Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1965, Page 10

Freyr - 01.08.1965, Page 10
246 FRE YR bandi við hafís s.l. vetur og stórfellt túna- kal á þessu vori. Enn ræddi hann framleiðni í landbúnað- inum og kvað framleiðniaukninguna þar miklu meira en hjá þjóðinni í heild. Þetta byggðist að nokkru á miklu vinnuframlagi sveitafólksins, en nauðsynlegt væri að tryggja því lágmarkshvíld og sumarfrí. Að lokum flutti formaður yfirlit yfir þró- un landbúnaðarins þau 20 ár, sem Stéttar- sambandið hefur starfað, en þetta er 20. aðalfundur þess. Greindi hann frá þeirri stórfelldu framleiðsluaukningu, sem orðið hefði, en gat þess jafnframt, að auka þyrfti enn afköstin til þess að fullnægt verði þörf- um þjóðarinnar á landbúnaðarvörum á næstu áratugum. Óskaði hann svo fundinum heilla og fundarmenn þökkuðu ræðu hans með lófa- taki. 2. Reikningar og fjárhagsáætlun. Sæmundur Friðriksson, framkvæmda- stjóri, lagði fram og las upp reikninga Stéttarsambands bænda 1964. Skýrði hann reikningana og gerði grein fyrir einstökum liðum. Rekstrarreikningurinn sýndi tekjur upp á kr. 3.369.858.14 og tekjuafgang kr. 2.550.437.15. Efnahagsreikningur sýndi eign að fjárhæð kr. 12.644.639.76. Framkvæmdastjórinn lagði einnig fram reikninga Bændahallarinnar. Byggingar- kostnaðurkostnaður í árslok 1964 var orð- inn kr. 128.933.345.49. Halli á rekstri húss- ins 1964 var kr. 1.970.510.80, en þá hafði hótelreksturinn greitt afskriftir af hús- búnaði. Ennfremur lagði framkvæmdastjórinn fram fjárhagsáætlun fyrir árið 1965. 3. Ávarp landbúnaðarráðherra. Landbúnaðarráðherra, Ingólfur Jónsson, ávarpaði fundarmenn og lét í ljós ánægju sína yfir að fá tækifæri til að sitja þenn- an fund. Ræddi hann m. a. örðugleika þá, sem hafísinn hefði valdið á norðan- og austanverðu landinu og kalskemmdirnar á Austurlandi, og hvernig tryggja mætti þessa

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.