Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 5
LX. ARGANGUR — NR. 16—17.
REYKJAVÍK, ÁGÚST 1965.
LJtgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda.
Útgáfunefnd: Einar Ólafsson, Halldór Pálsson, Pálmi Ein-
arssin. — Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. — Ritstjórn, af-
greiðsla og innheimta: Bændahöllinni, Reykjavík. Pósth. 390.
Sími 19200. Áskriftarverð kr. 150,00 árgangurinn.
Prentsmiðjan Edda h.f.
EFNI :
Aðalfundur og Austurland
Aðalfundur Stéttarsambands bænda
Mjólkurtæknifélag íslands
Álafoss opnar verksmiðju
Athuganir á sláturlömbum
Framhaldsdeildinni slitið
Skógrækt og garðyrkja í Fnjóskadal
Menn og málefni
Fjósaræsting
Egg á færiböndum
Nýju Massey Ferguson
Molar
FÉLAGSTlÐINDI
STÉTTARSAMBANDS BÆNDA
Aðalfundur
Stéttarsambandsins
og
Austurland
Það hefur verið föst venja frá stoínun
Stéttarsambands bænda, að aðalfundir þess
hafa verið haldnir til og frá um landið
og hafa þeir til þessa verið háðir í öll-
um landshlutum, nema á Austurlandi, en
að þessu sinni var þangað farið til fundar-
halds á Eiðum.
Þessi aðferð Stéttarsambandsins um
fundahöld er ekki aðeins viðeigandi held-
ur og mjög eðlileg. Gallinn er bara sá, að
svo flj ótvirkar hlj óta allar athafnir að vera
á aðalfundum þess, að þótt þeir séu haldnir
á nýjum og nýjum stað hvert ár og þótt
þangað sæki til áheyrnar ýmsir bændur
byggðarlagsins, þá gefst þeim naumast
innsýn í verkahringinn eins og skyldi sök-
um þess að hraða þarf öllum störfum þeg-
ar fundirnir standa aðeins tvo daga.
Síðustu tvö árin hefur aðalfundur verið
háður á þeim tíma árs, sem annir bænda
hafa kallað að, en þetta hefur verið gert
með það fyrir augum, að fulltrúum gæfist
kostur á að segja álit sitt um verðlagsmál-
in og verðlagsgrundvallarviðhorfin áður en
til samninga kæmi. Að þessu sinni var
sláttur naumast hafinn, þótt fundur stæði
19.—21. júní, og á Austurlandi alls ekki,
en þar voru að þessu sinni þau viðhorf
ráðandi í gróðurfari og sumarstörfum, sem