Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1981, Side 33

Freyr - 01.03.1981, Side 33
Frá Sauðfjárveikivörnum Lög um varnir gegn útbreiðslu nœmra sauðfjársjúkdóma og útrýmingu þeirra eru nr. 23 mars 1956 og viðaukalög nr. 12, mars 1967. Markmið framkvæmdaþeirra, er lögþessifjalla um, erað hindra útbreiðslu sjúkdóma, sem um rœðir í lögum þessum, og vinna að útrýmingu þeirra. Landbúnaðarráðherra hefur yfirstjórn þeirra mála, er lög þessi fjalla um. Landbúnaðarráðherra skipar fimm manna framkvæm- danefnd (Sauðfjársjúkdómanefnd, eftir tillögum landbún- aðarnefnda Alþingis til að hafa á hendi stjórn þessara mála. Hann skipar einn nefndarmanna formann nefndarinnar. Nefndin er skipuð til þriggja ára í senn. Landbúnaðarráðherra skipar framkvœmdastjóra eftir tillögum nefndarinnar, og annast hann daglegstörf ogfram- kvæmdir eftir því, sem nefndin felur honum og hann hefur umboð til. Nefndarmenn og framkvæm- dastjóri eru þessir: Þórður Kristjánsson, Munaðar- nesi, Stafholtstungnahr. Mýr. for- maður. Jón Guðbrandsson dýralæknir, Selfossi. Júlíus Jónsson, Norðurhjáleigu, Álftaveri, V.-Skaft. Óskar Levy, Ósum, Þverár- hreppi, V.-Hún. Tryggvi Sigtryggsson, Lauga- bóli, Reykdælahr. S.-Þing. Kjartan Blöndal, Sólbraut 1, Seltjarnarnesi framkvæmdastjóri. Sérfræðingur sauðfjársjúk- dómanefndar er Sigurður Sigurðsson, dýralæknir, Grafar- holti, Reykjavík. Verkefni sauðfjársjúkdóma- nefndar er: L Að stuðla að heilbrigðiseftirliti sauðfjár og auknum rann- sóknum ásauðfjársjúkdómum. 2. Að gera viðhlítandi varúðar- ráðstafanir, ef grunur kemur upp um aukna hættu af völdum sjúkdóms. 3. Að koma upp varnarlínum og hafa eftirlit með starfrækslu þeirra og viðhaldi. 4. Að hafa yfirumsjón með fjár- skiptum, er landbúnaðarráð- herra hefur samþykkt. 5. Að vera ríkisstjóminni til ráðuneytis um þau mál, er lög og reglugerðir fjalla um. Sauðfjársjúkdómanefnd hefur ákveðið, að haldið verði áfram viðnámsaðgerðum gegn útbreiðslu riðuveiki á næsta ári 1981 í formi bóta til bænda, þegar teknar eru sjúkar kindur grunaðar um rið- uveiki úr hjörðum. Þessar tilraunir hafa verið í gangi frá haustinu 1978. Á næsta ári verða greiddar bæt- Kjartan Blöndal, framkvœmdastjóri Sauöfjárveikivarna. ur á slíkar kindur sem hér segir: Frá 1/1—1/3 kr. 18.000,-, frá 1/3—1/5 kr. 25.000., fyrir ein- lembu, kr. 33.000,- með tvö lömb eða fleiri, frá 1/5 þar tii féer sleppt úr húsi kr. 33.000,- fyrir einlembu og kr. 45.000,- með tvö lömb eða fleiri. Fyrir geldar ær skulu aldrei greiðast hærri bætur en kr. 18.000. Að öðru leyti skal fara eftir reglum sem gilt hafa. Molar Minnkandi kornbirgðir í heiminum. Landbúnaðarráðuneyti Banda- ríkjanna safnar skýrslum um bú- vöruframleiðslu um allan heim og gefur út yfirlit og spá um þá fram- leiðslu í hverjum mánuði. Sam- kvæmt þessum skýrslum fara kornbirgðir í heiminum minnk- andi á næsta ári. Lítur út fyrir að þar verði 54,1 millj. smálesta í júní 1981, en voru 87,4 millj. lesta í júnílok 1980. freyr — 193

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.