Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1960, Side 43

Freyr - 15.04.1960, Side 43
FRE YR 147 hvor hafði vinninginn — en ætli fjáreign hvors þeirra hafi ekki fyrrum verið eitt- hvað á níunda hundrað á fóðrum? Þeir munu vera nokkurnveginn jafngamlir, nær því hálfníræðir. Davíð á Arnbjargarlæk var aldursforseti í þessari bændaför og stóð sig prýðilega. Eftir nokkra göngu frá Hrafnkellsstöð- um er komið í Ranaskóg. Þegar ég kom þar í fyrsta sinn, fyrir aldarfjórðungi, stóðu þar stóreflis bjarkir á víð og dreif á grund- unum, hin fegurstu tré. Nú eru þau flest fallin fyrir exi eða elli. Þó eru þar margar vænar hríslur enn, einkum ofar í hlíðinni. Svo varð torfæra nokkur á leið göngu- fólksins, lítil á, en straumhörð og stórgrýtt. Eldra fólkið fór yfir í jeppunum — en flest- ir fóru úr sokkum og skóm og vóðu yfir ána, svo sem sjá má á mynd þeirri sem fylgir þessari frásögn. Gekk þetta óhappalaust að kalla. — Hygg ég að flestir hafi haft gott af fótabaðinu. En rétt fyrir ofan, þar sem vaðið var, mun vera göngubrú, í þrengslum, en um hana vissi enginn okkar. Jökulsáin breiðir úr sér unz hún er orðin að Lagar- fljóti og það er skemmtilegt að ganga með- fram því gegnum nýlaufgaðan skóginn, sem innan skamms er orðinn að Hallormsstaða- skógi, sem alla íslendinga dreymir um að fá ,að sjá. Á leiðinni förum við yfir læk sem stikla má yfir. Þar er grasbali og á honum stendur nú aldurhnigin björk, nú orðið með ellimörkum. Hún var einu sinni ung og upp á sitt bezta, og það er sagt, að þá hafi hún orðið fyrir nokkurri öfund Páls Ólafssonar og að hann hafi ort um hana: „Gott átt þú hrísla á grænum bala, glöðum að hlýða lækjarnið“, o. s. frv. Margir staðnæmast við hrísluna og láta mynda sig upp við stofninn. Að þetta sé nú einmitt sú hrísla, sem Páll orti hið vinsæla kvæði um, verður víst hvorki sannað né af- sannað, en ég vil helzt hafa það fyrir satt. Það á aldrei að ganga af fallegum sögum dauðum með sönnunargögnum heldur lofa alþýðunni að yrkja. Enda þótt allir dagar ferðarinnar væru góðir þá efa ég ekki, að þessi dagur í skóginum við Lagarfljót verði Borgfirðingunum einna minnisstæðastur. Vaðin Gilsá Sumir skoöuðu lerkitrén í landi Guttorms og allir gengu um Mörkina og sáu gróðrar- stöðina þar sem hundruð þúsunda trjá- plantna er í uppeldi, en Sigurður Blöndal útskýrði starfsemina fyrir gestunum. Síðan veitti Búnaðarsamband Austurlands kaffi í Húsmæðraskólanum á Har.ormsstað, sem menn voru áreiðanlega þurfandi fyrir eftir- gönguna. Á Hallormsstað og í skóginum varð all- löng viðstaða, það er erfitt að yfirgefa alla þá fegurð sem þar er. En nú skyldi gista þessa nótt í Útmannasveit (Hjaltastaða- þinghá) og á Borgarfirði eystra, en þangað er langur vegur frá Hallormsstað, um endi- langt Hérað. Tveir bílanna urðu því eftir á Úthéraði þetta kvöld en hina tvo hélt ég áfram með til Borgarfjarðar. Þar sem veg- urinn liggur hæst á fjallinu yfir í Njarðvík sat hópur Borgfirðinga fyrir Borgfirðingum og Þorsteinn bóndi Magnússon í Höfn bauð þá velkomna; en kona Þorsteins er úr Borg- arfirði vestra. Er menn höfðu heilsazt var haldið áfram niður í byggðina, um Njarð-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.