Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 18

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 18
um, og hefur víða verið þörf á því. Þá má líka minna á það, að enn er til ungt fólk í sveitunum, sem telur það tilhlökkunarefni að fara í göngur. Nú standa yfir miklar athafnir á þessum afréttarlöndum í sambandi við fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir við svokallaða Sig- öldu, og er þegar farið að mæla fyrir há- spennulínu frá Búrfellsvirkjun þangað. Einnig hefur verið lagður vegur frá Þjórs- árbrúnni við Búrfell og inn að Sigöldu, en það er 32 km leið. * * * Fyrir rúmum 20 árum, var stofnað Ræktun- arsamband Ása- Holta- og Landmanna. Vélakostur þess sambands hefur venjulega verið mikill og verkefnin voru næg framan af árum, en hafa mjög dregizt saman. Hin síðari ár hefur sambandið ekki haft nóg verkefni fyrir tæki sín á félagssvæðinu. Annað ræktunarsamband er í Ðjúpárhreppi fyrir þann hrepp. Á s.l. vori bar nokkuð á kali í túnum á Suðurlandi, bændur munu þó yfirleitt ekki hafa áttað sig á því, fyrr en nokkuð leið á vorið, hversu eyðileggingin var mikil. Stórar skellur blöstu víða við í túnum, þar sem gróður allur var aldauða, annars staðar kom upp arfaþvæla. Þess mun ekki hafa verið annars kostur en bera á túnin, eins og venjulega, hvernig sem ástand þeirra var. Var slíkt mjög tilfinnanlegt af því að gífurleg verðhækkun varð á áburði á s.l. vori. Mikið er rætt um, hverjar orsakir eru fyrir kalskemmdunum, er þar sennilega um fleiri samverkandi orsakir að ræða. í þessu sambandi hefur það verið nefnt, að tún voru víða ekki slegin fyrr en seint árið áður. Voru þau þá úr sér sprottin og rótin orðin fúin. Það kann að vera, að einhvers staðar hafi þetta átt þátt í kalskemmdum, en ég veit þó dæmi þess, að tún, sem var slegið snemma á því sumri er nú nær ónýtt. Ann- að tún, sem var ekki slegið fyrr en seint, þá úr sér sprottið, reyndist óskemmt. í maí s.l. vor voru mikil hlýindi, jörðin þiðnaði og það voru orðnar ein eða tvær tommur niður á klaka. Tún, sem voru í góðri rækt, voru að byrja að grænka, þá kom hörkufrost, og það er líklegt, að það hafi valdið rótarslitum. Tel ég þetta senni- legustu skýringuna á þeim stórkostlegu skemmdum, sem voru í túnum okkar sunn- lenzkra bænda s.l. sumar. Einnig bar mikið á því, að tún spruttu ekki, þó að þau væru lítið eða ekkert skemmd, og fengju áburð eins og venjulega. Margar getgátur eru uppi um orsakir þessa, og er það ihugunar- og rannsóknarefni fyrir sérfræðinga okkar á sviði grasræktar að leita þeirra. Á Laugarlandi í Holtum er sameiginlegur barna- og unglingaskóli fyrir Ása- Holta- og Landmannahrepp. Sá skóli er búinn að starfa í ellefu ár. Skólinn var upphaflega byggður sem heimavistarskóli. Fyrir tveim- ur árum var það orðið ljóst, að skólinn var of lítill. Var þá hafizt handa um að láta gera teikningar og kostnaðaráætlanir fyrir heimavist og kennslurými fyrir 28 nem- endur að auki. Þegar áætlanir lágu fyrir tók skólanefndin þá ákvörðun, með sam- þykki fræðsluyfirvalda, að breyta skólanum í heimankeyrsluskóla. Almenn ánægja var í sveitunum með þetta fyrirkomulag, og eng- ar líkur eru til þess, að heimavist verði tek- in upp aftur við þennan skóla á næstu árum. Þarna er líka um mjög mikið fjárhagsatriði að ræða í þessu sambandi, bæði fyrir ríkið og viðkomandi sveitarfélög, því talið er, að heimavistar- og kennslurými kosti nú nær einni miiljón króna fyrir hvern nemanda. í Djúparhreppi er heimangönguskóli fyr- ii' börn, en unglingum er ekið í skóla að Hellu * * * 1 Holtahreppi eru tvær verzlanir, önnur er útibú frá Kaupfélaginu Þór á Hellu, við Landvegamót, og útibú frá Kaupfélagi Rangæinga á Hvoisvelli er á Rauðalæk. Einnig er bílaviðgerðarverkstæði á Raaða- 154 . r e r r

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.