hennar, að leiðrétting þessara mála fengju bændur með samningunum í ágúst 1959. En hvað skeði þá? Fulltrúar neyt- enda í sexmannanefndinni hlaupazt úr nefndinni. Ríkisstjórnin neitaði að setja bráðabirgðalög um að hún, eða einhver stofnun önnur t. d. Hæstiréttur, skipaði mann í yfirnefndina svo málið fengi af- greiðslu. 4. Þess í stað setur ríkisstjórnin bráða- birgðalög, þar sem bannað er að hækka verð á landbúnaðarafurðum fram til 15. des. 1959.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.