Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Síða 42

Freyr - 15.04.1960, Síða 42
140 FRE YR Karlakór á Laugum. silungur i netin, að það var mikið meira en nóg handa öllum sem sátu þetta ágæta matarboð. Nú var líka áríðandi að borða vel, því nú var vitað að enginn myndi fá vott eða þurrt fyrr en seint um kvöldið á bæjunum á Jökuldal og Fljótsdalshéraði, eftir langa og stranga ferð yfir Möðrudals- öræfin. Tvisvar var áð á þeirri leið, fyrst í Möðrudal og var þar gengið í kirkju Jóns bónda Stefánssonar, en hann lék nokkur sálmalög fyrir ferðafólkið. Síðan var hald- ið áfram um fjöll og firnindi unz komið var að Rangalóni við Sænautavatn. Hvernig „sænaut“ hafa komizt þangað, svo óralangt frá sjó, veit ég ekki, en þetta örnefni felur áreiðanlega gleymda þjóðsögu. Herðubreið var svo vinsamleg að sýna sig í allri sinni dýrð og ennfremur sást til Vatnajökuls og Snæfells. Austan í Jökuldalsheiði biðu nokkrir Jök- uldælingar og buðu ferðafólkið velkomið í byggðina sína. Mér finnst alltaf undur gaman að koma niður af heiðinni í Jökul- dalinn. Líklega er nafnið stytting úr Jök- ulsárdal, því að enginn jökull er í nálægð dalsins — enda heitir ytri hluti dalsins, norðan við ána, Jökulsárhlíð. Hlíðar dals- ins eru grasi grónar og lagðprúðar kindur eru þar á beit, en vatnsmiklir lækir — eða ár steypast með fossaföllum niður. Eftir miðjum dalnum rennur hið andstyggileg- asta foraðsvatn, Jökulsá, og eru litlar ýkj- ur, að hún sé óreið frá jökli til sjávar. Á Skjöldólfsstöðum biðu forustumenn bænda og búnaðarsamtaka á Austurlandi og hafði Þorsteinn Jönsson á Reyðarfirði orð fyrir þeim og bauð Borgfirðinga vel- komna. Því næst skýrði hann frá hvernig þeir hefðu hugsað sér að haga móttökum þessa fjölmenna hóps og reyndist sú skipu- lagning öll með ágætum. Þessa nótt gistu 32 á Jökuldal, 24 í Jökulsárhlíð, en 64 í Hró- arstungu. Sjálfur fór ég lengst þetta kvöld og síðastur úr bílnum, ásamt 5 eða 6 öðrum, sem gistum út við Héraðsflóa, í Húsey. Þar er tvíbýli. Mikil og víð útsýn til allra átta. Þar er selveiði mikil við ósa Jökulsár og Lagarfljóts. Þar var gaman að koma, Út- spýtt kópaskinn voru á hverjum vegg og dauða kópa sáum við líka, nýlega tekna úr selanótinni. Góða hvíld höfðum við í Hús- ey um nóttina og vorum þurfandi fyrir hana eftir langan akstur og mikinn hrist- ing. Svo rann upp sunnudagur, bjartur og fagur og nú fór allur hópurinn fram í Fljótsdal. Máltíðum var hagað þannig, að um 90 manns borðuðu í Félagsheimili Flj ótsdæla á Valþjófsstað, en hinir á Egils- stöðum. Urðu svo allir samferða frá Val- þjófsstað yfir brúna á Jökulsá og út undir Hrafnkellsstaði, en þá komust bílarnir ekki lengra. Skyldu nú allir, sem treystu sér, ganga að Hallormsstað, 7—8 km. leið, en tveir eða þrír jeppar voru í förinni, sem gátu flutt elzta fólkið, eða það sem átti erfitt með gang. Farið er um hlaðið á Hrafnkellsstöðum, en þar er Metúsalem Kjerúlf, sem um langt skeið var einn fjár- flesti bóndi á landinu. Hann var mikill og góður bóndi og kom þar upp stórum barna- hópi. — Þarna hittust nú þeir Metúsalem og Davíð á Arnbjargarlæk og gátu nú borið sig saman um fjáreignina. Ekki veit ég þó

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.