Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1970, Síða 42

Freyr - 01.04.1970, Síða 42
Heildarvelta aðalbankans varð 70.5 milljarðar á móti 58,7 milljörðum 1968. í útibúum varð mest velta í Austurbæ 23.1 milljarður og á Sauðárkróki 13,2 milljarðar. Afgreiðslufjöldi víxla, þar með taldir afurðavíxlar og innheimtuvíxlar var í aðalbanka 58688 og tala vanskilavíxla 254, en vanskilaprósenta víxla var 4,1%. I árslok 1968 voru vanskilavíxlar 344 og van- skil 3,9%. ÝMISLEGT Nýtt bankahús var tekið í notkun á Hellu hinn 22. marz 1969 á fimm ára afmæli útibúsins og bætti það úr brýnni þörf vegna hins öra vaxtar útibúsins. A Egilsstöðum eignaðist bankinn nýtt hús í maka- skiptum og er unnið að fullgerð þess. Hinn 9. júní 1969 var opnuð umboðsskrifstofa frá útibúinu á Reyðarfirði og er hún opin fyrst um sinn tvo daga í viku. A Blönduósi var samið um kaup á íbúð fyrir úti- bússtjóra. Þá veitti ráðherra bankanum heimild til að starf- rækja útibú fyrir Strandasýslu og tekur það væntan- lega til starfa á Hólmavík á þessu ári. Smíði bankahússins við Hlemm í Reykjavík er að ljúka og taka nokkrar deildir hankans til starfa á næstunni. STOFNLÁNADEILD OG VEÐDEILD Stofnlánaleild landbúnaðarins afgreiddi á árinu 916 lán að fjárhæð 116,8 milljónir króna, en árið áður voru afgreidd 1099 lán að fjárhæð 136,6 milljónir króna. A-lán til vinnslustöðva, útihúsa, ræktunar og véla námu 95.1 millj. krónum, en B-lán til íbúðarhúsa 21,7 milljónum króna .Útistandandi lán Stofnlánadeildar námu í árslok samtals 1123 milljónum króna. Varasjóður Stofnlánadeildar hækkaði á árinu um 39,8 milljónir og nam í árslok 124,8 milljónum. Árið áður lækkaði varasjóður deildarinnar um 39,2 mill- jónir vegna gengistaps. Lánveitingar veðdeildar námu samtals 65,6 mill- jónum króna á árinu 1969. Veitt voru 93 lán til jarðakaupa samtals að fjárhæð 15 milljónir króna, en árið 1968 voru lánaðar 7,6 milljónir króna í þessu skyni. Þá voru veitt 260 ný lán vegna lausaskulda bænda samtals að fjárhæð kr 50,6 milljónir Rekstrarhalli veðdeildar hefði orðið 1,1 mliljón, ef ekki hefði komið til framlag frá ríkissjóði af gengis- hagnaði 15 milljónir króna. Til varasjóðs veðdeildar var því ráðstafað 13,9 milljónum króna og var hann 19 milljónir króna í árslok 1969. SAMEINING Á BLÖNDUÓSI Hinn 13. febrúar s.l. var undirritaður á Blönduósi samningur milli Búnaðarbanka Islands, útibúsins á Blönduósi annars vegar, og stjórnar Kaupfélags Húnvetninga hins vegar, þar sem innlánsdeild Kaup- t'élagsins er sameinuð útibúi bankans. Samkvæmt samningum hættir innlánsdeildin starfsemi sinni og flytjast innstæður viðskiptamanna hennar í útibúið og verða sparisjóðsbækur inn- kallaðar, en sparisjóðsbækur bankans koma í þeirra stað. Á sama hátt færast skuldir viðskiptamanna til bankans að gerðum nýjum greiðslusamningum við einstaka skuldunauta . Sérstaklega er tekið fram, að útibú bankans muni leitast við að veita bráðabirgðarlán gegn hæfilegum tryggingum til framkvæmda bænda, sem stofnlán verða veitt til. vélakaupa, rekstrar kaupfélagsins o. fl. Við sameiningu námu innlán í kaupfélaginu um 37 milljónum króna. Standa vonir til, að með slíkri sameiningu pen- ingastofnana sýslunnar með Búnaðarbankann í Reykjavík að bakhjalli, muni fjármagn héraðsbúa nýtast betur til eflingai- búskap og atvinnulífi í Húnavatnssýslu. DALTON BÚFJÁRMERKI Fyrir þrem árum hóf ÞÓR hf. innflutning á DAL- TON búf jármerkjum frá Bretlandi, sem eru úr hertu plasti og í litum í samræmi við reglugerð sauðfjár- veikivarna um litamerkingu búfjár. Á merkin er ennfremur hægt að fá áletrun eftir óskum viðskipta- vina svo sem brennimark, bæjarnafn eða skamm- stöfun, allt að fimm stöfum, á aðra plötuna og hlaup- andi númer á hina. DALTON búfjármerkin eru af tveim stærðum, annars vegar stór merki fyrir nautgripi og hross og hins vegar sauðfjármerki sem eru minni. Á þeim skamma tíma. sem liðinn er síðan innflutn- ingur merkjanna hófst, hafa þau náð geysi mikilli útbreiðslu og má nú segja að notkun þeirra sé orðin almenn meðal bænda og fer stöðugt vaxandi. Til að svara þessari auknu notkun og veita bænd- um fljótari og öruggari afgreiðslu á pöntunum sínum hefur ÞÓR hf. nú fengið sérstakar vélar, til að þrykkja áletrun á merkin, en hingað til hefur þurft að senda pantanir út til framleiðanda og merking farið þar fram. Jafnframt hefur ÞÓR hf. tekizt að útvega í vélar þessar alla þá stafi, sem einkennandi eru fyrir ís- lenzka letrið (t. d. Þ, Ð, f, Æ) og geta því bændur pantað þá stafi jafnt sem aðra. Nýjung er það einnig, að nú er völ á DALTON sláturmerkjum, þ. e. merkjum til ísetninga í vor- lömb, til að hafa í til hausts, en þau eru ekki ætluð sem varanleg merki. Annars eru sláturmerkin að öllu Ieyti eins og merkin samkv. litakortinu, nema í hlutlausum lit og talsvert ódýrari. Þar sem óðum dregur nú nær vori, er rétt að benda bændum á að panta merki sem fyrst fyrir sauðburð í vor, svo öruggt verði um afgreiðslu í tíma. 178 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.