Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1960, Side 37

Freyr - 15.04.1960, Side 37
FRE YR 141 RAGNAR ÁSGEIRSSON: KYNNISFERÐIR BÁNDA 1959 Það hefur veriö venja, að Freyr flytji frá- sagnir af þeim kynnisferðum bænda, sem farnar hafa verið á vegum Búnaðarfélags íslands undanfarin ár. Enda þótt nokkuð seint sé verður hér sagt frá þeim ferðum, sem farnar voru á síðastliðnu ári, en þá voru það Eyfirðingar og Borgfirðingar, sem lögðu land undir fót og héldu til fjarlægra héraða. Eyfirðingarnir lögðu fyrst af stað og fóru um Suðurland og Miðvesturland, en Borg- firðingar lögðu seinna upp og fóru um Norður- og Austurland. Föstudaginn 5. júní fór ég flugleiðis til Akureyrar til að taka við Eyfirðingunum, en þeir byrjuðu ferð sína sunnudaginn 7. júní. Þetta var mjög viðráðanlegur hópur, aðeins rúmlega 40 manns og þeir rúmuðust allir í einum bíl. Var bíllinn hinn þægileg- asti í alla staði, stórir gluggar, sætin þægi- leg og hátalari í góðu lagi og gat fararstjóri því alltaf rætt við alla þátttakendur í ferðalaginu í einu. í ferðinni voru 12 eða 13 húsfreyjur. F'yrsta daginn var ekið sem leið liggur suður í Borgarfjörð og gist þar á bæjum, eftir að hafa ekið um byggðirnar. Annan daginn var haldið suður og farið fyrir Hval- fjörð að Hlégarði í Mosfellssveit og neytt þar hádegisverðar í boði Búnaðarsambands Kjalarnessþings. Var þar margt manna saman komið að fagna gestum. Þaðan var farið til Þingvalla og var þar heldur stutt viðstaða, því veður var í svalara lagi, en frá Þingvöllum var svo ekið að Sogsvirkj- uninni og aflstöðin neðanjarðar skoðuð. Þykir mörgum hún tilkomumikil. Bæjar- stiórn Reykjavíkur bauð þar til kaffi- drykkju. Frá Sogsvirkjuninni var svo hald- ið til gistingar á Laugarvatni. Frá Laugarvatni var haldið næsta morg- un — og þegið hádegisboð hjá Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi, og svo farið áfram Kristján á Heilu, aldursforseti Eyfirðinga. austur, komið við á Sámsstöðum og Múla- koti í Fljótshlíð, en svo var haldið þaðan niður í Austur-Landeyjar til gistingar á bæjum. Búnaðarfélag sveitarinnar tók höfðinglega á móti gestunum með sameig- inlegum kvöldverði í félagsheimilinu Gunnarshólma. Landeyjar eru láglend sveit og milli bæjanna voru áður víðáttu- mikil fen og flóar, illir yfirferðar, en nú var orðin mikil breyting á. Hinar stór- virku skurðgröfur hafa grafið langa og djúpa skurði, sem veita vatninu burt og vegir hafa verið gerðir jafnhliða. Virtist mér nú allstaðar þurrt og greitt yfirferð- ar og ræktunarmöguleikar því margfalt betri en áður. Allmörg ár voru liðin síðan ég hafði komið í Landeyjarnar og fannst

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.