Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 26

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 26
svo og vöðvavaxtartruflun, á sér stað þegar talsvert magn af ómettuðum feitum sýrum er í fóðri fugla, og að meðal þeirra er linolsýran mikilvægust. Heilasköddun. Af fóðurblöndum, sem geyma óstöðugar og ómettaðar feitar sýrur og í skortir E-vita- mín, fá hænuungar, sem eta þær, reikular hreyfingar, óreglulegan gang og óvissan fótaburð, hallandi höfuð, vaxandi magn- leysi og endalokin verða jafnan dauðsföll. Forsendur þessa eru veilur í heila, fyrst og fremst í litla heila, en einatt líka í stóra heila og heilastofni. Oftast koma veilurnar í ljós þegar ungarnir eru 3.—5 vikna, en einnig á öðrum aldursskeiðum. í Noregi er þessi kvilli ekki algengur, og þess má reyndar geta, að hörgulkvillar í alifuglum eru þar ekki algengir og skipta ekki miklu máli í samanburði við aðra kvilla. Það eru helzt þeir, sem setja má í samband við skort á E- og D3 vitamínum, sem eitthvað gætir. í þeim hópi hænuunga, sem rannsakaður er við Dýralæknastofn- unina í Osló, ber mest á þeim heilaskemmd- um, sem stafa af skorti á E-vitamíni, en aðrir kvillar af sömu rót eru smávægilegir. Tölulegar staðreyndir stofnunarinnar frá árunum 1965—’70 gefa til kynna, að heila- rýrnun hefur numið 4,6% hjá rannsökuð- um hænuungum, og má því telja það veru- leg afföll og efnahagslegt tjón fyrir norska hænsnaræktendur. Umrædd afföll hafa verið dálítið meiri meðal holdafugla en annarra unga. Meðalaldur unga, sem komu til rann- sókna, var 4,4 vikur. Aldursákvörðun var einatt byggð á áliti rannsóknaraðilja og getur því skeikað lítillega. Sjúkdómsgrein- ingin hefur verið ákveðin með smásjár- rannsóknum á heilavefjum eftir fyrirsögn Jungherrs. Ytri auðkenni kvillans voru jafnan greinileg og langflest komu þau í ljós á tveggja — fimm vikna aldrinum. Hjá eldri ungum voru fyrirbærin fágæt, voru lengi að koma í ljós og við skoðun á rannsóknarstofu voru auðkenni öll ógreini- leg og vandasöm til úrskurðar. Á eldri ungum getur þó gangur verið óviss, reisn bolsins óvenjuleg og frambeygja höfuðs ofarlega á hálsi greinileg auðkenni. Lopabólga. Fyrirbæri af þessu tagi lýsir sér sem vökva- myndun í undirhúð, er safnazt við síun vökva frá blóðinu í gegn um háræðar. Jafnframt gerist það, að próteinmagn blóðsins minnkar. Þessi veila kemur í ljós þegar E-vitamín og selen skortir í fóðrið, sem skepnan nærist af. Ekki hefur hún valdið teljandi efnahags- legu tapi hjá norskum hænsnaræktendum. Stöku sinnum hefur kvillans ef til vill gætt, án þess að eiginlegar sannanir hafi fengizt. Þó skal þess getið, að í uppeldi holdafugla varð fyrir fáum árum vart kvilla, er í flestu líkist þeim, sem hér um ræðir. Auð- kennin voru helzt vökvafyllt og blóðlituð undirhúð þegar ungarnir voru 3—4 vikna, og dauðsföll námu 5%. Eiginleg ástæða var ekki þekkt og þetta leið hjá án þess að bætt væri seleni í fóðrið. Vannæring vöðva. Fyrirbæri það, er hér um ræðir, auðkenn- ist af ljósum röndum í brjóst- og lærvöðv- um hjá hænuungum á aldrinum nálægt 4. vikna, og á frumrót í skorti á E-vitamíni, og svo skorti á brennisteinstengdum sýr- um, einkum cystini. Sannað hefur verið, að vöðvarýrnun í maga og hjarta kalkúna á frumrót í selen-skorti. Vannæring vöðva hjá öndum hefur verið hindruð með notkun E-vitamíns og ekki með selen, en samhengi hér í milli er enn óljóst. I Noregi hafa þessi fyrirbæri verið sjald- gæf. Vannæring vöðva er ekki óþekkt þar, en forsendur óljósar. Fyrir nokkrum árum kom þetta þó í ljós hjá hópi andarunga, og bæði vefjarrannsóknir og lækning kvill- ans bentu eindregið til skorts á E-vita- míni. 482 F R E Y R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.