Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1972, Page 47

Freyr - 01.12.1972, Page 47
tveggja ára dvöl mína í Borgarfjarðarhér- aði, fólkið þar og vissa þætti, er geymst hafa í minni mínu þessi 60 ár, sem liðin eru síðan ég átti því láni að fagna að gista þetta ágæta hérað. Borgarfjörður er eitt af fegurstu og búsældarlegustu héruðum landsins. Veðursæld er þar og mikil. Það má heita grasi vafið milli fjalls og fjöru og héraðið er þéttriðið af fiskiauðugustu ám landsins, og stendur ekkert hérað því á sporði í þeim efnum. Þetta eftirsótta hérað kemur víða við sögur síðan á landnámstíð og Sturlungaöld og hefur það fætt og fóstrað mörg af and- legum og ríkilátustu höfðingjum fram á þessa öld. Mér fannst mjög til um reisn og ríkidæmi margra stórbænda á skólaár- um mínum. Vil ég þar til nefna sveitir eins og Andakíl, Bæjarsveit, Reykholtsdal og Hálsasveit, Hvítársíðu, Þverárhlíð, Stafholtstungur, Borgar- og Álftanes- hreppa. Þá voru heimili hér á landi enn mann- mörg, sjálfum sér nóg og vinnufólk ærið. Ekki get ég sagt að ég hafi ferðast mikið þessi misserin. Það var nú öðru nær. Ég kom þó að Hvítárbakka á skólaskemmtun og íþróttamót. Um páskana 1913 dvaldi ég á Breiðabólstað í Reykholtsdal hjá foreldr- um skólabróður míns, Jóns Ingólfssonar. Var þangað sjö klukkutíma gangur frá Hvanneyri. í þeirri ferð kom ég að Stóra- Kroppi og sá hinn aldna merkismann og fræðaþul Kristleif Þorsteinsson. Auðvitað fór ég oft í Borgarnes, bæði á landi og sjó. Við, sem kunnum að róa, fórum oft um helgar á báti með afurðir búsins í Borgar- nes. Man ég að okkur þóttu 300 punda smjörlíkiskassarnir þungir í meðförum ef illa stóð á sjó og mikið þurfti að vaða, jafnvel fara út úr bátnum á miðjum firði og leiða hann. En fjaran þar er með ein- dæmum leiðinleg, daunill leðja og for, og óðum við oftast berfættir, því ekki voru til skinnbrækur eins og í veiðistöðum og upphá stígvél ekki komin til sögunnar. Ekki vil ég gleyma að geta um veiði- ferðirnar úti að Seleyri vorið 1913. Það var tvisvar sinnum, að við bræður og Guð- mundur frá Selkirkjubóli lentum í því ævintýri, af því að við kunnum að róa. Ekki vildi ég hafa misst af því, þó að það tæki dálítinn tíma frá verklega náminu. Halldór skólastjóri átti fínriðna silunga- vörpu með vængjum og poka aftur úr, svipaða botnvörpu togskipa. Þarna hjá Seleyrinni er mikið flágrynni og sléttur sandbotn og dýpið víðast ekki meira en í mitt læri. Halldór var sjálfur formaðurinn, enda alvanur sjónum frá Dvergasteinsárum sínum. Sá fimmti var Páll Zóphóníasson kennari. Við fórum út úr bátnum, þegar á veiði- svæðið kom, tókum tveir og tveir vængina og lögðum dráttartaugar um öxl og síðan var togað fram og aftur um þetta Seleyrar- svið. Varpan var létt 1 drætti, hlýtt í veðri og engum kalt, þó við væðum í sjálfum okkur, eins og Vestfirðingar kölluðu að vaða hlífðarlausir. Við fengum þó nokkurn slatta í vörpuna, silung, kola, rauðmaga og e. t. v. fleira. Við komum sannarlega ekki þjófar í land. Svo hvessti út fjörðinn og var barátta inn eftir. Við Guðjón vorum á annað borðið, en Guðmundur og Páll á hitt. Halldór settist sjálfur undir stjórn. Þetta gekk ekki vel, því Páll var alls óvanur róðri. Halldór sá strax að svo búið mátti ekki standa, rak Pál að stýrinu en settist sjálfur undir ár og þá fór báturinn að ganga og inneftir komumst við. Ég fer aldrei svo fram hjá Seleyrinni, að ég minnist ekki þessa tog- veiði-ævintýris og alltaf með ánægju. * ❖ * Bændanámskeiðin, veturna mína á Hvann- eyri, voru stórmerkileg, enda vel sótt úr héraðinu og jafnvel víðar að. Fæstir þátt- takendur, er gistu á Hvanneyri, voru 80, en auk fastra þátttakenda komu margir aðrir, og voru áheyrendur oft á annað F R E Y R 503

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.