Freyr - 01.02.1971, Side 34
neyzlu fitu úr dýraríkinu. Mikilvægustu
atriðin, sem koma í veg fyrir æðakvilla,
eru:
1. Neyzla blandaðrar fæðu og alhliða.
2. Að orkumagn fæðunnar sé í samræmi
við þörfina.
3. Lögð sé stund á hæfilega hreyfingu.
4. Tóbaksnotkun sé sem allra minnst.
Eftirskrift:
Þessar eru niðurstöður og skýringar um-
ræddra rannsókna með 912 manns í nokk-
ur ár.
I herferð þeirri, sem um undanfarin ár
hefur verið gerð hér á landi frá vissri hlið
gegn neyzlu mjólkur og mjólkurvöru yfir-
leitt, hefur það verið brýnt fyrir fólki hve
slík fæða sé hættuleg næring, þar eð hún
eigi sinn þátt að vaxandi kvillum í æða-
kerfi fólksins. Um það er ekki að villast,
að fjöldi fólks trúir þessu og hefur minnk-
að að miklum mun eða hætt neyzlu um-
ræddrar fæðu — fæðu, sem um allar aldir
byggðar hér, eins og annarstaðar, hefur
verið talin mesta heilsulind fólksins. Um-
ræddar aðvaranir hafa verið tjáðar án
nokkurra sannana og hafa í fyllsta mæli
verið atvinnurógur á hendur þeirri þjóð-
félagsstétt, sem framleiðir vöruna.
Það virðist augljóst mál, að bændastéttin
getur ekki lengur staðið aðgerðarlaus
heldur hlítur að leita réttar sins og krefj-
ast þeirra milljóna, sem umræddur áróðuf
hefur rúið hana á undanförnum árum
þegar fólk hefur takmarkað notkun þeirrar
ágætu vöru, sem mjólkurmatur hefur alla
tíð verið.
86
F R E Y R