Freyr - 01.08.1965, Side 14
250
FRE YR
Til fundar komu bændur úr
Múlasýslum og svo fyrsti þing-
maður Austurlandskjördæmis,
Eysteinn Jónsson.
dal eftir, að a-liður tillögunnar yrði borinn
upp sérstaklega. Varð fundarstjóri við
þeirri ósk og var þessi liður tillögunnar
samþ. með öllum þorra atkvæða gegn 1 og
tillagan síðan samþykkt í heild með öllum
þorra atkvæða gegn einu.
.„III Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965
lelur stjórn þess að vinna að því, að framlag verði
veitt til hagagirðinga."
Til máls tóku um tillöguna Guðjón Hall-
grímsson og Sigurður Jónsson. Var tillagan
síðan samþykkt samhljóða.
IV. „Vegna tillögu frá kjörmannafundi Norður-
ísafjarðarsýslu um jöfnunarverð á fóðurvörum
samþykkir aðalfundur Stéttarsambands bænda
1965 að vísa því máli til Stéttarsambandsstjórnar
til athugunar."
Samþykkt samhljóða.
Þá var kl. 4.30 s.d. og gert kaffihlé til kl.
5.15.
V. Um síðustu tillögu framleiðslunefnd-
ar urðu nokkrar umræður. Tóku til máls
Sveinn Jónsson og Hermóður Guðmunds-
son. Nefndin gerði smávægilegar breyting-
ar á orðalagi tillögunnar og var hún borin
undir atkvæði svohljóðandi:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 telur
núverandi ástand í framleiðslu og verzlun með
tilbúinn áburð algerlega óviðunandi. Til lagfær-
ingar á því vill fundurinn leggja áherzlu á eftir-
farandi atriði:
a) Að Áburðarverksmiðjan í Gufunesi verði eign
ríkisins.
b) Að endurbyggingu verksmiðjunnar verði
hraðað sem mest, svo að unnt verði að full-
nægja óskum bænda um fjölbreyttari og kalk-
rfkari áburð en nú er völ á.
c) Að tilbúinn áburður sömu tegundar verði seld-
ur á sama verði á öllum verzlunarstöðum á
landinu."
Samþykkt samhljóða.
12. Tillögur Allsherjarnefndar:
Benedikt Grímsson hafði framsögu af
hálfu Allsherjarnefndar og talaði fyrir til-
lögum hennar:
I. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965
beinir því til stjórnar Stéttarsambandsins, að beita
sér fyrir því, að komið verði upp vörubirgða-
stöðvum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi
landi fyrir brýnustu nauðsynjar þessara lands-
hluta, s. s. oliur, fóðurvörur og tilbúinn áburð til
þess að fyrirbyggja vöruþurrð og þar af leiðandi
neyðarástand, ef hafís lokar siglingaleiðum eins
og verið hefur s.l. vetur og vor. Leitað verði fjár-