Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Blaðsíða 46

Freyr - 15.04.1960, Blaðsíða 46
150 FREYR Þrlðjudagsmorgun þann 23. kom hópur- inn aftur saman á Egilsstöðum, því burt- farartími þaðan var ákveðinn kl. 10 og nú skyldi fara langa leið, um Axarfjörð og gista í Aðaldal I S.-Þingeyjarsýslu. Þetta er of löng dagleið. En mér þótti ekki fært að beiðast gstingar fyrir svona fjölmennan hóp í Kelduhverfi og Axarfirði, en annars hefði verið hæfileg leið þangað. Borg- firðingar reyndust stundvísir, svo að farið var frá Egilsstöðum mjög nálægt réttum tíma og heimamenn kvaddir með mikilli þökk. Ekki vil ég gera mikið upp á milli hér- aða eða sýslna, en það veit ég, að fólk úr þessari för mun lengi geyma minningar um Fl.iótsdalshérað og fólkið þar. Bílstjórarnir „slógu í“ og óku hratt um Hróarstungu og Jökuldal. Á Skjöldólfsstöð- um var komið út úr bílunum stutta stund, en síðan var lagt á Jökuldalsheiðina og ekið að Rangalóni og áð þar alllanga stund, því nú varð að taka leiðina þaðan og niður í Axarfjörð í einum áfanga. Feginn varð ég þegar sá áfangi var að baki um hin gróð- urlitlu öræfi og við vorum komin heilu og höldnu í skógi vaxið land á eystri bökkum Jökulsár í Axarfirði. Þar var tekin nokkur hvíld, en síðan ekið niður að nýju brúnni á Jöklu. Þar sátu Núpungar og Keldhverf- ingar fyrir hópnum og var svo ekið inn í Ásbvrgi. Marga fagra staði sá ferðafólkið í bessari ferð, sem ekki er gott að gera upp á milli. Ép snurði marga ferðafélasra undir lok ferðarinnar hvaða staður myndi verða. beim rainnisstæðastur. Flestir þeirra svör- uðu: Ásbvrgi! og ég skil það vel. Frá Ásbyrgi var farið rakleitt að Skúla- garði, hinu nvia. fallega félavsheimiii Keldhverfinga. Er bað kennt við Skúla fó- geta„ sem var fæddur í Kelduhverfi. Gömul sögn er það, að begar móðir Skúla tók léttasóttina að honnm, bá hafi örn flogið nð bænum og setzt þar á baðstofuburstina og setið bar bangað til drengur fæddist. En á hæð lítilli hjá félagsheimilinu hafa Keldhverfingar látið setja örn úr eir, ein- falt og látlaust minnismerki, sem Guð- mundur Einarsson hefur gert. Borgfirðingarnir mínir höfðu hvorki fengið vott né þurrt síðan snemma um morguninn á bæjunum austur á Héraði, en í Skúlagarði voru rausnarlegar veiting- ar — og þær vel þegnar. Þar var margt fólk úr sveitunum kringum Axarfjörð og norðan af Melrakkasléttu og jafnvel úr Þistilfirði kom fólk til að heilsa Borgfirð- ingum. Nokkrar ræður voru haldnar til fróðleiks fyrir ferðafólkið, en því miður varð ég að reka á eftir mínu fólki, því enn var löng leið eftir áður en komið væri í náttstað. Frá Skúlagarði var farið til Húsavíkur, nýja veginn fyrir Tjörnes. Hefur þar opn- azt fögur leið og hafði ég ekki farið hana áður, en vegalengdin mun vera nálægt 50 km. Þarna er draumfagurt út við sjóinn þar sem Grímsey hyllir uppi úti í íshafinu. Við vorum nokkuð seint á ferð í Húsavík, en þar bauð Kaupfélag Suður-Þingeyinga upp á hressingu, í skrifstofum kaupfélags- ins, skyr og rjóma, smurt brauð og fleiri kræsingar en ég kann að nefna. Og beztu hagyrðingar sýslunnar, þeir Egill Jónasson og Kristján Ólason, létu ferðafólkið heyra nokkrar stökur sínar og var það góð skemmtun og vel þegin. Það var mjög lið- ið á kvöldið er þessu ágæta samkvæmi lauk, en þá var eftir að dreifa ferðafólk- inu á gististaðina. Það vill stundum verða tafsamt, þegar sérstakar óskir koma fram, frá einum sem vill gista hér, en annar þar hjá einhverju kunningjafólki En hvergi held ég hafi gengið seinna að koma fólkinu í næturstaði en betta kvöld á Húsavík, enda var hónurinn fjölmennur. Fólkið var auð- vitað þreytt eftir um 400 km. langa og erfiða dagleið og fulllítinn svefn, en ég var nú búinn að vera á ferðalagi í 17 daga samflevtt. Egill Jónasson var þarna nær- staddur og kom til mín og hvíslaði þessu að mér: Að reka í bílana gengur ei greitt, þá gemsa, sem lærðu’ ekki að elta. Hirðirinn latur — og hjörðin er þreytt og hundurinn vill ekki gelta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.