Freyr - 01.04.1970, Síða 9
f. e. Afurðaháum búum fjölgar ár frá ári,
en of mörg eru langt fyrir neðan meðaltalið.
Annars er það líklega eftirtektarverðast, ef
afurðaskýrslur eru athugaðar síðustu árin,
hvað margar kýr að fyrsta kálfi mjólka nú
orðið mikið. Það er að verða algengt að
þessar kýr skila 20.000 f. e. og nokkuð þar
yfir.
Þetta stafar ugglaust af því, að uppeldið
er að batna og einnig meðferðin eftir burð.
Eftirfarandi tölur sýna hver þróunin hef-
■ur orðið á starfsferli S. N. E.
Úr skýrslum S. N. E.
1930 910 2.695 3.598 9.697
1938 1390 2.899 3,660 10.610
1943 1305 3.050 3,825 11.666
1953 1829 3.226 3,759 12.127
1955 1894 3.459 3,800 13.144
1932 2428 3.617 3,897 14.095
1965 2650 3.853 4.015 15.470
1967 2512 3.999 4,071 16.280
1968 2646 4.089 4.066 16.625
Þessar tölur eru teknar þau ár, sem fitu-
einingar hækka um 1000 frá því sem síðast
var, eða því sem næst og árinu 1968 bætt
við. Eins og sjá má á þessari töflu gengur
afurðaaukningin í talsverðum öldum og er
lang örust síðustu árin. Varla er hægt að
tala um, að stöðnun hafi komið í afurða-
aukninguna, en á sumum tímum hafa afurð-
irnar nærfellt staðið í stað um nokkurt ára-
bil.
Hvort meðalafurðir haldi áfram að aukast
er ekki gott að segja, því að þar veltur á
mörgu, en möguleikar á að svo geti orðið
eru miklir og því til stuðnings skal taka
þetta úr skýrslum S. N. E. árið 1968, og
miðað við fitueiningar fullmjólka kúa.
Afurðir frá 10.000—16.000 f. e. hafa 36,6%
af skýrsluhöldurum.
Afurðir frá 16.000—17.000 f ,e. hafa 19,4%
af skýrsluhöldurum.
Afurðir frá 17.000—22.000 f. e. hafa 44,0%
af skýrsluhöldurum.
Ef betur er að gáð kemur fram varðandi
þessar tölur, að rétt um helmingur af
Úr nýja svínahúsinu á Rangárvöllum.
skýrsluhöldurum eru fyrir neðan meðaltal-
ið, sem er eðlileg skipting og enn fremur
er vert að geta þess, að meðalbústærðin er
heldur meiri hjá þeim búum, sem eru fyrir
ofan meðaltalið. Til frekari glöggvunar á
þeim geysilega mun á afurðum einstakra
búa árið 1968, að þá eru 22 bú með undir
14.000 f. e. eftir fullmjólka kú, en 26 bú yfir
F B E 'Y R
145