Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 37
FRE YR
273
gröfum hér á landi eru frá MF, og hafa létt mörg-
um manninum erfiðið frá því þær byrjuðu að
flytjast til landsins.
Hinn nýja MF er framleidd í 6 gerðum, en
umboðið mun leggja áherzlu á innflutning
þeirra, sem reynslan hefur sýnt að hentar vel hér
á landi og að auki eina stærri vél, sem ætla má aö
komið geti hér að góðum notum.
Mesta nýjungin á nýju vélunum er án efa
Multi-Lift vökvakerfið eða þungatilfærslukerfið,
sem með nýrri gerð álagsbeizlis eykur afturöxul-
þunga vélanna um 100% (að undanskilinni MF 130).
Hafa verksmiðjurnar með þessu kerfi enn brotið
blað í dráttarvélaframleiðslu heimsins. Hið nýja
kerfi hefur aukið dráttarhæfni Massey-Ferguson
vélanna stórkostlega, án þess að auka þunga sjálfr-
ar vélarinnar, og er hún því jafn létt og lipur við
alla almenna vinnu eftir sem áður.
Segja má, að með þessu kerfi sé uppfylltur óska-
draumur margs bónda, um létta dráttarvél með
mikla dráttarhæfni. Við vinnu á blautum eða
mjúkum akri vill enginn hafa öxulþunga meiri en
nauðsynlegt er, enda sporun og jarðvegsþjöppun nú
talin valda meira og margvíslegra tjóni en reiknað
verði, — en við önnur verkefni er þörf mikillar og
góðrar spymu. Afturöxulþunginn er nú stillanlegur
hvar sem er á bilinu 880 kg — 2000 kg með augna-
bliks-færslu á einu handfangi.
Útlit nýju vélanna er allt annað en þeirra eldri,
einkar nýtízkulegt og smekklegt. Fullkomið upp-
lýst mælaborð, með eldsneytismæli og sígarettu-
kveikjara auk breiðra fótstiga báðum megin er eitt
það fyrsta sem menn reka augun í þegar þeir fara
að skoða nýju vélarnar náið. Öryggisræsir er á öll-
um nýju vélunum, en það þýðir að þær fara alls
ekki í gang ef þær eru í gír, sem er geysilegt ör-
yggi í alla staði, ekki hvað sízt gagnvart börnum
og þeim, sem ræsa vélarnar standandi við hlið
þeirra. iVfismunadrifs'ás er á öllum MF vélum, sem
hingað eru fluttar, einkar hentugt i lausum og hál-
um jarðvegi. Hálfsjálfvirkan útbúnað er hægt að
fá til þess að breyta sporvídd afturhjóla á 2—3
mín. Nú eru framljósin orðin innbyggð, og því
ekki eins hætt við hnjaski. Aflúrtakið er að sjálf-
sögðu tveggja hraða nú sem fyrr, og vinnsla aflúr-
taksöxlanna algjörlega óháð gírskiptingum.
Massey-Ferguson dráttarvélarnar sem komnar eru
til landsins eru 32, 46, 58 og 67 hestafla, allar
búnar hinum traustu Perkins dieselvélum.
j
RÁÐNINGASTOFA I
LANDBÚNAÐARINS |
er starfrækt á vegum Búnaðarfélags íslands og er opin allt árið. — Dagleg |
afgreiðsla er virka daga frá kl. 9—12 og 1—17, nema á laugardögum: j
Hlutverk ráðningastofunnar er að aðstoða bændur við ráðningu verkafólks, j
þ. e. unglinga og fullvaxinna manna og kvenna, til hverskonar sveitastarfa. j
Milligöngu um vistun barna — yngri en 12 ára — getur ráðningastofan ekki j
sinnt. j
Nauðsynlegt er, að bændur í fjarlægum sveitum hafi umboðsmenn í Reykjavík,
er ráðningastofan getur snúið sér til í sambandi við upplýsingar, sem vinnu-
veitandi og vinnuþiggjandi gagnkvæmt óska að fá, áður en ráðningar eru
bundnar fastmælum. j
RÁÐNINGASTOFA LANDBÚNAÐARINS