Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1971, Qupperneq 7

Freyr - 01.02.1971, Qupperneq 7
Korn og kjarni er því eitt og hið sama og ekkert er kjarni annað en það, sem er inn- an í þegar búið er að losa umbúðirnar og greina þær frá. Þetta hafa aðrar þjóðir nafngreint og nafngift þeirra hefur aldrei ruglast í því sambandi. Allar korntegund- irnar hjá þeim eru korn eða öðru nafni kjarni, en síðara heitið helzt notað þegar um ræðir fóðrun með þessari vöru. (Ensku- mælandi þjóðir nota Corn um maís og Sví- ar um bygg sérstaklega). Og hví skyldum við ekki einnig geta fallizt á að nota hið upprunalega í þessu sambandi? Þegar búið er að mala kornið er það orðið mjöl, svo sem allir vita. Ýmsir hafa talað um að gefa skepnum mjöl eða deig og mun þá varla nokkur villast á um hvaða fóður ræðir. Nú er mjöl gert af allskonar fiskúrgangi og ýmsu öðru og er þá gjarnan tengt framan- við mjölið: fiski-, síldar-, hval-, rækju- o. s. frv. Þetta er ágætt og segir skilmerki- lega hverskonar mjöl um ræðir hverju sinni. Sé aðeins um vijöl að ræða getur það þá verið bundið við malað korn og þarf eng- inn að villast á því. Og allt getur borið heitið mjöl, hvort sem það er gert af byggi, hveiti, maís, hirsi, rúgi, höfrum eða enn öðrum korntegundum, það er mjöl af korni gert, kornið er kjarninn og allt er þetta kjarnfóður. Þannig hafa aðrir mótað nafn- giftina og því ekki að afmarka nafn og skilning til samræmis hér? Getum við fallist á þetta þá erum við ekki á neinum villigötum og þurfum ekki að ruglast eða spyria nánar um við hvað er átt. Við erum við upDruna heitisins og nær kjarnanum verður þá ekki komist. Kjarnfóður ber því að nefna allar þær tegundir fóðurs, sem gerðar eru af kjarn- anum einum, hvort sem um ræðir heilan kjarna, valsaðan, malaðan eða á annan veg með farinn. Það er öll vara úr jurtaríkinu, sem við notum til fóðurs, að undanskildu þó olíujurtarfræi, sem hæpið er að setja í sama flokk af vissum ástæðum, sem ekki skal rekja í þessu sambandi. 2. KRAFTFÓÐUR Þegar rætt hefur verið um kornvöruna og það, sem úr henni er unnið, sem hið eina og raunverulega kjarnfóður (kærne, kærnefoder) er næst að athuga hvað það er, sem þá er eftir til að flokkast undir heitið kraftfóður. í nútíma fóðurfræði og á almennum vettvangi bræðraþjóða er stund- um sett forskeyti fyrir framan nafnið kraft- fóður, t. d. prótein-kraftfóður og í öðru lagi er skeytt aftan við þegar um fóðurblönd- ur er að ræða og þá gjarnan skilgreint sem kraftfóðurblöndur (kraftfoderblandinger). Það er því auðsætt, að kraftfóðrið nær til þessara tveggja þátta að minnsta kosti. Prótein-kraftfóður, eða bara próteinfóð- ur, er samheitið á hinum ýmsu mjölvörum úr kjöti og fiski unnum, á síðari árum einn- ig úr lægri lífverum, sveppum og bakterí- um, sem ræktaðar eru í þeim tilgangi, þótt ekki sé það enn mikið magn í samanburði við aðra oróteinvöru, sem er á markaði, og svo er hið mikla magn jurtapróteins, sem er á almennum heimsmarkaði, sem sé það, er fæst úr olíujurtum, einskonar aukafram- leiðsla begar jurtafeitin hefur verið press- uð eða leyst úr á viðeiganndi hátt (extra- heret). Þessar vörur hafa að sjálfsögðu mjög misjafnt fóðurgildi, en yfirleitt má segja, að þær hafi meira orkugildi en kjarnfóðr- ið í líkama æðri dýra. Veldur þar um nokkru, að í ýmsum þessum mjölvörum er nokkurt magn af fitu, auk próteins og ann- arra brennanlegra efna. Norrænar þióðir hafa bví fallizt á að kalla þessar fóðurtegundir sameiginlega kraftfóður, og þegar þeim er blandað í mjöl hinna ýmsu korntegunda fylgir nafnið kraftfóður — og „blöndur" hnýtast þá aft- an í. í daglegu máli láta flestir sér nægja að tala þá um kraftfóður, þessvegna aftur auðkennið með prótein að forskeyti, sé ekki um blöndur að ræða. (Hér er raunar um að ræða það, sem al- menningur kallar ranglega eggjahvítu, en próteinvörur eru byggðar af amínósýrum F R E Y R 59

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.