Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1972, Síða 49

Freyr - 01.12.1972, Síða 49
bræðra, þegar Guðmundur Arnarson er leiddur til höggs þá 18 vetra, er búið var að höggva Sæmund bróðir hans, kornung- an og ágætt höfðingjaefni. Guðmundur Arnarson segir þá við Ögmund fóstra sinn, en hann stóð fyrir vígunum: „Gott væri enn at lifa, ok vilda ek grið fóstri”. „Ög- mundur leit frá ok mælti „eigi þorum vér nú þat fóstri minn“ segir hann ok var hann þá rauður sem blóð“. Mér finnst enn að ég heyri raddblæ Tryggva þegar hann sagði frá þessum hörmulegu atburðum. Hitt Sturlungu-erindi hans var úr Þórðar sögu Kakala. Lýsti hann þar flótta Þórðar undan Kolbeini unga frænda sínum, er hann sótti með her manns eftir lífi Þórðar, og var kominn í Reykholt er Þórður kom að austan í Reykjadal syðra (Lundar- reykjadal nú) er hann frétti til ferða Kol- beins. Þórður fór af Þingvelli á fimmtu- degi um hádegi, en kom föstunóttina, er stjarnan var í austri, til Helgafells, í ó- færð. „Þótti það öllum mikil furða ok varla dæmi til finnast, at menn hefði riðit einum sömu hestum í einni reið frá Þing- velli til Helgafells í svá miklum ófærðum, sem þá vóru. Þóttust þá allir þegar vita, at Þórður mundi til nokkurra stórra hluta undan rekist hafa.“ Erindin og flutningur allur var með slík- um snilldarbrag sem verða má, þegar málsnilld og ást á söguefninu fer saman. Þetta hlaut því að verða ógleymanlegt. Síðan hefur mér alltaf þótt mikið til Þórðar Kakala koma, þrátt fyrir galla hans, og tel hann einn vitrastan og mann- úðlegastan samtíðarmanna sinna. * ❖ * Nú er eftir að geta eins manns, sem kom að Hvanneyri á náms vetrum mínum þar og varð mér ógleymanlegur. Það var Þórð- ur Pálsson læknir í Borgarnesi. Hann hafði frábærlega fagra söngrödd, og var fyrsti einsöngvarinn, sem ég hlustaði á. Hann heyrði ég fyrst syngja lagið Gýgjan eftir Sigfús Einarsson og Benedikt Gröndal. Þá verður mér annað lag ógleymanlegt: Kvöldsöngur við sjó fram, norskt lag og erindið þýtt af Guðmundi Magnússyni. Ég minnist Þórðar eitt sinn á skemmtun á Hvanneyri er hann var á balli í leik- fimisalnum og dansaði þar og söng á víxl. Var hvort tveggja frábært, söngur hans og hve fagurlega hann steig dansinn. Halldór skólastjóri sýndi pilium einnig hvernig ætti að halda á stúlku í dansi, og var það ærið ólíkt vanga- og faðmlagadansi nú- tímans. Á bændanámskeiðunum á Hvanneyri urðu mín einu kynni, svo heitið geti, af mönnum í Borgarfjarðarhéraði, utan Hvanneyrar. Nokkrir þeirra verða mér ógleymanlegir, og var það helzt í sambandi við umræður á kvöldfundum námskeiðanna. Fyrst vil ég nefna Jóhann Eyjólfsson, bónda og oddvita í Sveinatungu í Norður- árdal og alþingismann Mýramanna 1914. Hann gerði þetta afskekkta fjalladala- býli þjóðfrægt með því að byggja þar hið fyrsta íbúðarhús úr steinsteypu í sveit á íslandi, og reiða efnið á klökkum úr Borg- arnesi. Þetta var árið 1895. Það hús er enn í notkun og er öllum til sýnis, sem yfir Holtavörðuheiði fara. Þá beitti hann sér einnig fyrir byggingu Þverárréttar 1911, fyrstu skilarétt á íslandi úr steinsteypu, er varð strax landskunn. Jóhann var ríflegur meðalmaður á hæð, liðlega vaxinn, rjóður í andliti og vel á sig kominn. Hann talaði mikið á fundum og var flug- mælskur, en alltaf var hann sveittur af ákafanum er hann talaði. Guðmundur sonur hans var skólabróðir minn síðari vetur minn. Hann var flug- mælskur, ekki síður en faðir hans, djarfur og ófeiminn og stóð upp í hárinu á kenn- urum okkar á fundum og var einn um það. Hann var greindur vel, stórhuga og sókn- djarfur og hefði vafalaust orðið þingmað- ur, en hann létzt í bílslysi 1. sept. 1931. F R E Y R 505

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.