Freyr - 01.12.1972, Síða 75
ÁBURÐARDREIFARAR
TILBÚINN ÁBURÐUR
MÖNDULDREIFARAR. Auk New Idea mönduldreifarans, sem
bændur þekkja, bjóðum við nú nýja gerð samhliða, International
No. 7. Þessir dreifarar eru svipaðir að verði og gæðum, en sá
síðarnefndi kemur á markaðinn til að tryggja afgreiðslu, jafnvel
þótt afgreiðslubann gagnvart flutningum væri í gildi í Bretlandi.
Það er því enn nauðsynlegra en fyrr, að bændur panti vorvinnu-
tækin tímanlega. Merkið því með X í viðeigandi dálk, ef talin
er þörf á nýjum dreifara fyrir vorið.
KASTDREIFARAR. Bögballe dreifararnir eru fluttir inn frá Dan-
mörku. Þeir koma nú með stillimöguleika, þannig að loka má
fyrir dreifingu til hvorrar hliðar, sem er mikill kostur við dreifingu
meðfram skurðbökkum og girðingum. Með jafnkorna áburði
næst góður árangur með þessum dreifurum.
HÚSDÝRAÁBURÐUR
KRAFTDREIFARAR. Þeir eru framleiddir hérlendis og eru hinir
vönduðustu að gerð. Þeir henta vel fyrir þunnan sem þykkan
húsdýraáburð og skán. Dreifibreiddin er 4—6 m og algeng hjóla-
stærð 1300 x 16.
GUFFEN — norskir. Þessir dreifarar eru sérlega heþþilegir fyrir
Tiykju. Þeir fara vel með traktorinn, og er dreifingin sérlega jöfn
og fín. Margir taka þessa dreifara með þéttu loki, sérstaklega ef
notuð er afkastamikil mykjudæla.
HAUGSUGUR. Eru nú aftur fyrirliggjandi. Þær eru framleiddar
hérlendis og koma með mjög öflugri loftdælu og 6” barka að
lengd eftir vali kauþenda.
MYKJUSNIGLAR. Eru einnig að jafnaði fyrirliggjandi. Þeir eru
oftast tengdir við drifskaft traktors og knúnir þannig. Lengd 6 og
7 m og afköst 0.5—1 tonn á mínútu, eftir halla snigils.
MYKJUDÆLUR. Þær eru traktorknúnar og feikilega afkastamikl-
ar. Með þeim má hræra upp í stórum haughúsum og fylla dreif-
arann á 20—30 sekúndum.
BÆNDUR, munið, að tímanleg pöntun tryggir góða afgreiðslu.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Armúlaá Reykjavik Sírrt 38900