Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1972, Síða 24

Freyr - 01.12.1972, Síða 24
Fulltrúi nýrrar kynslóðar stendur við fjörðinn, hún er í Harðangri og því ekki óeðlilegt, að harðang- urssaumur er í breiðu blúndunni í svuntu telp- unnar. en féndur. Þar urðu skessur að steinstólp- um endur fyrir löngu. Nykur í ám og vötnum gat brugðið sér í ýmissa kvikenda líki og hafði það til að seiða til sín fólk á hverju ári og einkum voru börn vöruð við að vera of nærri vötnum eftir sólarlag, því að nykur gat komið upp á vatnsbakkann og haft þau með sér í heimkynni sín. Marbendlar og hafmeyjar gátu verið viðsjárverðar verur, og það var með hafmeyjarnar eins og álfa- meyjar, að þær höfðu það til að seiða til sín pilta úr mannheimum og þeim var sjaldan heimkomu auðið aftur. Og svo var það huldufólkið. Það hafði eðli og hneigð rétt eins og sögur hafa af farið um öll lönd. Það var sýnilegt við sérleg tækifæri en nálægð þess miklu al- gengari og samskiptin við það 1 ýmsu mjög mannleg, en annars þrungin huldukrafti til hins góða eða illa eftir því hvernig sam- skipti manns og þess voru í venjulegu dag- fari. Og víst þótti gott að eiga að nærkonur úr hulduheimum þegar tvísýn fæðing bar að. Það var ekki bara dóttir Gönguhrólfs, sem legið hafði með fæðingarhríðir í 17 daga og gat ekki fætt, en fékk loks aðstoð álfkonu. Sú saga hefur endurtekizt mörg- um sinnum á hverri öld síðan, eða önnur álíka. .... Og svo voru það menn og konur, er í nokkrum eða miklum mæli höfðu mátt og megin, sem öðrum var ekki gefið. Þann yfirnáttúrlega kraft var gott að eiga, en hann var hægt að misnota og var svo gert stundum, en í góðum tilgangi af mörkum lagður var hann vel þeginn. Galdrar og gerningar voru á valdi þeirra, sem hlotið höfðu þessa yfirnáttúrlegu krafta í vöggu- gjöf og eiginleika þessa var að sjálfsögðu hægt að efla með æfingu. Væru þeir viðhafðir til að brugga öðrum mizka eða mótblástur þá ollu galdramenn- irnir ótta meðal fólks, ef þeir voru þá ekki ofsóttir og útrýmt með einhverjum ráðum vegna óeðlisins. Hitt þótti gott og gagnlegt þegar gerningar voru notaðir til þess að flytja fólki heill og hreysti og buga á brott veilum og veikindum. Einatt urðu slíkir „andans menn“ að heita á aðrar verur og ósýnilegar sér til fulltingis og skipti þá miklu máli hvort þær komu frá veröld myrkranna og illra anda eða úr ljósheim- um. Varúlfur og mara voru verur, sem betra var að eiga að vinum en meinvætti. Þá var gott að eiga varnaranda ef þessar verur eða aðrir meinvættir vildu að sækja. Og gott var að eiga töfrasprota og kunna galdraþulur ef að sóttu illar verur. 480 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.