Freyr - 01.12.1972, Síða 12
Trappan er gerð af trjástofni með íhöggnum tröpp-
um. Á loftinu eru geymdar kistur og klæðnaður
en fyrrum var þar svefnloft. Birgðageymslan (stab-
buret) er talið byggt um miðja 17. öld.
hornum húsanna var trjánum læst saman,
laftahöfuð náðu út fyrir hornin á tvo vegu,
og jafnvel þau báru handverksmönnunum
órækan vitnisburð, auk þess sem af lögun
þeirra er hægt að tímasetja byggingarnar.
Laftahöfuðin voru sem sé tízkufyrirbrigði
þannig, að lögun þeirra var breytileg frá
einu skeiði til annars.
Tímabundið var einnig hvernig trjá-
stofnarnir voru lagðir í útveggina. Allt
fram um 1200 voru þeir notaðir sem sí-
valningar, en eftir það var farið að telgja
þá og gera sporöskjulagaða að þvermáli.
Timbur vantaði ekki og timbrið var
gamalt og gott, og flestir eða allir menn
lagtækir, eins og gerist allstaðar þar, sem
gnótt timburs er á næsta leiti. Eldri og
vandaðri smíðar voru skipin, því að þar
þurfti sanna smiði og listamenn að verki.
Tímabundin voru einnig stafhúsin, en þau
voru þannig gerð, að trjástofnarnir stóðu
hlið við hlið, lóðréttir, en í bj álkahúsunum
var þeim hagrætt láréttum.
í! * =1!
Hér skal ekki rakin saga byggingafyrir-
komulagsins, hún væri allt of mikið mál.
Hitt skal tjáð, að snemma var húsakostur
rúmur, byggingarefnið — timbrið — var
alltaf við hendina og það skipti ekki miklu
máli þótt það tæki nokkur ár að reisa
hvert hús, menn byggðu hvort eð var
alltaf fyrir framtíðina. Fyrst voru trén
toppskellt, síðan merkt og látin standa og
harðna unz þau voru felld, og þar næst
flutt að garði og telgd. Skálar voru rúm-
góðir og hvergi þröngt innan dyra yfir-
leitt. Vitni um þann húsakost hefur mátt
sjá við uppgröft fornra húsa á Islandi þar
sem þó varð að nota allt annað byggingar-
efni og vandfengnir voru þeir viðir, sem
bera skyldu stór þök mikilla salarkynna.
Byggt var á jafnsléttu eða í brekkum,
og þar sem hús voru reist í halla var und-
irstaðan jöfnuð með því að hlaða grjóti
undir neðsta bjálka, eða fótstykki, þar sem
um stafhús var að ræða. Nóg var af góðu
hleðslugrjóti og traust var sú undirstaða.
Aðeins eins húss skal hér getið, sem á
seinni tímum og enn í dag vekur eftirtekt
farandmanna, en það er „stabburet“.
Birgðageymslan (stabburet) var og er
bygging af sérstakri gerð. Það er hús á
tveim hæðum, að minnsta kosti, og þar er
efri hæðin meiri að flatarmáli en sú neðri.
Á efnaheimilum var stundum talsverð
vinna lögð í að skreyta þau með útskurði
og þótti virðingarauki að því. En hús þessi
voru líka mjög mikilsverð, því að í þeim
voru geymd matvæli, sem forða skyldu frá
hálfu og heilu hungri þegar harðæri geis-
uðu, raunar á öllum tímum matvæla-
geymsla heimilanna. Þar var og geymdur
allur betri klæðnaður og fataefni, og sitt-
hvað annað, sem vel skyldi varðveitt, en
þar var yfirleitt enginn raki og þangað
komust hvorki mýs né önnur nagdýr, sem
468
F R E Y R