Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 25

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 25
hingað til lands til þess að athnga möguleika á að st.unda hér hreindýrabúskap og hafa þá dýrin tamin. Ferðaðist hann dagana 16.—29. september um Suður-, Norður- og Austurland. Lefzt honum vel á beitarskiiyrði fyrir hrein- dýr á þeim svæðum, sem hann fór um. Einnig telur hann sumarveðráttuna hér hagstæða hreindýrum vegna hafvinda. sem hér b'ási, en hreindýrin þoli illa mikinn sólarhita og einnig boli bau illa ásókn skorkvikinda. Þá muni hér og sn.ióléttara á vetrum en á b^eindýraslóðum í Noregi. Hagen segir, að hre'ndvr bau, sem hann sá í ferð þessari austnr á la.ndi. hafi ver- ið falleg, hraustleg og vel á si°: komin að öllu leyti og standi sýnilega ekki að baki norskum og sænskum hreindýrum tömdum. En íslenzku hreindýrin hafi ekki haft neina einkennandi hætti villihreina, heldur nánast líkzt tömdum dýrum, sem orðin séu villt. Beitilandinu inn á hreindýraslóðunum eystra lýsir hann sem frábærlega góðu haglendi fyrir hreina, bæði sumar, haust og vetur. Þegar Hagen Lappa- fógeti var þarna á ferð, voru hreindýrin álitin vera 8—900. Hann segir, að beitilandið þoli miklu stærri hjörð, líklega allt að 2000 dýr. Segir hann, að ef menn vilii varðveita villta stofninn, þá sé sá staður, sem dýrin nú gangi á evstra, hinn rétti. Hann kveðst ekki álíta rétt að temja þennan stofn eða taka þetta svæði fyrir tamda hreinahjörð og þreng.ja á þann hátt að villtu dýrunum. Tekjurnar af þessum hreindýrum verði að fást með veiðum úr hiörð- inni, sem ætti að geta orðið nokkur árlega. Beri að hafa gát á, að hvorki verði of mikið af gömlum geldkúm né gömlum törfum í hjörð- inni. Hagen áætlar, að úr 1700—1800 dýra hjörð muni óhætt að veiða um það bil 200—250 dýr. Eigi segir hann, að sér hafi gefizt tækifæri til að athuga aðra staði, er henta kunni villtri hreindýrahjörð, en vera megi, að svæðið um- hverfis Snæfellsjökul henti og einnig við Drangajökul. Varpar hann þessu fram án þess að hafa athugað staðhætti. Á ýmsum þeim stöðum öðrum. sem Hagen Lappafógeti sá í ferð sinni, segir hann einungis koma til greina að hafa tamin hreindýr, þ. e. dýr, sem gætt sé allan ársins hring. Þó er svæð- ið við Langjökul nokkur undantekning. Segir Hagen, að svo virðist, sem um fjalllendi Is- lands muni hvarvetna góð sumarbeit fyrir hreindýr. — Því skal skotið hér inn í, að litlar athuganir hafi farið fram á því, á hverju ís- lenzku hreindýrin lifa aðallega. En í Svíþióð hafa farið fram athuganir á þessu, og fer fæða dýranna eftir árstíðum. Á vetrum éta þau fjallagrös, hreindýramosa og ýmsar fléttuteg- undir. Þá éta þau brum og ársprota gulvíðis, bugðupunt og língresistegundir. Einnig nýjustu greinar af fjalldrapa, bláberjalyngi og fleiri lyngtegundum. Norðmenn segja hinsvegar, að hreindýr éti því aðeins greinar af runnum, að hungur sverfi að þeim, því að þau þoli illa börk eða barr. Ekki geðjast þeim vel loðvíðir eða grávíðir, en éta þó eitthvað af yngstu sprot- unum, þegar hart er um. Sumarbithagar hreindýra eru einkum mýrar og fúaflóar með vetrarkvíðastör og horblöðku. Síðla sumars sækjast þau mjög eftir sveppum og á haustin þyrja þau að éta skófir, ásamt grösum og hálf- grösum. Guðmundur Þorláksson, magister, segir, að í Noregi sé talið, að hreindýr og sauð- fé nærist aðeins að litlu leyti á sömu tegund- um gróðurs, og nýtist því beitiland vel ef hrein- dýr og sauðfé gangi um sömu slóðir. Bæði Sví- ar og Norðmenn telji það óþekkt, að hreindýr valdi skemmdum á skógi. Vera má, að íslenzku hreindýrin hafi nú að einhverju leyti frá- brugðna lifnaðarhætti. Víkjum nú aftur að skýrslu P. Hagen, Lappa- fógeta. Af svæðum þeim, sem hann sá, álítur hann umhverfi Mývatns vel henta taminni hreindýrahjörð að vetrarlagi, en beina verði dýrunum í aðra bithaga á sumrum. Telur hann

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.