Freyr - 15.04.1960, Side 41
FRE YR
145
og hverfa, og föstudaginn 19. júní var aft-
ur komið blessað sumar á Norðurlandi, með
svo blíðu og góðu veðri, að ferðafólkið gat
ekki óskað þess betra, og það hélzt alla dag-
ana meðan ferðin stóð, og þarf því ekki að
nefna veðrið oftar í þessari ferðasögu.
Byg'gðirnar tóku fljótt á sig sumarsvip eftir
hretið og lömbin léku sér í móunum, og þó
undarlegt virtist þá höfðu ekki orðið miklir
skaðar í þeim sveitum, sem við fórum um.
Borgfirðingar héldu rakleitt til Akureyr-
ar; þar beið hádegisverður í boði Kaupfé-
lags Eyfirðinga á Hótel KEA. Voru þar
mættir stjórnendur kaupfélagsins og ýmsir
forustumenn bænda í héraðinu, en að borð-
haldi loknu réttu menn úr sér um stund,
inni og úti, en ekki mátti eyða miklum
tíma, því gista skyldi í Mývatnssveit næstu
nótt, og staldrað við á Laugum í Reykjadal
á leiðinni. Þetta var aðeins skyndiheimsókn
í Eyjaf jörð á austurleið, en í vesturleiðinni
skyldi gist þar hjá bændunum.
Við kvöddum Eyfirðinga með þakklæti og
héldum af stað og lögðum á Vaðlaheiði,
sem reyndist vel fær þrátt fyrir mikla hæð
hennar ov brátt sást niður í Fnjóskadal-
inn með Vaglaskóg austan árinnar. Hinu-
megin við brúna var allmargt fólk saman
komið. Það reyndust vera þingeyskir bænd-
ur, sem sátu þar fyrir Borgfirðingunum, og
er menn höfðu heilsast var blandað í bíl-
unum, eins og það er orðað á nútímamáli,
og ekið dálítið um skóginn, til þess að fá
þó nokkra hugmynd um hann — en stærri
skóga skyldi sýna ferðafólkinu við Lagar-
fljót. Svo lá leiðin um Ljósavatnsskarð og
Fijótsheiði yfir í Aðaldal, að Laugaskóla.
Þar tóku Þingeyingar á móti hinum borg-
firzku stéttarbræðrum sínum með miklum
glæsibrag. Þar var mikill mannfjöldi fyrir
og 25 manna karlakór söng gestina í hlað.
Ég held það séu engar ýkjur að heimamenn
hafi verið fleiri en gestirnir. Svo var sezt
við kaffiborðin, því þetta var nálægt réttum
kaffitíma, og rabbað saman — og auk þess
héldu heimamenn nokkrar ræður, og sumt
af því léttara hjal og kveðskapur gestunum
til skemmtunar. Þar flutti Steingrímur
Baldvinsson í Nesi, Borgfirðingum kvæði,
prýðilega ort. Hafa margir þeirra hugsað
Frá móttökum á Laugum.
til þessarar stundar á Laugum með mik-
illi ánægju. Það hef ég orðið var við.
Það er nú svo, að yfirleitt er farið full-
hratt yfir í þessum kynnisferðum bænda.
En það er ekki svo gott við því að gera.
Fólkið vill komast sem lengst og sjá sem
mest, en má þó ekki vera að heiman nema
takmarkaðan tíma, enda áætlanir alltaf
gerðar í samráði við forustumennina. Við-
staðan á Laugum var á þriðju klukkustund,
eða vel það, en það stóð líka til að halda á-
fram upp í Mývatnssveit til gistingar.
Mývetningar tóku á móti ferðafólkinu í
félagsheimilinu Skjólbrekku á Skútustöð-
um. Þar var fólkinu skipt niður á bæina til
gistingar. Gekk það svo fljótt og vel að til
fyrirmyndar má teljast, en það vill stund-
um verða tafsamt. Flestir gistu á bæjunum,
en þó fór Pétur í Reynihlíð með álitlegan
hóp heim á hótelið sitt. Mjög var fagurt
við Mývatn þetta kvöld og morguninn eftir,
þegar ferðafólkið var að tínast saman að
Reykjahlíð, laugardaginn 20. júní.
Þegar allur hópurinn hafði safnazt sam-
an settist ferðafólkið að borðum í hótel
Reynihlíð, ásamt nokkrum gestgjöfum sín-
um, í boði Búnaðarfélags íslands. Það lang-
aði víst flesta í hinn þjóðfræga Mývatns-
silung, en engin veiði hafði verið undan-
farna daga. En þessa nótt synti svo mikill