Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Síða 39

Freyr - 15.04.1960, Síða 39
FRE YR 143 hans tímum saman, í von um að hann fari aö hreyfa sig og skvetta úr sér, en það verð- ur ekki neitt og svo verða ferðamannahóp- arnir oft langt á eftir áætlun á næsta við- komustað. Smáskvettur fékk ferðafólkið að sjá úr Óþerrisholu. Skyldi engin læknisað- gerð duga við gamla Geysi? í Reykjavík bættist Ármann Dalmanns- son formaður Búnaðarsambands Eyjafjarð- ar í hópinn og var með það sem eftir var ferðarinnar. Hann gat ekki verið með frá byrjun vegna anna við gróðursetningu trjá- plantna — en hann er formaður Skógrækt- arfélagsins í Eyjafirði. Frá Geysi var haldið til Reykjavíkur, um Hellisheiði. í Reykj avík var dvalið um kyrrt sunnudaginn 14. júní og voru þar allir frjálsir ferða sinna. Mánudag 15. júní var lagt upp frá Reykjavík og komið að Hvanneyri í Borg- arfirði um hádegi og borðað þar. Eftir að það helzta hafði verið skoðað þar á staðn- um var ekið áleiðis vestur í Miklaholts- hrepp, því að nú skyldi heimsækja þá Snæ- fellinga. Þeir komu margir á móti ferða- fólkinu að Hítará, en þar eru sýslumörk. Eyfirðingarnir gistu á heimilum bænda um nóttina og höfðu góða hvíld og alúðlegar viðtökur hiá gestgjöfum sínum. Ekki veitti heldur af því þar sem lang-erfiðasta dag- leiðin var eftir, síðasta daginn. Þriðj udagsmorguninn safnaðist hópurinn á ný og var þá haldið til Stykkishólms, yfir Kerlingarskarð. Allmargir heimamenn fylgdu gestunum yfir skarðið og sumir enda alla leið að sýslumörkum. Búnaðar- samband Snæfellsness hafði boð fyrir gest- ina á hótelinu í Stykkishólmi. Þaðan skyldi farið til Búðardals, um Skógarströndina. Er það alllöng leið og vegur ekki enn svo góður sem skyldi. Var hann talinn ófær hinum stóra góða bíl sem Eyfirðingarnir voru í. Var hann því sendur laus til baka suður yfir Kerlingarskarð, um Bröttubrekku til Búðardals, en fengnir tveir bílar minni í hans stað. Mátti þó varla miklu muna sumstaðar að leiðin væri þeim fær. En fagurt er á Skógarströnd og skóg- arkjarr er þar víöa. Heitir eitt rjóður þar Paradís. Á sýslumörkum sneru þeir við, for- ustumenn Búnaðarsambands Snæfellinga, og höfðu þeir ekki gert endasleppt við Ey- firðingana. í Búðardal hafði Búnaðarsamband Dala- manna framreiddan kvöldverð. Formaður þess, Ásgeir í Ásgarði, var þar mættur á- samt fleiri héraðsbúum. Lengi var ekki staðið við í Búðardal, enda lá á að komast af stað. Mér var það vel ljóst þegar áætl- unin var samin, að það var ógætilegt að hafa svo langa dagleið. En hvað gerði svo sem til þó seint yrði komið heim. Allt gat þetta blessast, því vegurinn er ágætur þegar komið er á norðurleið, — ef heppnin væri með. En svo kom í Ijós að hún var alls ekki með í þetta sinn. Við kvöddum Dalamenn, settumst í stóra góða bílinn og ókum suður yfir Bröttu- brekku og vorum komin á Blönduós um kl. 11 um kvöldið, en þaðan má aka á fjórum tímum til Akureyrar. En nú var farið að kólna og leit út fyrir að óveður væri í að- sigi. Fólkið var að byria að þreytast og ein- stöku raddir heyrðust um, að réttast væri að reyna að fá gistingu á Blönduósi. En fleiri vildu halda áfram og hugsuðu sem svo að varla mundi cniöa til baga aðfara- nótt 17. júní — um hásumarið. Það mundi lengia ferðina um heilan dag ef við færum að gista hjá Snorra á hótelinu. Mér fannst að ég yrði að vera harður húsbóndi og koma leiðangrinum áfram samkvæmt áætlun og við afréðum að halda áfram. Þá komu skilaboð sím’eiðis um, að stóreflis flutn- ingabíll stæði fastur þversum á veginum í Langadal og að ekki yrði framhiá honum komizt. Þá var afráðið að fara Ásana vest- an Blöndu. Þegar á Ásana kom var farið að snjóa, en þó var sæmileg færð fyrst, en svo fór hríð- versnandi þegar ofar kom og á nóttina leið. Á beygiu austan við Blöndubrúna nýju lá við að við misstum bílinn út af veginum, en tókst þó með herkjum að rétta hann aftur. Snjónum kyngdi niður með ólíkindum, og sumstaðar stóðu lambærnar í snió upp í kvið, móafuglarnir flögruðu yfir snjóbreið- unni þar sem þeir áttu eggin sin og taliö er að mikið af þeim hafi farizt í þessu hreti. f stuttu máli sagt: Þetta var ömurleg sum-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.