Freyr - 01.12.1972, Síða 46
í Borgarnesi.
Gamla sláturhúsið
Iengst t. v.
Pakkhúsið til
hægri stendur enn.
Það var Baðhús Reykjavíkur, og fórum við
bræðurnir þar í kerlaug í fyrsta sinni á
ævinni. Heimsótti ég það hús síðar, er ég
dvaldi í Reykjavík og á ferðum mínum
þangað.
Frá Reykjavík fórum við fljótlega upp
í Borgarnes með litlum gufubáti (Suður-
landinu?). Það var valt og gangtregt og
hefur mér ekki liðið verr á öðrum skipum,
enda er Borgarfjörðurinn grunnur og sjóir
krappir ef nokkuð hvessir.
Borgarnes var þá smáþorp með nokkrum
verzlunum og Kaupfélagi Borgfirðinga og
var það fyrsta kaupfélagsbúð, sem ég sá
og kom inn í. Bezt man ég eftir slátur-
húsinu, sem einnig var hið fyrsta er ég sá.
Kom ég þar og horfði á slátrunina og þótti
greiðlega að unnið. Kindurnar voru látnar
lifandi upp á borð á vinstri hlið, löngum
hnífi, með tvíeggjuðum oddi, var rennt í
gegnum hálsinn fyrir aftan vélindið og
síðan var oddi hnífsins rennt í mænuna og
hún stungin sundur.
Var þetta sem eitt hnífsbragð, unnið af
öryggi og leikni. Hafði ég ekki séð slíkt
áður.
Það vakti athygli mína, að lömbin í
slúturhúsinu og eins í rekstrunum, sem
við mættum á leiðinni frá Borgarnesi og
upp að Ferjubakka, virtust vera sem næst
eingöngu hvítir, hyrndir lambhrútar. Sást
varla mislitt eða kollótt, gagnstætt því sem
ég átti að venjast heiman. Má vera að
gimbrarlömbunum og fullorðna fénu hafi
verið lógað síðar, því hver bær mun hafa
þurft að tvískipta slátruninni.
Við gengum að sjálfsögðu upp að ferju-
staðnum og fannst mér víða ærið grasloðið
og hafði orð á því við sveitunga mína, sem
komu til móts við okkur í Borgarnesi, að
ég væri hissa á því, að svona loðið gras á
greiðlegu landi, hefði ekki verið slegið.
Þeir hlógu að mér og sögðu, að hér í Borg-
arfirði væri nóg af betra engi til að slá,
og var það orð að sönnu.
* * *
Að Hvanneyri komum við um kvöldið, og
þótti mér staðurinn reisulegur og tilkomu-
mikill og hefur sú hrifning varað fram á
þennan dag.
Eins og áður er að vikið ætla ég ekki
að skrifa um skólalífið þar sem aðrir hafa
gert það.
En ég er ekki alveg skilinn við þessa
502
F R E Y R