Freyr - 01.12.1972, Blaðsíða 63
r
Islensk hross
í Noregi
Ingibjörg Helkás rœktar
íslenzka hestinn á Þslamörk
Síðastliðinn vetur var þess getið á prenti,
að á Telemark í Noregi búi kona nokkur,
sem ræktar íslenzka hesta og hefur gert
svo um nokkurt skeið. Tímaritið var norskt
og með frásögninni birtist mynd af hestum
hennar. Því fer fjarri, að umrædd kona sé
óþekkt hér á landi. Þeir eru ófáir hér, sem
hafa séð hana. Hún heitir Ingibjörg Helkás,
kom hingað í fyrsta sinn árið 1952 með
hópi norsks skógræktarfólks, og gróður-
setti þá heilmikið af trjáplöntum í Vagla-
skógi. Hugurinn stefndi eftir það til þess,
sem íslenzkt er. Þessvegna kom hún hingað
aftur 1958 og vann um 14 mánaða skeið
hjá bændum á Reykjum í Mosfellssveit,
við garðyrkju og alifuglarækt fyrst og
fremst, og raunar við almenn bústörf, því
að þau kunni hún að heiman, bóndadótt-
irin af Þelamörkinni.
Strax eftir komuna hingað fékk hún á-
huga á íslenzka hestinum, en hesta þekkti
hún að sjálfsögðu heima, faðir hennar átti
alltaf 2—3 vinnuhross, og þegar hún hvarf
heim aftur 1959 hafði hún með sér tvær
íslenzkar hryssur, báðar fylfullar. Árið
eftir fæddist fyrsta íslenzka folaldið í
hennar eigu í Noregi, en það er hryssan
„GLETTA“, sem síðan hefur eignazt af-
kvæmi og aukið hrossastofn Ingibjargar.
Hugur konunnar stefndi að því um þessar
mundir að eignazt fleiri hross og þá helzt
hreinræktuð íslenzk. Þessvegna fékk hún
heimild til að kaupa á íslandi og flytja til
Noregs kynbótahestinn „TEITUR“. Það
var árið 1963 og árið eftir hóf Ingibjörg
Gletta dregur sleðann þcgar dæla skal vatni að
vetri.
sjálfstæðan búskap á lítilli jörð, 7 ha að
stærð. Þá átti hún 7 hross, öll íslenzk.
❖ * *
Tíminn líður. Ingibjörg hefur ekki slitið
sambandi við íslendinga og ekki misst á-
hugann fyrir íslenzkum hrossum. Síðan
hún fór héðan 1959 hefur hún komið til
Islands þriðja hvert ár og sætir alltaf tæki-
færum til þess að heimsækja mót hesta-
manna, keppnismót, sem hér fara fram í
einhverjum landshluta árlega.
Eitt árið dvaldi Ingibjörg nokkra daga
til þess að sjá og læra hvernig íslenzki
hesturinn var notaður við ýmiss störf hér,
Teitur og afkvæmi hans.
F R E Y R
519