Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 25
FRE YR
261
Ormaeggjatala í grammi af saur náði
ekki þúsundi í neinu lambi úr Keldunes-
hreppi.
Hér er a.ð lokum gerður samanburður á
meðaltali ormaeggja í grammi af saur úr
nokkrum lömbum frá sláturhúsunum á
Húsavík og Kópaskeri s.l. tvö haust og með-
Ár Sláturhús hús Tala saursýna O.E.T. Fall- þungi í kg.
1963 Húsavík 148 675 12,70
— Kópasker 135 645 13,20
1964 Húsavík 199 233 14,86
— Kópasker 59 203 15,32
alfallþunga allra sláturdilka frá þessum
húsum sömu haustin.
Ormaeggjafjöldinn í saur lambanna hefir
þannig reynzt vera þvi meiri sem fallþungi
þeirra var minni, og má ætla, að sama hafi
gilt um fjölda orma í meltingarfærum.
Kristján Jóhannesson frá Klambraseli í
Aðaldal og Björn Þórarinsson frá Kílakoti
í Kelduhverfi sáu um söfnun sýna á slátur-
húsum, en Valgerður Sigurðardóttir fram-
kvæmdi ormaeggjatalningar.
Reykjavík 7. apríl 1965.
Guðmundur Gíslason
VARAHLUTAVERZLUN
LAUGAVECl 170 - REYKJAVÍK
SÍMI 1 22 60
Orðsending til bænda
varðandi Sönnak Rafgeyma
Við viljum vekja athygli yðar á því, að Sönnak Rafgeymirinn
er fyrsta flokks að efni og smíði og fullnægir ströngustu
kröfum, sem á Norðurlöndum eru gerðar um rafgeyma í land-
búnaðarvélar og bifreiða<r.
Hjá okkur er ávalt fyrirliggjandi landsins mesta úrval af
Sönnak Rafgeymum 6 og 12 volta í stærðum 60 - 200 ampt.
Lista með upplýsingum um stærðir og gerðir sendum við þeim,
er þess óska.
Ef þér þurfið að kaupa rafgeymi, þá hafið samband við okkur,
bréflega, símleiðis eða komið í verzlunina, ef þér eruð á
ferð í Reykjavík. Hjá okkur ættuð þár að fá rafgeymi, sem
yður hentar og þér getið treyst.
Gmitafi
Virðingarfyllst,
S M Y R I L L