Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1970, Síða 38

Freyr - 01.04.1970, Síða 38
ROTMAKK KVERK ófáanlegt framvegis Kálflugan er mjög svipuð húsflugu að stærð og útliti. Til vinstri er kvendýr og til hægri er höfuð af karldýri. í nokkuð mörg ár hefur plöntulyfið Rot- makk Kverk verið mikið notað gegn kál- maðki hérlendis, bæði í kál- og rófnarækt- un. Árangur af notkun þess hefur yfirleitt verið prýðilegur, og margir hafa álitið lyfið áhrifamest allra til útrýmingar kálmaðki. Rotmakk Kverk er fljótandi samband af Lindan og Chlordan, og hefur jarðvegurinn umhverfis plönturnar verið bleyttur með upplausn af því í vatni. Nú hefur framleiðslu og þar með sölu á Rotmakk Kverk eins og svo mörgum öðr- um klórauðugum plöntulyfjum, verið hætt mjög víða af öryggisástæðum, því sýnt er að lyf þessi hlaðast upp í jarðveginum og safnast jafnframt fyrir í fituvefjum manns- líkamans. Stöðvun framleiðslunnar þýðir það, að allir þeir, sem hingað til hafa notað Rot- makk Kverk til varnar gegn kálmaðki, verða að snúa sér að öðrum lyfjum á kom- andi vori. Ræktunarfólk ætti að fara að íhuga þetta hvað úr hverju og velta vöngum yfir hvaða önnur lyf geti komið hér í stað. Hjá þeim, sem verzla mest með plöntulyf, höfum við gert smákönnun á því, hvaða lyf þeir muni verða með í vor, sem til greina koma gegn kálmaðki, og hefur það leitt í ljós, að eftirfarandi gerðir verða til sölu: Alvora — P fljótandi orto-dibrom. Hefur ekki verið reynt hér gegn kálmaðki en hefur aftur á móti gefizt vel sem úðunarlyf gegn blaðlús og fiðrildalifrum. Styrkleiki við vökvun 0.125%. Basudin fljótandi diazinon; mjög fjöl- virkt lyf. Styrkleiki 0.1—0.3%. Hefur verið notað hér nokkuð undanfarin 2—3 ár. Ár- angur þykir misjafn. Gesarol DDT-samband, sem ennþá er framleitt, en mun senn hætt að nota víðast hvar, og er nú þegar sumsstaðar bannað við matjurtaræktun. Er í duftformi, einnig sem úðunarlyf. Lindasect 20 Klórauðugt fljótandi efna- samband með hliðstæða eiginleika og DDT. Notkun þess þó hvergi bönnuð ennþá. Styrkleiki 0.12—0.2%. Malation fosforestersamband, skylt Par- ation en margfalt veikara eitur. Afar fjöl- hæft lyf. Fæst bæði fljótandi og sem duft. Mest notað fljótandi í 0.15—0.2% styrkleika. Hættufrestur mjög stuttur (7—14 dagar). Sumithión 50, fenitrotionlyf, sem notað er í styrkleika 0.15% til úðunar eða vökvun- ar. Enn sem komið er er engin reynsla af lyfi þessu hér. Agritox í kornóttu formi, mun að líkind- um einnig hægt að fá, hins vegar mun korn- ótt Basudín ekki verða fáanlegt. Ó. V. H. 174 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.