Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1972, Side 50

Freyr - 01.12.1972, Side 50
Hvítárvallahúsið. Þá man ég Hallgrím Níelsson, stórbónda á Grímsstöðum, hreppstjóra Álftanes- hrepps, átti lengi sauðfjárkynbótabú, fékk verðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns kon- ungs IX. Hann vakti eftirtekt mína vegna glæsi- mennsku og djarflegs málflutnings. Hann líktist meira glæstum embættismanni í klæðaburði og útliti, en bónda. Talaði eins og sá sem valdið hafði og virtist ekki eiga neitt undir öðrum en sjálfum sér. Ekki dró það úr athygli á manninum, að hann var bróðir Haraldar prófessors Níelssonar, er þá var orðinn landsþekktur maður. Þá var nú meira litið upp til slíkra manna af almenningi en nú er gert. Þá vil ég nefna þriðja bóndann, sem mér er minnisstæður frá þessum námskeiðum, en ég minnist ekki að ég sæi hann utan þeirra, þó hann væri í næsta nágrenni Hvanneyrar og oddviti Andakílshrepps. Þessi maður var Teitur Símonarson, bóndi á Grímarsstöðum. Hann var meðalmaður á vöxt, vel farinn í andliti og bauð af sér góðan þokka. Hann var að öllu sem venjulegur bóndi í betri bænda röð, barst ekki á og enginn stórbændabragur fylgdi honum. Grímars- staðir var þó allgóð jörð, þó ekki þyldi hún samanburð við nágrannajarðirnar til beggja handa, Hvítárvelli og Hvanneyri, eða stórbýlin hins vegar við ána: Ferju- bakka og Ferjukot. En á öllum þessum jörðum mun laxinn meira hafa komið við sögu en á Grímarsstöðum. Teitur bóndi virtist þéttur á velli og þéttur í lund og ólíklegur til að láta hlut sinn fyrir öðrum, en fara þó að öllu með gát og hófsemi. Hann flutti mál sitt hægt og rólega, með þybbinni þéttingsfestu. Geðjaðist mér vel að manninum. Enn vil ég geta manns, þó að ekki kæmi hann að Hvanneyri, meðan ég dvaldi þar. Það var Andrés Fjeldsteð, bóndi á Hvítár- völlum. Mann þennan þekkti ég af afspurn áður en ég kom í Borgarfjörð. Mest var það frá nágranna mínum Guðmundi Ein- arssyni, refaskyttu á Brekku, en hann var alinn upp á Heggstöðum er Andrés bjó á Hvítárvöllum, þá hafði sonur hans verið læknir okkar í Þingeyrarhéraði um árabil. Andrés Fjeldsted átti þá heima á Ferju- bakka, en þaðan fengum við Hvanneyrar- piltar stundum flutning yfir Hvítá, þó ekki frá heimili Andrésar, hann var þá um áttrætt og átti fá ár ólifuð, dó 1917. 506 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.