Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1972, Síða 11

Freyr - 01.12.1972, Síða 11
BirgSageymslan er frá Setesdal, talin byggð af Asmundi ilia, sögufrægri persónu, er lifði á 16. öld. halda sínum forna rétti, ráða yfir láði því og legi, sem ættin hafði haft til forsjár um aldir. Voru þeir andstæðingar embættismanna gilti annað gagnvart konungi. Konungur var í þeirra hug einskonar yfirbóndi og hans hirð var einskonar yfir-óðalsfjöl- skylda. Klögumál þeirra gengu beint til konungs og til liðs við konung var sjálfsagt að koma þegar þess var þörf. Þegar Svíar réðust inn í landið 1716 þustu sjálfboða- liðar að úr ýmsum sveitum til liðs við konunginn. Þvílíkt viðhorf mundi vart á öðrum vettvangi auglýst, enda var kon- ungsvald löngum skoðað þar sem hlið- stæða höfðingjavalds óðalsbóndans. Fornri bændamenningu hafa víða verið reist minnismerki og í söfnum hefur varð- veitzt fjölmargt það, sem um komandi aldir vottar hver sá menningararfur er, sem gengnar kynslóðir skila niðjunum. í öðru lagi greina bókmenntir frægra höf- unda og mikilsvirtra listamanna frá veg- legri bændamenningu vítt um sveitir Noregs á liðnum öldum. Þar liggja rætur fjölþættrar menningar, sem móta sterka stofna vorra tíma. Byggingarnar. Á norskum byggðasöfnum getur að líta, á okkar tímum, byggingar, sem þangað hafa verið fluttar úr hinum dreifðu byggð- um. Sumar þeirra eru margra alda gamlar, jafnvel frá 10 — 12. öld, og enn búnar einkennum síns tíma. Ending þeirra er auðvitað því að þakka, að þær hafa verið gerðar af fornum trjám og ýmsar staðið í staðviðrisbyggðum, þar sem timbur end- ist vel. Á þessum fornu húsum, svo og hliðstæð- um frá síðari öldum, getur að líta hand- bragð, sem ber órækan vott um lista- mennsku þeirra aðilja, sem að verki hafa verið. Það votta m. a. útskornar öndvegis- súlur og telgdar stoðir, sem við anddyri voru vitni þess, að inni byggju höfðingjar. í öðru lagi er eðlilegt að benda á þau meistaraverk, sem bjálkahúsin fornu sýna, þar sem saman voru telgdir og felldir bjálkarnir, er mynduðu útveggina, en á F R E Y R 467

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.